SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 19

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Blaðsíða 19
28. febrúar 2010 19 Leikið sjónvarpsefni ársins Í þessum flokki eru úrslitin löngu ráðin. Fangavaktin er með besta afþreyingarefni sem gert hefur verið hér- lendis síðan á tímum Heilsubælisins. Hamarinn átti einnig mögnuð augnablik þó að ástamálin væru til baga. Fangavaktin – Leikstjóri Ragnar Bragason. Framleiðandi Sagafilm Hamarinn – Leikstjóri Reynir Lyngdal. Framleiðandi Pegasus Ástríður – Leikstjóri Silja Hauksdóttir. Framleiðandi Sagafilm Áramótaskaup Sjónvarpsins 2009 – Leikstjóri Gunnar Björn Guðmundsson. Framleiðandi Ríkisútvarpið. Réttur – Leikstjóri Sævar Guðmundsson. Framleiðandi Sagafilm. Björn Hlynur Haraldsson og Dóra Jóhannsdóttir í Hamrinum. Ilmur Kristjánsdóttir og félagar í Ástríði. Áramótaskaupið 2009 mæltist almennt vel fyrir. Magnús Jónsson fer með aðalhlutverkið í Rétti. sæll er sterkur og vandaður að venju en kemur sjaldnar á óvart. Svipaða sögu er að segja af Agli. Út og suður – Framleiðandi Gísli Einarsson Sjálfstætt Fólk – Framleiðandi Ský kvikmyndagerð Silfur Egils – Framleiðandi Ríkisútvarpið. Fréttaaukinn – Framleiðandi Ríkisútvarpið Spjallið með Sölva – Framleiðandi SkjárEinn Menningar- eða lífsstílsþáttur ársins Atvinnumennirnir okkar koma þægilega á óvart, voru teknir léttum tökum og gaman að kynnast persónunum á bak við nöfnin í þeirra erlenda umhverfi. Kiljan er orðin dálítið þreytuleg, þyrfti á vænni B-12 sprautu að halda, oft á tíðum. Atvinnumennirnir okkar – Framleiðandi Filmus Kiljan – Framleiðandi Ríkisútvarpið Monitor – Framleiðandi Media Nýtt útlit – Framleiðandi Rafn Rafnsson Persónur og leikendur – Framleiðandi Ríkisútvarpið Heimildamynd ársins Þá er komið að uppáhaldsflokknum og það verður að segjast eins og er að allar myndirnar eru verðlaunanna virði. Þó get ég ekki gengið fram hjá því að sá gamli heimildamyndakúnstner, Friðrik Þór, gerði sína bestu heimildarmynd í ár, allt frá gullárum Eldsmiðsins og Kúreka norðursins. Sólskinsdrengurinn – Leikstjórn Friðrik Þór Friðriksson. Framleiðandi Frontier Filmworks Alfreð Elíasson og Loftleiðir – Leikstjóri Sigurgeir Orri Sigurgeirsson. Framleiðandi Heimildarmyndir Draumalandið – Leikstjórn Þorfinnur Guðnason og Andri Snær Magnason. Framleiðandi Ground Control Productions Hrunið – Dagskrárgerð Eiríkur Ingi Böðvarsson & Þóra Arnórsdóttir. Framleiðandi Ríkisútvarpið Kraftur – Síðasti spretturinn – Leikstjórn Árni Gunn- arsson, Þorvarður Björgúlfsson og Steingrímur Karlsson. Framleiðandi Skotta Kvikmyndafjelag, Kukl og Mystery Leikkona ársins í aðalhlutverki Ég slekk á útsendingunni ef okkar ástsæla Kristbjörg Kjeld hampar ekki Eddunni í kvöld. Annars er hópurinn að öðru leyti góður (með Margréti Helgu fremsta meðal jafningja), þó svo að ég hefði haft hann öðruvísi. Kristbjörg Kjeld – Mamma Gógó Margrét Helga Jóhannsdóttir – Bjarnfreðarson og Fangavaktin Ilmur Kristjánsdóttir – Ástríður Jóhanna Vigdís Arnardóttir – Réttur Laufey Elíasdóttir – Desember Leikari ársins í aðalhlutverki Eina alvörusamkeppnin sem meistari Gnarr þarf að glíma við eru félagar hans í Bjarnfreðarson og Fanga- vaktinni. En ég held að hann sé tiltölulega öruggur, okk- ar maður með 1.000 andlitin. Jón Gnarr – Bjarnfreðarson og Fangavaktin Pétur Jóhann Sigfússon – Bjarnfreðarson og Fangavaktin Jörundur Ragnarsson – Bjarnfreðarson og Fangavaktin Björn Hlynur Haraldsson – Hamarinn Magnús Jónsson – Réttur Meðleikkona ársins Hér er erfitt að spá í ungfrú Eddu. Hugsanlega verður þetta flokkurinn þar sem sigurvegarinn kemur á óvart. Ég ætla því að veðja á þá ágætu leikkonu Guðrúnu Gísla- dóttur, sem á góð augnablik í Desember, og átti ekki síður skilið að fá tilnefninguna fyrir frammistöðu sína í RWWM, og var í raun eini ljósi punkturinn í ófögn- uðinum. Guðrún Gísladóttir – Desember Herdís Þorvaldsdóttir – Hamarinn Þóra Karitas Árnadóttir – Ástríður Tinna Gunnlaugsdóttir – Réttur Tinna Hrafnsdóttir – Hamarinn Meðleikari ársins Tvísýnn flokkur og illágiskanlegur. Ólafur Darri er einkar frambærilegur að venju. Ólafur Darri Ólafsson – Fangavaktin Björn Thors – Fangavaktin Gunnar Hansson – Fangavaktin Rúnar Freyr Gíslason – Ástríður Stefán Hallur Stefánsson – Desember Handrit ársins Verum ekkert að flækja handritsmálin, þau fara svona, vona ég. Bjarnfreðarson– Jóhann Ævar Grímsson, Jón Gnarr, Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon og Ragn- ar Bragason Fangavaktin–Jóhann Ævar Grímsson, Jón Gnarr, Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon og Ragnar Bragason Ástríður– Ilmur Kristjánsdóttir, Katla Margrét Þorgeirs- dóttir, Sigurjón Kjartansson og Silja Hauksdóttir Kvikmyndataka ársins Gamli völundurinn, Ari Kristinsson, sýnir og sannar í Mömmu Gógó, að hann er enn einn okkar besti tökustjóri Ari Kristinsson – Mamma Gógó Bergsteinn Björgúlfsson – Bjarnfreðarson Karl Óskarsson – 3 Seasons in Hell Tónlist ársins Hilmar Örn, okkar kraftmikla kvikmyndatónskáld, ger- ir öllum glaðan dag í Mömmu Gógó. Hilmar Örn Hilmarsson – Mamma Gógó Jórunn Viðar – Orðið tónlist Valgeir Sigurðsson – Draumalandið Leikmynd ársins Hér geta allir unnið sakir fagmennsku og vandaðrar vinnu en ég tel Árna Pál allt að því ósigrandi sökum reynslu og gamalkunnrar smekkvísi og útsjónarsemi. Árni Páll Jóhannsson – Mamma Gógó Júlía Embla Katrínardóttir – Bjarnfreðarson Sveinn Viðar Hjartarson og Júlía Embla Katrínardóttir Fangavaktin Búningar ársins Hér stendur styrr á milli Helgu I. og Helgu Rósar, ég ætla að leggja allt mitt undir á þá síðarnefndu. Helga Rós V. Hannam – Bjarnfreðarson og Fangavaktin Helga I. Stefánsdóttir – Mamma Gógó María Valles – Reykjavik Whale Watching Massacre Gervi ársins Hér verður mjótt á mununum. Fríða María Þórðardóttir – Mamma Gógó Áslaug Dröfn Sigurð- ardóttir – Bjarnfreð- arson Ragna Fossberg – Ára- mótaskaupið 2009 Hljóð ársins Besta hljóðið gat að heyra í Hamrinum á því herrans ári, 2009. Gunnar Árnason – Hamarinn Kjartan Kjartansson og Björn Viktorsson – Drauma- landið Kjartan Kjartansson, Steingrímur E. Guðmundsson og Björn Viktorsson – Sólskinsdrengurinn Klipping ársins Elísabet Ronaldsdóttir er einn okkar langfærasti klippari og það kom óyggjandi í ljós í Desember. Elísabet Ronaldsdóttir – Desember Sverrir Kristjánsson og Guðni Halldórsson – Fangavaktin Þuríður Einarsdóttir – Sólskinsdrengurinn Leikstjóri ársins Friðrik eða Ragnar? Vandi er um slíkt að spá. Ég hallast þó frekar að Ragnari, fumlausri leikstjórn hans og ódrepandi úthaldi og forsjálni undir ólíkustu kring- umstæðum Ragnar Bragason – Bjarnfreðarson og Fangavaktin Friðrik Þór Friðriksson – Mamma Gógó Þorfinnur Guðnason og Andri Snær Magnason – Draumalandið. Svo er að bíða og sjá hverju fram vindur. ’ Keppnin um Edduna verður því óvenjuhörð í kvöld, öfugt við flest und- angengin 11 ár, þegar við höfum mátt telja okkur sæl með að eiga einn frambærileg- an kandídat í sum- um flokkunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.