SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Síða 32
32 28. febrúar 2010
S
kömmu eftir að Sir Alex Ferguson
tók við stjórnvelinum hjá Man-
chester United af Ron Atkinson
síðla árs 1986 kallaði hann Eric
Harrison, knattspyrnustjóra ungmenna-
liðs félagsins, inn á skrifstofu til sín. Er-
indið var að krefja hann um fleiri góða
leikmenn. „Hvað áttu við?“ spurði Harr-
ison, sem var eldri en tvævetur í faginu, og
benti á Norman Whiteside, Mark Hughes,
Graeme Hogg og Clayton Blackmore. „Það
er ekki nóg. Við þurfum fleiri,“ svaraði Sir
Alex.
„Ekkert mál, lagsi. Við skulum gera með
okkur samkomulag,“ sagði Harrison.
„Útvegir þú mér meiri efnivið skal ég skila
fleiri mönnum upp í aðalliðið.“
Þeir tókust í hendur.
Sir Alex stóð við sitt, hann efldi „njósn-
ir“ Manchester United til muna og Harr-
ison fékk efniviðinn sem hann óskaði eftir.
Sá síðarnefndi lét ekki segja sér það tvisv-
ar, skilaði fræknustu kynslóð ungmenna
sem um getur í sögu ensku knattspyrn-
unnar. Gildir þá einu hvort horft er til
endingar eða árangurs.
Fyrsta afrek þessarar vösku sveitar var
að skila Manchester United ungmenna-
bikarnum vorið 1992. Piltarnir lögðu þá
jafnaldra sína hjá Crystal Palace í tveimur
leikjum, 3:1 og 3:2.
Í fyrri leiknum, sem fram fór á Selhurst
Park, gerðu miðvellingar United gæfu-
muninn, Nicky Butt skoraði í tvígang og
David Beckham einu sinni.
Í seinni leiknum, að viðstöddum fjórtán
þúsund áhorfendum á Old Trafford, önn-
uðust Ben Thornley, Simon Davies og Col-
in McKee markaskorun en maður leiksins
var á hinn bóginn Ryan nokkur Giggs.
Hann hafði um þær mundir unnið sér fast
sæti í aðalliði United en fékk góðfúslegt
leyfi hjá Sir Alex til að sletta úr klaufunum
með uppeldisbræðrum sínum.
32 meistaratitlar
Óvenju margir úr þessu frækna liði kom-
ust í fremstu röð, ekki bara í Englandi,
heldur í heiminum öllum, og allmargir
þeirra eru ennþá að, tæpum átján árum
síðar. Samtals hafa þeir leikið 429 lands-
leiki fyrir hönd þjóða sinna og unnið
hvorki fleiri né færri en 32 meistaratitla, 31
í Englandi og einn á Spáni.
Fjórir leikmenn bera höfuð og herðar
yfir aðra í þessu liði, Gary Neville, David
Beckham, Nicky Butt og Ryan Giggs.
Ekki þarf að hafa mörg orð um útherj-
ann Ryan Giggs (f. 1973). Hann er sig-
ursælasti leikmaður allra tíma í ensku
knattspyrnunni, vann á liðnu ári sinn ell-
efta meistaratitil. Ólíklegt er að það afrek
verði nokkru sinni jafnað. Það er raunar
svigrúm fyrir Giggs að bæta á sig blómum
en hann er sem kunnugt er ennþá í fullu
fjöri með Manchester United. Enginn
maður hefur leikið fleiri leiki fyrir félagið,
828 að tölu. Giggs lék 64 landsleiki fyrir
Wales, þann síðasta árið 2007.
Bakvörðurinn Gary Neville (f. 1975) er
einnig ennþá hjá United enda þótt dregið
hafi úr hlutverki hans með árunum, m.a.
vegna þrálátra meiðsla. Hann hefur leikið
587 leiki fyrir félagið og unnið átta meist-
aratitla. Neville á að baki 85 landsleiki fyr-
ir England. Þess má geta að hann lék stöðu
miðvarðar í ungmennaliðinu.
Yfir eitt hundrað landsleikir
Miðvellinginn David Beckham (f. 1975)
þarf ekki að kynna. Hann er sennilega
frægasti knattspyrnumaður sem uppi hef-
ur verið enda þótt sú frægð tengist fleiru
en fótmenntum. Hann lék 399 leiki fyrir
United á árunum 1994 til 2003 og hampaði
meistarabikarnum sex sinnum. Beckham
varð einnig meistari á Spáni með Real Ma-
drid árið 2007. Hann er nú á mála hjá Los
Angeles Galaxy í Bandaríkjunum en er
þessa dagana í láni hjá AC Milan á Ítalíu.
Beckham er annar leikjahæsti landsliðs-
maður Englands frá upphafi með 115 leiki.
Miðvellingurinn Nicky Butt (f. 1975)
hefur kannski ekki sömu hæfileikana og
félagar hans þrír en hann á eigi að síður
farsælan feril að baki. Hann lék 440 leiki
fyrir United á árunum 1993 til 2004 og
vann sex meistaratitla. Butt leikur nú með
toppliði Newcastle United í ensku B-
deildinni. Hann varði heiður Englands 39
sinnum.
Fjórmenningarnir voru allir í sigurliði
Manchester United í Meistaradeild Evrópu
árið 1999.
Þrír aðrir leikmenn úr ungmennabik-
arsliðinu 1992 hafa leikið landsleiki fyrir
hönd þjóða sinna. Enginn þeirra náði þó
að festa sig í sessi hjá Manchester United.
Kálfar úr gulli
Lið Manchester United sem vann enska ung-
mennabikarinn vorið 1992 þótti efnilegt. Engan
óraði þó fyrir afrekunum sem hluti piltanna átti
síðar eftir að vinna á ferlinum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Beckham, Butt, Giggs
og Neville með Evrópu-
bikarinn ásamt félögum
sínum vorið 1999.
Ben Thornley Eric Harrison Robbie SavageChris Casper Keith Gillespie
Ýmsir héldu að Sir Alex Ferguson væri genginn af göflunum þegar hann seldi þrjá af lyk-
ilmönnum Manchester United sumarið 1995, Mark Hughes, Paul Ince og Andrei Kanchelskis,
til að rýma til fyrir ungmennum. United hafði tapað Englandsmeistaratitlinum til Blackburn Ro-
vers um vorið og stuðningsmennirnir gerðu fastlega ráð fyrir að valmenni myndu streyma inn en
ekki út úr Leikhúsi draumanna.
Ekki byrjaði sparktíðin heldur gæfulega, United lá 1:3 á Villa Park. Það var þá sem hinn virti
sparkskýrandi Alan Hansen, fyrrverandi fyrirliði Liverpool, mælti þau fleygu orð: „Maður vinnur
aldrei neitt með ungmennum.“
Newcastle United reykspólaði af stað þetta haust og hafði þegar mest var fjórtán stiga for-
skot á hið unga lið Manchester United, meðalaldurinn var 24 ár. Smám saman óx ungu mönn-
unum þó ásmegin og á endanum stóðu þeir uppi sem meistarar. Ekki nóg með það, United
lagði Liverpool í úrslitaleiknum um bikarinn líka. Ýmsir tala um þrennuna 1999 sem mesta af-
rek Sir Alex. Þessi árangur var hreint ekki síðri.
Átta úr ungmennaliðinu 1992 komu við sögu meistaraliðs United veturinn 1995-96. Gary
Neville, Nicky Butt, David Beckham og Ryan Giggs léku allir stórt hlutverk og John O’Kane, Ben
Thornley, Simon Davies og Kevin Pilkington fengu allir að spreyta sig lítillega. Einnig komu tveir
aðrir leikmenn úr akademíu félagsins töluvert við sögu, Phil Neville og Paul Scholes og sá þriðji,
Terry Cooke, lék fjóra leiki. Þá var í liði United þennan vetur Lee nokkur Sharpe, sem kom barn-
ungur til félagsins frá Torquay United. Hann skaut síðar upp kollinum suður með sjó.
„Maður vinnur aldrei neitt með ungmennum“