SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Síða 27
28. febrúar 2010 27
D
júpstæðari klofningur er kom-
inn upp í Vinstrihreyfingunni
– grænu framboði en for-
ystumenn flokksins hafa viljað
viðurkenna opinberlega. Í flokknum er
uppi djúpstæður málefnalegur ágrein-
ingur um aðildarumsókn Íslands að ESB,
um vinnubrögð í Icesave-málum, um rót-
tækar aðgerðir í skuldamálum heimilanna
í landinu og um hlutverk Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins.
Það má halda því fram með góðum rök-
um að tveir flokkar séu í Vinstrihreyfing-
unni – grænu framboði í dag.
Í öðrum flokknum, sem raðað hefur sér
í kringum Ögmund Jónasson, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra, eru Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir, formaður þingflokks VG,
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, Lilja Mósesdóttir, Ásmund-
ur Einar Daðason og Atli Gíslason.
Samkvæmt samtölum við flokksmenn
VG telur þessi armur VG brýnt að Ög-
mundur Jónasson taki sem fyrst sæti í
ríkisstjórn á nýjan leik, því þessir þing-
menn treysta því, að með hann við rík-
isstjórnarborðið sé tryggt að sú rödd
heyrist, sem þau vilja að heyrist. Röddin
sem talar fyrir breyttum og bættum
vinnubrögðum og að horfið verði frá
gamaldags vinnubrögðum, leyndarhyggju
og baktjaldamakki. Einn þingmaður VG
orðaði það þannig við mig í gær, að það
væri spurning hversu lengi þessi hluti VG
gæti stutt óbreytta ríkisstjórn.
Gagnrýna vinnubrögðin
Í hinum flokknum, sem er nánasta hirð
Steingríms J. Sigfússonar, eru Álfheiður
Ingadóttir heilbrigðisráðherra, Árni Þór
Sigurðsson, Björn Valur Gíslason, 8. þing-
maður Norðausturkjördæmis, Svandís
Svavarsdóttir umhverfisráðherra og – það
sem ekki er þýðingarminna í þessu sam-
hengi – dóttir Svavars Gestssonar, for-
manns samninganefndar Steingríms J. um
Icesave.
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráð-
herra, Þuríður Backman, 5. þingmaður
Norðausturkjördæmis og varaforseti
þingsins, og Lilja Rafney Magnúsdóttir, 6.
þingmaður Norðvesturkjördæmis, eru
þeir þingmenn VG sem ekki er hægt að
skipa beint í aðra hvora fylkinguna, eftir
því sem ég kemst næst.
Raunar er skiptingin ekki jafnskýr og
greint er hér að ofan, því að vissu leyti fer
hún eftir málefnum. Þannig má segja að
Lilja Rafney og Þuríður Backman séu ekki
samstiga þeim sem styðja Ögmund í
gagnrýninni á málatilbúnað og vinnu-
brögð formannsins og ríkisstjórnarinnar í
Icesave-málum, a.m.k. ekki opinberlega,
en hins vegar eru þær á mjög svipuðu róli í
andstöðu sinni við umsókn um aðild að
Evrópusambandinu og þau Lilja Mós-
esdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Jón
Bjarnason, Ásmundur Einar Daðason og
Atli Gíslason.
Ögmundur er á hinn bóginn ekki and-
vígur aðildarumsókninni, þótt hann sé
vissulega andvígur inngöngu Íslands í
ESB. Hann sagði fyrir kosningarnar í fyrra
að það yrði að fá þessa Evrópuumræðu
hreinsaða út úr íslenskri pólitík og eina
leiðin væri sú að fá fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið. Hann taldi að slík
þjóðaratkvæðagreiðsla fengist ekki fram í
samstarfi við Samfylkinguna, nema sú leið
væri farin að sækja um aðild.
Kallað eftir gegnsæi
Vitanlega hefur verið stirt á milli þeirra
Stengríms J. og Ögmundar, allar götur frá
því að Ögmundur sagði af sér sem heil-
brigðisráðherra. Hann hefur sagt að hann
gæti ekki setið í ríkisstjórn, þar sem ský-
laus krafa væri um það að allir töluðu
einni röddu í Icesave-málinu.
Ögmundur Jónasson hefur ítrekað sagt
opinberlega, að hann teldi að forræð-
ishyggja og vinnubrögð leyndarhyggju
hafi skipt máli í hruninu. Hann og fleiri
þingmenn VG, eins og Guðfríður Lilja,
Lilja Mósesdóttir, Atli Gíslason og Ás-
mundur Einar, hafa verið mjög gagnrýnin
á vinnubrögðin í Icesave-málinu og raun-
ar haldið því fram að forræðis- og leynd-
arhyggja hafi ráðið för. Þau hafa kallað
eftir hinum nýju vinnubrögðum, gegnsæi,
opinni umræðu, samráði og aðkomu allra
stjórnmálaflokka að Icesave-málinu.
Þannig verði Ísland miklu sterkara út á
við, gagnvart viðsemjendum Íslands og
einnig inni á Alþingi.
Ágreiningur þessara tveggja fylkinga
sama flokks snýst ekki um mjög margt, en
samt sem áður um grundvallaratriði, eins
og umsókn Íslands um aðild að Evrópu-
sambandinu og ekki síður um vinnu-
brögðin og málatilbúnað allan í Icesave-
málum og niðurstöður. Steingrímur J. er
gagnrýndur harðlega af flokksfólki sínu
fyrir það hvernig hann hefur haldið á Ice-
save-málum.
Ákveðnum þingmönnum VG er meira
en nóg boðið, hvernig formaður þeirra,
ásamt aðstoðarmanni sínum, Indriða H.
Þorlákssyni, hefur gengið fram fyrir
skjöldu, í því eina markmiði að verja
mannorð Svavars Gestssonar, fyrrverandi
formanns Alþýðubandalagsins sáluga,
sem þessir sömu þingmenn telja að hafi
samið skelfilega af sér fyrir hönd þjóð-
arinnar, þegar hann gekk frá sam-
komulagi við Breta og Hollendinga í júní í
fyrra.
Því er haldið fram að höfuðverkefni
formanns VG, aðstoðarmanns hans, Indr-
iða, Svandísar Svavarsdóttur umhverf-
isráðherra og vitanlega Svavars Gests-
sonar sjálfs hafi frá áramótum, þegar
forsetinn synjaði Icesave-lögum staðfest-
ingar, verið að verja eða reyna að end-
urheimta mannorð Svavars Gestssonar.
Betri samningsniðurstaða
Fyrir margt löngu sé ljóst, að slíkt verk sé
óvinnandi vegur, þar sem einfaldlega hafi
komið á daginn, með starfi nýrrar við-
ræðunefndar, undir formennsku hins
þaulreynda og sjóaða bandaríska sérfræð-
ings Lees Buchheits, að hægt hefði verið
að ná mun betri samningsniðurstöðu en
Svavar og hans menn náðu.
Það sé einfaldlega ekki hægt að verja
hans störf sem formanns viðræðunefnd-
arinnar og eigi alls ekki að vera í verka-
hring VG að gera það. Slíkur málatilbún-
aður sé einungis skaðlegur VG og til þess
fallinn að draga úr trausti á flokknum.
Af skiljanlegum ástæðum sér Svandís
Svavarsdóttir ekki heila brú í þessari rök-
semdafærslu og raunar eru margir sem
virða það bara við þennan kvenskörung,
hversu vasklega hún tekur til varna fyrir
föður sinn.
En hið sama gildir ekki um formann
flokksins, Steingrím J. Sigfússon, enda er
fullyrt, að annars konar hvati sé að baki
þeirri áráttu hans að verja störf Svavars út
yfir gröf og dauða: nefnilega hvatinn til
þess að halda í sjálfum sér pólitísku lífi.
Ef hann viðurkennir að það hafi verið
misráðið af honum að velja einn og hjálp-
arlaust Svavar, eins konar guðföður sinn í
pólitík, til formennsku í þessari þýðing-
armestu viðræðunefnd sem nokkur rík-
isstjórn hefur teflt fram á alþjóðavettvangi
í áratugi, þá er hann um leið að fremja
pólitískt harakiri.
Steingrímur getur ekki viðurkennt
mistökin og því er hann fastur í þessari
klemmu, sem skaðar ekki bara hann sjálf-
an, heldur Vinstrihreyfinguna – grænt
framboð eins og hún leggur sig, að mati
fjölmargra flokksmanna VG.
Formaður VG situr uppi með ónýtan
Icesave-samning, sem Svavar Gestsson og
Indriði H. Þorláksson kokkuðu fyrir hann.
Formaðurinn segist enn ætla að segja já
við samningnum, komi til þjóðaratkvæðis
hinn 6. mars nk., kjósi hann á annað borð,
þótt hann viti að nýja viðræðunefndin,
undir forystu Buchheits, hefur þegar kall-
að fram tilboð frá Bretum og Hollend-
ingum sem er tugmilljörðum hagstæðara
en samningur Svavars, þótt því tilboði
Breta og Hollendinga hafi verið hafnað.
Einn þingmaður VG sagði í gær:
„Flokkshagsmunir og þjóðarhagsmunir
fara ekki endilega alltaf saman. Ég held að
við verðum að vera stór í sniðum í þessu
máli og hugsa fyrst um þjóðarhag, ekki
flokkshagsmuni. Okkar hlutverk er að
reyna að breyta og bæta samfélagið og rífa
það upp eftir hörmulegt hrun.“ Þingmað-
urinn óttast að Steingrímur J. hafi tekið
sína persónulegu hagsmuni framyfir
þjóðarhagsmuni.
Við lá að syði upp úr á milli Samfylk-
ingar og VG síðdegis á miðvikudaginn var,
þegar efnt var til sameiginlegs þingflokks-
fundar hjá þingflokkum Samfylkingar og
VG, þar sem m.a. var rætt um aðild-
arumsókn Íslands að Evrópusambandinu.
Samfylkingu var það mjög í mun að vanda
um við þingmenn VG sem ýmsir samfylk-
ingarþingmenn telja að gangi fram af full-
mikilli hörku í andstöðu sinni við aðild-
arumsókn Íslands að ESB. Samfylkingin
vildi sem sé biðja þingmenn VG að halda
skoðunum sínum og andstöðu við aðild að
ESB fyrir sig. Þeir ættu ekki að vera að
reifa skoðanir sínar opinberlega og geyma
baráttu sína gegn inngöngu Íslands í Evr-
ópusambandið til þess tíma, þegar kemur
að kosningabaráttu um aðildarsamning.
Eftir því sem næst verður komist dugðu
umvandanirnar ekki hót, ekki frekar en
við Tótu tindilfættu, í laginu góða.
Þingmenn VG töldu að Samfylkingin
væri með grófa íhlutun í innanflokksmál
þeirra og lýstu því yfir að þeir hefðu mál-
og skoðanafrelsi og tækju ekki við slíkum
fyrirmælum frá samstarfsflokknum.
Talast ekki lengur við
Það er einnig farið að há innra flokksstarfi
VG að þeir Steingrímur J. Sigfússon og
Ögmundur Jónasson talast ekki lengur
við. Fjölmargir hafa sagt mér að það sé
staðreynd, sem ekki verði horft framhjá
og smiti vitanlega út frá sér og sé til þess
fallin að kljúfa flokkinn í fylkingar.
Þetta hefur verið staðfest, bæði af þing-
mönnum í Samfylkingu, Sjálfstæðisflokki
og Framsóknarflokki, en sumir þingmenn
VG eru enn að reyna að bera klæði á
vopnin og gera því lítið úr ágreiningi
þeirra fyrrverandi vina og félaga, Stein-
gríms og Ögmundar.
Þá hefur Jón Bjarnason, sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra, ekki beinlínis
auðveldað fjármálaráðherra sínum og for-
manni lífið, með þeim einleik sem hann
leikur í sjávarútvegsmálum. Einn þing-
maður orðaði það svo: „Í fyrsta lagi þá
veldur Jón Bjarnason miklum óróa í sam-
starfsflokknum, Samfylkingunni, með yf-
irlýsingum sínum um Evrópusambandið.
En hann veldur formanni VG, Steingrími
J. Sigfússyni, ekki síður erfiðleikum, ég vil
segja búsifjum, því gífurleg óánægja er
með fyrningarfrumvarp ráðherrans hvað
varðar skötuselinn.“
Samtök atvinnulífsins og Alþýðu-
samband Íslands hafa mótmælt frumvarpi
sjávarútvegsráðherra harðlega og sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins hafa
Samtök atvinnulífsins sent forsætisráð-
herra bréf þar sem samtökin hóta öllu illu,
verði ekki horfið frá flutningi þessa frum-
varps sjávarútvegsráðherra.
„Það verður æ ljósara, að formaður VG,
Steingrímur J. Sigfússon, ræður ekkert við
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra og
einleikaratilburði hans. Ég hefði haldið að
formaður VG hefði úr nægum vanda-
málum að moða í eigin ráðuneyti, án þess
að Jón Bjarnason væri eitthvað sérstaklega
að þvælast fyrir honum og valda honum
vandræðum með einhverju fáránlegu
skötuselsfrumvarpi,“ sagði þingmaður í
gær.
Þingmenn VG benda á hinn bóginn á að
Jón Bjarnason njóti víðtæks stuðnings í
eigin flokki í tilraunum sínum við að
reyna að breyta kvótakerfinu. Það sé ein-
faldlega opinber stefna VG. Þeir benda
líka á, að þótt Samfylkingunni sé mjög í
mun að losna við Jón Bjarnason úr rík-
isstjórn, vegna harðrar andstöðu hans við
inngöngu Íslands í Evrópusambandið, þá
verði samstarfsflokkurinn að bíta í það
súra epli að hann raðar ekki til sætis í ráð-
herrastóla VG.
Frétta-
skýring
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Allt í klessu hjá VG
Steingrímur J. Sigfússon og
Ögmundur Jónasson talast
ekki við og segja má að í VG
séu nú tveir flokkar, annar í
kringum Steingrím J. og
hinn í kringum Ögmund.
Vík er nú milli vina, því þeir Steingrímur J. Sigfússon og Ögmundur Jónasson talast ekki
lengur við. Jón Bjarnason er í stuðningsliði Ögmundar.