SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 32

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 32
32 28. febrúar 2010 S kömmu eftir að Sir Alex Ferguson tók við stjórnvelinum hjá Man- chester United af Ron Atkinson síðla árs 1986 kallaði hann Eric Harrison, knattspyrnustjóra ungmenna- liðs félagsins, inn á skrifstofu til sín. Er- indið var að krefja hann um fleiri góða leikmenn. „Hvað áttu við?“ spurði Harr- ison, sem var eldri en tvævetur í faginu, og benti á Norman Whiteside, Mark Hughes, Graeme Hogg og Clayton Blackmore. „Það er ekki nóg. Við þurfum fleiri,“ svaraði Sir Alex. „Ekkert mál, lagsi. Við skulum gera með okkur samkomulag,“ sagði Harrison. „Útvegir þú mér meiri efnivið skal ég skila fleiri mönnum upp í aðalliðið.“ Þeir tókust í hendur. Sir Alex stóð við sitt, hann efldi „njósn- ir“ Manchester United til muna og Harr- ison fékk efniviðinn sem hann óskaði eftir. Sá síðarnefndi lét ekki segja sér það tvisv- ar, skilaði fræknustu kynslóð ungmenna sem um getur í sögu ensku knattspyrn- unnar. Gildir þá einu hvort horft er til endingar eða árangurs. Fyrsta afrek þessarar vösku sveitar var að skila Manchester United ungmenna- bikarnum vorið 1992. Piltarnir lögðu þá jafnaldra sína hjá Crystal Palace í tveimur leikjum, 3:1 og 3:2. Í fyrri leiknum, sem fram fór á Selhurst Park, gerðu miðvellingar United gæfu- muninn, Nicky Butt skoraði í tvígang og David Beckham einu sinni. Í seinni leiknum, að viðstöddum fjórtán þúsund áhorfendum á Old Trafford, önn- uðust Ben Thornley, Simon Davies og Col- in McKee markaskorun en maður leiksins var á hinn bóginn Ryan nokkur Giggs. Hann hafði um þær mundir unnið sér fast sæti í aðalliði United en fékk góðfúslegt leyfi hjá Sir Alex til að sletta úr klaufunum með uppeldisbræðrum sínum. 32 meistaratitlar Óvenju margir úr þessu frækna liði kom- ust í fremstu röð, ekki bara í Englandi, heldur í heiminum öllum, og allmargir þeirra eru ennþá að, tæpum átján árum síðar. Samtals hafa þeir leikið 429 lands- leiki fyrir hönd þjóða sinna og unnið hvorki fleiri né færri en 32 meistaratitla, 31 í Englandi og einn á Spáni. Fjórir leikmenn bera höfuð og herðar yfir aðra í þessu liði, Gary Neville, David Beckham, Nicky Butt og Ryan Giggs. Ekki þarf að hafa mörg orð um útherj- ann Ryan Giggs (f. 1973). Hann er sig- ursælasti leikmaður allra tíma í ensku knattspyrnunni, vann á liðnu ári sinn ell- efta meistaratitil. Ólíklegt er að það afrek verði nokkru sinni jafnað. Það er raunar svigrúm fyrir Giggs að bæta á sig blómum en hann er sem kunnugt er ennþá í fullu fjöri með Manchester United. Enginn maður hefur leikið fleiri leiki fyrir félagið, 828 að tölu. Giggs lék 64 landsleiki fyrir Wales, þann síðasta árið 2007. Bakvörðurinn Gary Neville (f. 1975) er einnig ennþá hjá United enda þótt dregið hafi úr hlutverki hans með árunum, m.a. vegna þrálátra meiðsla. Hann hefur leikið 587 leiki fyrir félagið og unnið átta meist- aratitla. Neville á að baki 85 landsleiki fyr- ir England. Þess má geta að hann lék stöðu miðvarðar í ungmennaliðinu. Yfir eitt hundrað landsleikir Miðvellinginn David Beckham (f. 1975) þarf ekki að kynna. Hann er sennilega frægasti knattspyrnumaður sem uppi hef- ur verið enda þótt sú frægð tengist fleiru en fótmenntum. Hann lék 399 leiki fyrir United á árunum 1994 til 2003 og hampaði meistarabikarnum sex sinnum. Beckham varð einnig meistari á Spáni með Real Ma- drid árið 2007. Hann er nú á mála hjá Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum en er þessa dagana í láni hjá AC Milan á Ítalíu. Beckham er annar leikjahæsti landsliðs- maður Englands frá upphafi með 115 leiki. Miðvellingurinn Nicky Butt (f. 1975) hefur kannski ekki sömu hæfileikana og félagar hans þrír en hann á eigi að síður farsælan feril að baki. Hann lék 440 leiki fyrir United á árunum 1993 til 2004 og vann sex meistaratitla. Butt leikur nú með toppliði Newcastle United í ensku B- deildinni. Hann varði heiður Englands 39 sinnum. Fjórmenningarnir voru allir í sigurliði Manchester United í Meistaradeild Evrópu árið 1999. Þrír aðrir leikmenn úr ungmennabik- arsliðinu 1992 hafa leikið landsleiki fyrir hönd þjóða sinna. Enginn þeirra náði þó að festa sig í sessi hjá Manchester United. Kálfar úr gulli Lið Manchester United sem vann enska ung- mennabikarinn vorið 1992 þótti efnilegt. Engan óraði þó fyrir afrekunum sem hluti piltanna átti síðar eftir að vinna á ferlinum. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Beckham, Butt, Giggs og Neville með Evrópu- bikarinn ásamt félögum sínum vorið 1999. Ben Thornley Eric Harrison Robbie SavageChris Casper Keith Gillespie Ýmsir héldu að Sir Alex Ferguson væri genginn af göflunum þegar hann seldi þrjá af lyk- ilmönnum Manchester United sumarið 1995, Mark Hughes, Paul Ince og Andrei Kanchelskis, til að rýma til fyrir ungmennum. United hafði tapað Englandsmeistaratitlinum til Blackburn Ro- vers um vorið og stuðningsmennirnir gerðu fastlega ráð fyrir að valmenni myndu streyma inn en ekki út úr Leikhúsi draumanna. Ekki byrjaði sparktíðin heldur gæfulega, United lá 1:3 á Villa Park. Það var þá sem hinn virti sparkskýrandi Alan Hansen, fyrrverandi fyrirliði Liverpool, mælti þau fleygu orð: „Maður vinnur aldrei neitt með ungmennum.“ Newcastle United reykspólaði af stað þetta haust og hafði þegar mest var fjórtán stiga for- skot á hið unga lið Manchester United, meðalaldurinn var 24 ár. Smám saman óx ungu mönn- unum þó ásmegin og á endanum stóðu þeir uppi sem meistarar. Ekki nóg með það, United lagði Liverpool í úrslitaleiknum um bikarinn líka. Ýmsir tala um þrennuna 1999 sem mesta af- rek Sir Alex. Þessi árangur var hreint ekki síðri. Átta úr ungmennaliðinu 1992 komu við sögu meistaraliðs United veturinn 1995-96. Gary Neville, Nicky Butt, David Beckham og Ryan Giggs léku allir stórt hlutverk og John O’Kane, Ben Thornley, Simon Davies og Kevin Pilkington fengu allir að spreyta sig lítillega. Einnig komu tveir aðrir leikmenn úr akademíu félagsins töluvert við sögu, Phil Neville og Paul Scholes og sá þriðji, Terry Cooke, lék fjóra leiki. Þá var í liði United þennan vetur Lee nokkur Sharpe, sem kom barn- ungur til félagsins frá Torquay United. Hann skaut síðar upp kollinum suður með sjó. „Maður vinnur aldrei neitt með ungmennum“

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.