SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 19
28. febrúar 2010 19
Leikið sjónvarpsefni ársins
Í þessum flokki eru úrslitin löngu ráðin. Fangavaktin er með besta afþreyingarefni sem gert hefur verið hér-
lendis síðan á tímum Heilsubælisins. Hamarinn átti einnig mögnuð augnablik þó að ástamálin væru til baga.
Fangavaktin – Leikstjóri Ragnar Bragason. Framleiðandi Sagafilm
Hamarinn – Leikstjóri Reynir Lyngdal. Framleiðandi Pegasus
Ástríður – Leikstjóri Silja Hauksdóttir. Framleiðandi Sagafilm
Áramótaskaup Sjónvarpsins 2009 – Leikstjóri Gunnar Björn Guðmundsson. Framleiðandi Ríkisútvarpið.
Réttur – Leikstjóri Sævar Guðmundsson. Framleiðandi Sagafilm.
Björn Hlynur Haraldsson og Dóra Jóhannsdóttir í Hamrinum. Ilmur Kristjánsdóttir og félagar í Ástríði. Áramótaskaupið 2009 mæltist almennt vel fyrir.
Magnús Jónsson fer með aðalhlutverkið í Rétti.
sæll er sterkur og vandaður að venju en kemur sjaldnar á
óvart. Svipaða sögu er að segja af Agli.
Út og suður – Framleiðandi Gísli Einarsson
Sjálfstætt Fólk – Framleiðandi Ský kvikmyndagerð
Silfur Egils – Framleiðandi Ríkisútvarpið.
Fréttaaukinn – Framleiðandi Ríkisútvarpið
Spjallið með Sölva – Framleiðandi SkjárEinn
Menningar- eða lífsstílsþáttur ársins
Atvinnumennirnir okkar koma þægilega á óvart, voru
teknir léttum tökum og gaman að kynnast persónunum
á bak við nöfnin í þeirra erlenda umhverfi. Kiljan er
orðin dálítið þreytuleg, þyrfti á vænni B-12 sprautu að
halda, oft á tíðum.
Atvinnumennirnir okkar – Framleiðandi Filmus
Kiljan – Framleiðandi Ríkisútvarpið
Monitor – Framleiðandi Media
Nýtt útlit – Framleiðandi Rafn Rafnsson
Persónur og leikendur – Framleiðandi Ríkisútvarpið
Heimildamynd ársins
Þá er komið að uppáhaldsflokknum og það verður að
segjast eins og er að allar myndirnar eru verðlaunanna
virði. Þó get ég ekki gengið fram hjá því að sá gamli
heimildamyndakúnstner, Friðrik Þór, gerði sína bestu
heimildarmynd í ár, allt frá gullárum Eldsmiðsins og
Kúreka norðursins.
Sólskinsdrengurinn – Leikstjórn Friðrik Þór
Friðriksson. Framleiðandi Frontier Filmworks
Alfreð Elíasson og Loftleiðir – Leikstjóri Sigurgeir Orri
Sigurgeirsson. Framleiðandi Heimildarmyndir
Draumalandið – Leikstjórn Þorfinnur Guðnason og
Andri Snær Magnason. Framleiðandi Ground Control
Productions
Hrunið – Dagskrárgerð Eiríkur Ingi Böðvarsson & Þóra
Arnórsdóttir. Framleiðandi Ríkisútvarpið
Kraftur – Síðasti spretturinn – Leikstjórn Árni Gunn-
arsson, Þorvarður Björgúlfsson og Steingrímur Karlsson.
Framleiðandi Skotta Kvikmyndafjelag, Kukl og Mystery
Leikkona ársins í aðalhlutverki
Ég slekk á útsendingunni ef okkar ástsæla Kristbjörg
Kjeld hampar ekki Eddunni í kvöld. Annars er hópurinn
að öðru leyti góður (með Margréti Helgu fremsta meðal
jafningja), þó svo að ég hefði haft hann öðruvísi.
Kristbjörg Kjeld – Mamma Gógó
Margrét Helga Jóhannsdóttir – Bjarnfreðarson og
Fangavaktin
Ilmur Kristjánsdóttir – Ástríður
Jóhanna Vigdís Arnardóttir – Réttur
Laufey Elíasdóttir – Desember
Leikari ársins í aðalhlutverki
Eina alvörusamkeppnin sem meistari Gnarr þarf að
glíma við eru félagar hans í Bjarnfreðarson og Fanga-
vaktinni. En ég held að hann sé tiltölulega öruggur, okk-
ar maður með 1.000 andlitin.
Jón Gnarr – Bjarnfreðarson og Fangavaktin
Pétur Jóhann Sigfússon – Bjarnfreðarson og Fangavaktin
Jörundur Ragnarsson – Bjarnfreðarson og Fangavaktin
Björn Hlynur Haraldsson – Hamarinn
Magnús Jónsson – Réttur
Meðleikkona ársins
Hér er erfitt að spá í ungfrú Eddu. Hugsanlega verður
þetta flokkurinn þar sem sigurvegarinn kemur á óvart.
Ég ætla því að veðja á þá ágætu leikkonu Guðrúnu Gísla-
dóttur, sem á góð augnablik í Desember, og átti ekki
síður skilið að fá tilnefninguna fyrir frammistöðu sína í
RWWM, og var í raun eini ljósi punkturinn í ófögn-
uðinum.
Guðrún Gísladóttir – Desember
Herdís Þorvaldsdóttir – Hamarinn
Þóra Karitas Árnadóttir – Ástríður
Tinna Gunnlaugsdóttir – Réttur
Tinna Hrafnsdóttir – Hamarinn
Meðleikari ársins
Tvísýnn flokkur og illágiskanlegur. Ólafur Darri er
einkar frambærilegur að venju.
Ólafur Darri Ólafsson – Fangavaktin
Björn Thors – Fangavaktin
Gunnar Hansson – Fangavaktin
Rúnar Freyr Gíslason – Ástríður
Stefán Hallur Stefánsson – Desember
Handrit ársins
Verum ekkert að flækja handritsmálin,
þau fara svona, vona ég.
Bjarnfreðarson– Jóhann Ævar Grímsson, Jón Gnarr,
Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon og Ragn-
ar Bragason
Fangavaktin–Jóhann Ævar Grímsson, Jón Gnarr,
Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon og
Ragnar Bragason
Ástríður– Ilmur Kristjánsdóttir, Katla Margrét Þorgeirs-
dóttir, Sigurjón Kjartansson og Silja Hauksdóttir
Kvikmyndataka ársins
Gamli völundurinn, Ari Kristinsson, sýnir og sannar í
Mömmu Gógó, að hann er enn einn okkar besti
tökustjóri
Ari Kristinsson – Mamma Gógó
Bergsteinn Björgúlfsson – Bjarnfreðarson
Karl Óskarsson – 3 Seasons in Hell
Tónlist ársins
Hilmar Örn, okkar kraftmikla kvikmyndatónskáld, ger-
ir öllum glaðan dag í Mömmu Gógó.
Hilmar Örn Hilmarsson – Mamma Gógó
Jórunn Viðar – Orðið tónlist
Valgeir Sigurðsson – Draumalandið
Leikmynd ársins
Hér geta allir unnið sakir fagmennsku og vandaðrar
vinnu en ég tel Árna Pál allt að því ósigrandi sökum
reynslu og gamalkunnrar smekkvísi og útsjónarsemi.
Árni Páll Jóhannsson – Mamma Gógó
Júlía Embla Katrínardóttir – Bjarnfreðarson
Sveinn Viðar Hjartarson og Júlía Embla Katrínardóttir
Fangavaktin
Búningar ársins
Hér stendur styrr á milli Helgu I. og Helgu Rósar, ég ætla
að leggja allt mitt undir á þá síðarnefndu.
Helga Rós V. Hannam – Bjarnfreðarson og Fangavaktin
Helga I. Stefánsdóttir – Mamma Gógó
María Valles – Reykjavik Whale Watching Massacre
Gervi ársins
Hér verður mjótt á
mununum.
Fríða María Þórðardóttir
– Mamma Gógó
Áslaug Dröfn Sigurð-
ardóttir – Bjarnfreð-
arson
Ragna Fossberg – Ára-
mótaskaupið 2009
Hljóð ársins
Besta hljóðið gat að
heyra í Hamrinum á því
herrans ári, 2009.
Gunnar Árnason –
Hamarinn
Kjartan Kjartansson og Björn Viktorsson – Drauma-
landið
Kjartan Kjartansson, Steingrímur E. Guðmundsson og
Björn Viktorsson – Sólskinsdrengurinn
Klipping ársins
Elísabet Ronaldsdóttir er einn okkar langfærasti klippari
og það kom óyggjandi í ljós í Desember.
Elísabet Ronaldsdóttir – Desember
Sverrir Kristjánsson og Guðni Halldórsson –
Fangavaktin
Þuríður Einarsdóttir – Sólskinsdrengurinn
Leikstjóri ársins
Friðrik eða Ragnar? Vandi er um slíkt að spá. Ég hallast
þó frekar að Ragnari, fumlausri leikstjórn hans og
ódrepandi úthaldi og forsjálni undir ólíkustu kring-
umstæðum
Ragnar Bragason – Bjarnfreðarson og Fangavaktin
Friðrik Þór Friðriksson – Mamma Gógó
Þorfinnur Guðnason og Andri Snær Magnason –
Draumalandið.
Svo er að bíða og sjá hverju fram vindur.
’
Keppnin um
Edduna
verður því
óvenjuhörð í kvöld,
öfugt við flest und-
angengin 11 ár,
þegar við höfum
mátt telja okkur
sæl með að eiga
einn frambærileg-
an kandídat í sum-
um flokkunum.