SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 27

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 27
28. febrúar 2010 27 D júpstæðari klofningur er kom- inn upp í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði en for- ystumenn flokksins hafa viljað viðurkenna opinberlega. Í flokknum er uppi djúpstæður málefnalegur ágrein- ingur um aðildarumsókn Íslands að ESB, um vinnubrögð í Icesave-málum, um rót- tækar aðgerðir í skuldamálum heimilanna í landinu og um hlutverk Alþjóðagjald- eyrissjóðsins. Það má halda því fram með góðum rök- um að tveir flokkar séu í Vinstrihreyfing- unni – grænu framboði í dag. Í öðrum flokknum, sem raðað hefur sér í kringum Ögmund Jónasson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, formaður þingflokks VG, Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðherra, Lilja Mósesdóttir, Ásmund- ur Einar Daðason og Atli Gíslason. Samkvæmt samtölum við flokksmenn VG telur þessi armur VG brýnt að Ög- mundur Jónasson taki sem fyrst sæti í ríkisstjórn á nýjan leik, því þessir þing- menn treysta því, að með hann við rík- isstjórnarborðið sé tryggt að sú rödd heyrist, sem þau vilja að heyrist. Röddin sem talar fyrir breyttum og bættum vinnubrögðum og að horfið verði frá gamaldags vinnubrögðum, leyndarhyggju og baktjaldamakki. Einn þingmaður VG orðaði það þannig við mig í gær, að það væri spurning hversu lengi þessi hluti VG gæti stutt óbreytta ríkisstjórn. Gagnrýna vinnubrögðin Í hinum flokknum, sem er nánasta hirð Steingríms J. Sigfússonar, eru Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra, Árni Þór Sigurðsson, Björn Valur Gíslason, 8. þing- maður Norðausturkjördæmis, Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og – það sem ekki er þýðingarminna í þessu sam- hengi – dóttir Svavars Gestssonar, for- manns samninganefndar Steingríms J. um Icesave. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráð- herra, Þuríður Backman, 5. þingmaður Norðausturkjördæmis og varaforseti þingsins, og Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6. þingmaður Norðvesturkjördæmis, eru þeir þingmenn VG sem ekki er hægt að skipa beint í aðra hvora fylkinguna, eftir því sem ég kemst næst. Raunar er skiptingin ekki jafnskýr og greint er hér að ofan, því að vissu leyti fer hún eftir málefnum. Þannig má segja að Lilja Rafney og Þuríður Backman séu ekki samstiga þeim sem styðja Ögmund í gagnrýninni á málatilbúnað og vinnu- brögð formannsins og ríkisstjórnarinnar í Icesave-málum, a.m.k. ekki opinberlega, en hins vegar eru þær á mjög svipuðu róli í andstöðu sinni við umsókn um aðild að Evrópusambandinu og þau Lilja Mós- esdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Jón Bjarnason, Ásmundur Einar Daðason og Atli Gíslason. Ögmundur er á hinn bóginn ekki and- vígur aðildarumsókninni, þótt hann sé vissulega andvígur inngöngu Íslands í ESB. Hann sagði fyrir kosningarnar í fyrra að það yrði að fá þessa Evrópuumræðu hreinsaða út úr íslenskri pólitík og eina leiðin væri sú að fá fram þjóðaratkvæða- greiðslu um málið. Hann taldi að slík þjóðaratkvæðagreiðsla fengist ekki fram í samstarfi við Samfylkinguna, nema sú leið væri farin að sækja um aðild. Kallað eftir gegnsæi Vitanlega hefur verið stirt á milli þeirra Stengríms J. og Ögmundar, allar götur frá því að Ögmundur sagði af sér sem heil- brigðisráðherra. Hann hefur sagt að hann gæti ekki setið í ríkisstjórn, þar sem ský- laus krafa væri um það að allir töluðu einni röddu í Icesave-málinu. Ögmundur Jónasson hefur ítrekað sagt opinberlega, að hann teldi að forræð- ishyggja og vinnubrögð leyndarhyggju hafi skipt máli í hruninu. Hann og fleiri þingmenn VG, eins og Guðfríður Lilja, Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ás- mundur Einar, hafa verið mjög gagnrýnin á vinnubrögðin í Icesave-málinu og raun- ar haldið því fram að forræðis- og leynd- arhyggja hafi ráðið för. Þau hafa kallað eftir hinum nýju vinnubrögðum, gegnsæi, opinni umræðu, samráði og aðkomu allra stjórnmálaflokka að Icesave-málinu. Þannig verði Ísland miklu sterkara út á við, gagnvart viðsemjendum Íslands og einnig inni á Alþingi. Ágreiningur þessara tveggja fylkinga sama flokks snýst ekki um mjög margt, en samt sem áður um grundvallaratriði, eins og umsókn Íslands um aðild að Evrópu- sambandinu og ekki síður um vinnu- brögðin og málatilbúnað allan í Icesave- málum og niðurstöður. Steingrímur J. er gagnrýndur harðlega af flokksfólki sínu fyrir það hvernig hann hefur haldið á Ice- save-málum. Ákveðnum þingmönnum VG er meira en nóg boðið, hvernig formaður þeirra, ásamt aðstoðarmanni sínum, Indriða H. Þorlákssyni, hefur gengið fram fyrir skjöldu, í því eina markmiði að verja mannorð Svavars Gestssonar, fyrrverandi formanns Alþýðubandalagsins sáluga, sem þessir sömu þingmenn telja að hafi samið skelfilega af sér fyrir hönd þjóð- arinnar, þegar hann gekk frá sam- komulagi við Breta og Hollendinga í júní í fyrra. Því er haldið fram að höfuðverkefni formanns VG, aðstoðarmanns hans, Indr- iða, Svandísar Svavarsdóttur umhverf- isráðherra og vitanlega Svavars Gests- sonar sjálfs hafi frá áramótum, þegar forsetinn synjaði Icesave-lögum staðfest- ingar, verið að verja eða reyna að end- urheimta mannorð Svavars Gestssonar. Betri samningsniðurstaða Fyrir margt löngu sé ljóst, að slíkt verk sé óvinnandi vegur, þar sem einfaldlega hafi komið á daginn, með starfi nýrrar við- ræðunefndar, undir formennsku hins þaulreynda og sjóaða bandaríska sérfræð- ings Lees Buchheits, að hægt hefði verið að ná mun betri samningsniðurstöðu en Svavar og hans menn náðu. Það sé einfaldlega ekki hægt að verja hans störf sem formanns viðræðunefnd- arinnar og eigi alls ekki að vera í verka- hring VG að gera það. Slíkur málatilbún- aður sé einungis skaðlegur VG og til þess fallinn að draga úr trausti á flokknum. Af skiljanlegum ástæðum sér Svandís Svavarsdóttir ekki heila brú í þessari rök- semdafærslu og raunar eru margir sem virða það bara við þennan kvenskörung, hversu vasklega hún tekur til varna fyrir föður sinn. En hið sama gildir ekki um formann flokksins, Steingrím J. Sigfússon, enda er fullyrt, að annars konar hvati sé að baki þeirri áráttu hans að verja störf Svavars út yfir gröf og dauða: nefnilega hvatinn til þess að halda í sjálfum sér pólitísku lífi. Ef hann viðurkennir að það hafi verið misráðið af honum að velja einn og hjálp- arlaust Svavar, eins konar guðföður sinn í pólitík, til formennsku í þessari þýðing- armestu viðræðunefnd sem nokkur rík- isstjórn hefur teflt fram á alþjóðavettvangi í áratugi, þá er hann um leið að fremja pólitískt harakiri. Steingrímur getur ekki viðurkennt mistökin og því er hann fastur í þessari klemmu, sem skaðar ekki bara hann sjálf- an, heldur Vinstrihreyfinguna – grænt framboð eins og hún leggur sig, að mati fjölmargra flokksmanna VG. Formaður VG situr uppi með ónýtan Icesave-samning, sem Svavar Gestsson og Indriði H. Þorláksson kokkuðu fyrir hann. Formaðurinn segist enn ætla að segja já við samningnum, komi til þjóðaratkvæðis hinn 6. mars nk., kjósi hann á annað borð, þótt hann viti að nýja viðræðunefndin, undir forystu Buchheits, hefur þegar kall- að fram tilboð frá Bretum og Hollend- ingum sem er tugmilljörðum hagstæðara en samningur Svavars, þótt því tilboði Breta og Hollendinga hafi verið hafnað. Einn þingmaður VG sagði í gær: „Flokkshagsmunir og þjóðarhagsmunir fara ekki endilega alltaf saman. Ég held að við verðum að vera stór í sniðum í þessu máli og hugsa fyrst um þjóðarhag, ekki flokkshagsmuni. Okkar hlutverk er að reyna að breyta og bæta samfélagið og rífa það upp eftir hörmulegt hrun.“ Þingmað- urinn óttast að Steingrímur J. hafi tekið sína persónulegu hagsmuni framyfir þjóðarhagsmuni. Við lá að syði upp úr á milli Samfylk- ingar og VG síðdegis á miðvikudaginn var, þegar efnt var til sameiginlegs þingflokks- fundar hjá þingflokkum Samfylkingar og VG, þar sem m.a. var rætt um aðild- arumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Samfylkingu var það mjög í mun að vanda um við þingmenn VG sem ýmsir samfylk- ingarþingmenn telja að gangi fram af full- mikilli hörku í andstöðu sinni við aðild- arumsókn Íslands að ESB. Samfylkingin vildi sem sé biðja þingmenn VG að halda skoðunum sínum og andstöðu við aðild að ESB fyrir sig. Þeir ættu ekki að vera að reifa skoðanir sínar opinberlega og geyma baráttu sína gegn inngöngu Íslands í Evr- ópusambandið til þess tíma, þegar kemur að kosningabaráttu um aðildarsamning. Eftir því sem næst verður komist dugðu umvandanirnar ekki hót, ekki frekar en við Tótu tindilfættu, í laginu góða. Þingmenn VG töldu að Samfylkingin væri með grófa íhlutun í innanflokksmál þeirra og lýstu því yfir að þeir hefðu mál- og skoðanafrelsi og tækju ekki við slíkum fyrirmælum frá samstarfsflokknum. Talast ekki lengur við Það er einnig farið að há innra flokksstarfi VG að þeir Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson talast ekki lengur við. Fjölmargir hafa sagt mér að það sé staðreynd, sem ekki verði horft framhjá og smiti vitanlega út frá sér og sé til þess fallin að kljúfa flokkinn í fylkingar. Þetta hefur verið staðfest, bæði af þing- mönnum í Samfylkingu, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, en sumir þingmenn VG eru enn að reyna að bera klæði á vopnin og gera því lítið úr ágreiningi þeirra fyrrverandi vina og félaga, Stein- gríms og Ögmundar. Þá hefur Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ekki beinlínis auðveldað fjármálaráðherra sínum og for- manni lífið, með þeim einleik sem hann leikur í sjávarútvegsmálum. Einn þing- maður orðaði það svo: „Í fyrsta lagi þá veldur Jón Bjarnason miklum óróa í sam- starfsflokknum, Samfylkingunni, með yf- irlýsingum sínum um Evrópusambandið. En hann veldur formanni VG, Steingrími J. Sigfússyni, ekki síður erfiðleikum, ég vil segja búsifjum, því gífurleg óánægja er með fyrningarfrumvarp ráðherrans hvað varðar skötuselinn.“ Samtök atvinnulífsins og Alþýðu- samband Íslands hafa mótmælt frumvarpi sjávarútvegsráðherra harðlega og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa Samtök atvinnulífsins sent forsætisráð- herra bréf þar sem samtökin hóta öllu illu, verði ekki horfið frá flutningi þessa frum- varps sjávarútvegsráðherra. „Það verður æ ljósara, að formaður VG, Steingrímur J. Sigfússon, ræður ekkert við Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra og einleikaratilburði hans. Ég hefði haldið að formaður VG hefði úr nægum vanda- málum að moða í eigin ráðuneyti, án þess að Jón Bjarnason væri eitthvað sérstaklega að þvælast fyrir honum og valda honum vandræðum með einhverju fáránlegu skötuselsfrumvarpi,“ sagði þingmaður í gær. Þingmenn VG benda á hinn bóginn á að Jón Bjarnason njóti víðtæks stuðnings í eigin flokki í tilraunum sínum við að reyna að breyta kvótakerfinu. Það sé ein- faldlega opinber stefna VG. Þeir benda líka á, að þótt Samfylkingunni sé mjög í mun að losna við Jón Bjarnason úr rík- isstjórn, vegna harðrar andstöðu hans við inngöngu Íslands í Evrópusambandið, þá verði samstarfsflokkurinn að bíta í það súra epli að hann raðar ekki til sætis í ráð- herrastóla VG. Frétta- skýring Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Allt í klessu hjá VG Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson talast ekki við og segja má að í VG séu nú tveir flokkar, annar í kringum Steingrím J. og hinn í kringum Ögmund. Vík er nú milli vina, því þeir Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson talast ekki lengur við. Jón Bjarnason er í stuðningsliði Ögmundar.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.