SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Page 42
42 28. febrúar 2010
H
vað sem öðru líður verður það ekki af Kazan skafið að
hann var einn af yfirburðaleikstjórum 20. aldarinnar.
Skildi eftir sig klassísk verk á borð við Sporvagninn
girnd – A Streetcar Named Desire (’51); Á eyrinni –
On the Waterfront (́54) og Austan Eden – East of Eden (’55). Vann
til þrennra Óskarsverðlauna, 5 Tony-verðlauna og fernra Golden
Globe-hnatta.
Margir af þekktustu sviðs- og kvikmyndaleikurum síðustu ald-
ar blómstruðu undir handleiðslu hans, stórmenni á borð við Mar-
lon Brando, James Dean, Patriciu Neal, Vivian Leigh, Karl Malden
og Montgomery Clift, svo nokkur nöfn séu nefnd. Leikarar sem
unnu undir hans stjórn dáðu hann alla tíð.
Það er meira en hægt er að segja um alla í kvikmyndaheim-
inum, sökum þess að hann bar vitni fyrir ó-amerísku nefndinni,
en það var þingnefndin kölluð sem hafði hinar illræmdu „norna-
veiðar“ öldungadeildarþingmannsins Josephs McCarthy undir
höndum. Þessir atburðir áttu sér stað árið 1952, þegar róttæk öfl
sáu kommúnista í hverju horni í Bandaríkjunum. Ekki síst lista-
heiminum. Kazan sagði til 8 félaga sinna sem hann hafði sjálfur
starfað með í kommúnistaflokknum (sem á þessum tíma jafnaðist
á við landráð.) Kazan og félagar hans höfðu verið hallir undir
flokkinn allt frá því að þeir lifðu og störfuðu í leikhúsunum á
Broadway og víðar á kreppuárunum milli heimsstyrjaldanna.
Þegar Kazan tók við heiðurs-óskarsverðlaunum árið 1999, fjór-
um árum fyrir andlát sitt, opnuðust þau aftur sárin eftir vitn-
isburð hans á ógnartímum McCarthys.
Kvikmyndafræðingurinn Foster Hirsch, sem jafnframt er pró-
fessor við Brooklyn-háskólann, vonar að fólk geti sett þessa at-
burði aftur fyrir sig, fyrirgefið pólitísk mistök hans og einbeiti sér
að því að uppgötva afburða gáfur hans sem leikstjóri kvikmynda
og leikhúsverka.
Hirsch er ekki í minnsta vafa um að gæðaverk Kazans eftir 1950,
séu best leiknu myndir sögunnar. „Á þeim eru engin tímamörk“,
segir kvikmyndafræðingurinn, sem telur Baby Doll og Á eyrinni,
fremstar meðal jafningja. Báðar verða myndirnar á sýningum The
American Cinemateque; „Waterfronts and Streetcars: An Elia
Kazan Retrospective“, sem hefjast um næstu mánaðamót
Hirsch hefur látið þau orð falla um Kazan að hann hafi í raun
skapað nýjan, byltingarkenndan leikstíl, „the Method“, eða
raunsæisaðferðina, sem gaf leikurum tækifæri á að finna nýja dýpt
í sálfræðilegum raunveruleika persónunnar.
Hirsch mun stýra umræðum með leikurum úr myndum Kazans
á hverri sýningu, sú fyrsta verður hin stórfenglega A Face in the
Crowd, frá 1957. Þar gefur að líta Andy Grifffith í sínu besta formi
á ferlinum sem flæking frá Arizona sem slær í gegn í sjónvarpi á
kostnað þeirra sem standa honum næst. Þá verður einnig rætt við
óskarsverðlaunaleikkonuna Patriciu Neal, sem skóp sér nafn
undir öruggri stjórn Kazans. Síðan munu þau birtast hvert af
öðru; Eli Wallach (Baby Doll), sem sjálfur er kominn á tíræðisald-
urinn; Carroll Baker, sem fékk óskarsverðlaunatilnefningu fyrir
frábæran leik sem eggjandi stelputrippi, tottandi á sér þumalinn
og verðandi brúður í Suðurríkjunum. Terry Moore (Man on a Tig-
htrope ’53). O.fl. o.fl.
Síðasta stórmynd Kazans var America, America, frá 1963. Stór
og mikilfengleg epík byggð á lífi leikstjórans, ungs Tyrkja sem
varð uppnuminn af Bandaríkjunum og hélt vestur um haf við
fyrsta tækifæri. Hún er ekki aðeins hans persónulegasta mynd
heldur einnig sú sem honum þótti vænst um. Kvikmyndatöku-
snillingurinn Haskell Wexler mun fylgja verkinu úr garði ásamt
gríska leikaranum Stathis Giallelis, sem lék frænda Kazans í
myndinni.
Kazan-kynningin mun flakka um helstu borgir Vesturheims og
óskandi að það beri tilætlaðan árangur: Hreinsi nafn snillingsins
sem varð fótaskortur á einni myrkustu stund Bandaríkjanna fyrir
hartnær 60 árum. Þetta voru tímar ótta og ofsóknaræðis þar sem
enginn gat um frjálst höfuð strokið. En að því kom að hinum of-
stækisfulla öldungadeildarþingmanni og handbendi hans var vís-
að út í kuldann, en fórnarlömb liggja enn óbætt hjá garði.
Elia Kazan tók við heiðurs-óskarsverðlaunum árið 1999.
Reuters
Fær ofurleikstjóri uppreisn æru?
Elia Kazan skildi eftir sig stórvirki, m.a. nokkrar best leiknu myndir kvik-
myndasögunnar. Hann brotnaði einnig saman frammi fyrir ó-amerísku
nefndinni illræmdu og sagði til gamalla félaga sinna í kommúnistaflokkn-
um, blettur sem verið er að reyna að hreinsa af honum.
Sæbjörn Valdimarsson sæbjorn@heimsnet.is
Læknirinn, meinafræðingurinn í glæpa-
rannsóknum hjá CNN, Kay Scarpetta, er
vinsælasta hugarsmíð metsöluhöfund-
arins Patriciu Cornwell og nýtur þessi
höfuðsmíð skáldkonunnar mikilla vin-
sælda í flestum þjóðlöndum. Bækurnar
um lækninn eru orðnar einar 17 og láta
engan bilbug á sér finna í sölutölum.
Hollywood hefur barist í tvo áratugi að fá
keyptan kvikmyndarétt bókanna af frú
Cornwell og eytt himinháum upphæðum í
undirbúningsvinnuna, en jafnan án ár-
angurs til þessa. Cornwell hefur ekki sam-
þykkt verðandi Scarpetta-kandídata á
borð við Demi Moore og Kristin Scott
Thomas, frekar en leikstjórana Antoniu
Bird og Joel Schumacher. Cornwell hefur
látið hafa eftir sér að það sé erfitt að koma
á hana böndum, Scarpetta sé daðrari,
næsta áhugalaus um hjónaband.
En nú er björninn loksins unninn og
sem gerðar verða á bókaflokknum og stóð
hún í löngu og ströngu samningaferli við
kvikmyndaverið áður en skrifað var und-
ir.
Cornwell reyndi að selja Hollywood
fyrstu bókina árið 1990 fyrir vesæla
10.000 dali, og gerði það sem hún gat til að
fá Jodie Foster til að taka að sér hlutverk
Scarpetta. Síðla á 10. áratugnum reyndi
hún að aðlaga sömu bók kvikmyndaform-
inu, en það gekk ekki upp. Sony keypti
réttinn árið 2000 fyrir 5 milljónir dala og
fékk þá Robert Rodat og Stephen Schiff, til
að sjá um handritið en þær áætlanir sigldu
í strand. Þeir eru sárafáir höfundarnir sem
hafa átt bækur í efsta sæti metsölulistanna
sem aldrei hafa verið kvikmyndaðar, en
Cornwell lét ekki hugfallast. Hún hafði
samband við umboðsmann Jolie og eftir
talsvert þóf og málmiðlanir voru báðar
harðánægðar með sinn hlut.
Með því að byrja kvikmyndabálkinn á
glænýrri bók gefst Fox tækifæri til að upp-
færa allar eldri bækur til samtímans, en
margvísleg tækni og aðferðir í fyrstu bók-
unum eru löngu úreltar. Cornwell heldur
samt rétti til samþykkja allar breytingar
beitan ekki af verri endanum, eða kyn-
tröllið Angelina Jolie. Fox 2000, eitt af
deildum 20th Century Fox, náði að sann-
færa bæði stórstjörnuna og síðan metsölu-
höfundinn um að þarna væri Scarpetta lif-
andi komin í tignarlegum og
þrautþjálfuðum líkama Jolie, sem hefur
staðið sig vel í hasarmyndum á borð við
Mr and Mrs Smith, Wanted og myndunum
um Lauru Croft. Fyrirtækið ætlar að hefja
kvikmyndabálkinn um dr. Scarpetta á
glænýrri bók sem er ekki komin út á
prenti. Fox hyggst hefja tökur í haust og
verður kvikmyndagerðin unnin af írska
handritshöfundinum Kerry Williamson,
en ekki skáldkonunni sjálfri, sem segir að
fundur sem hún átti með Jolie hafi gert út-
slagið um söluna á kvikmyndaréttinum.
Hún valdi einnig hina lítt þekktu William-
son, tók hana fram yfir mörg mun þekkt-
ari nöfn.
Kvikmyndafréttir
Frú Pitt kemst í feitt
Leikkonan geðþekka Angelina Jolie.
Laugardagur 27.02. kl. 22:00. (STÖÐ 2
BÍÓ)
Hugsjónamenn í kennarastétt, er þekkt
umfjöllunarefni kvikmynda, sumra minn-
isstæðra, líkt og Stand and Deliver, Bekkjar-
félagið og The History Boys. Nú bætist Free-
dom Writers í hópinn, borin uppi af stórleik
Swanks í klæðskerasniðnu hlutverki kennslu-
konunnar Erin, sem tekur við bekk skipuðum
nemendum sem virðist ekki viðbjargandi.
Þeir eru fórnarlömb klíkustríða, ofbeldis og
ójafnaðar í fátækrahverfi í Los Angeles.
Myndin sýnir hvernig Erin, sem nánast ein
ber traust til og hefur trú á unglingunum, nær
til þeirra með því að byrja á að fræða þá um
helförina og gera gyðinga að samnefnara
minnihlutahópa og Þriðja ríkið að tákni valda-
klíknanna sem kúga. Lætur þau m.a. lesa
sögu skynsamrar stúlku sem upplifði hörm-
ungar og ofsóknir og nemendurnir geta borið
sig saman við, Önnu Frank.
Slíkar myndir eru fyrirsjáanlegar, en þessi
er byggð á raunverulegum atburðum og lætur
engan ósnortinn þrátt fyrir agnúa líkt og skeyt-
ingarleysi Erin um eigin hagi.
Leikstjóri: Richard LaGravenese. Aðalleik-
arar: Hilary Swank, Scott Glenn, Imelda
Staunton. bbbnn
Myndir vikunnar í sjónvarpi
Með pennann
að vopni
Kvikmyndir