SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 42

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 42
42 28. febrúar 2010 H vað sem öðru líður verður það ekki af Kazan skafið að hann var einn af yfirburðaleikstjórum 20. aldarinnar. Skildi eftir sig klassísk verk á borð við Sporvagninn girnd – A Streetcar Named Desire (’51); Á eyrinni – On the Waterfront (́54) og Austan Eden – East of Eden (’55). Vann til þrennra Óskarsverðlauna, 5 Tony-verðlauna og fernra Golden Globe-hnatta. Margir af þekktustu sviðs- og kvikmyndaleikurum síðustu ald- ar blómstruðu undir handleiðslu hans, stórmenni á borð við Mar- lon Brando, James Dean, Patriciu Neal, Vivian Leigh, Karl Malden og Montgomery Clift, svo nokkur nöfn séu nefnd. Leikarar sem unnu undir hans stjórn dáðu hann alla tíð. Það er meira en hægt er að segja um alla í kvikmyndaheim- inum, sökum þess að hann bar vitni fyrir ó-amerísku nefndinni, en það var þingnefndin kölluð sem hafði hinar illræmdu „norna- veiðar“ öldungadeildarþingmannsins Josephs McCarthy undir höndum. Þessir atburðir áttu sér stað árið 1952, þegar róttæk öfl sáu kommúnista í hverju horni í Bandaríkjunum. Ekki síst lista- heiminum. Kazan sagði til 8 félaga sinna sem hann hafði sjálfur starfað með í kommúnistaflokknum (sem á þessum tíma jafnaðist á við landráð.) Kazan og félagar hans höfðu verið hallir undir flokkinn allt frá því að þeir lifðu og störfuðu í leikhúsunum á Broadway og víðar á kreppuárunum milli heimsstyrjaldanna. Þegar Kazan tók við heiðurs-óskarsverðlaunum árið 1999, fjór- um árum fyrir andlát sitt, opnuðust þau aftur sárin eftir vitn- isburð hans á ógnartímum McCarthys. Kvikmyndafræðingurinn Foster Hirsch, sem jafnframt er pró- fessor við Brooklyn-háskólann, vonar að fólk geti sett þessa at- burði aftur fyrir sig, fyrirgefið pólitísk mistök hans og einbeiti sér að því að uppgötva afburða gáfur hans sem leikstjóri kvikmynda og leikhúsverka. Hirsch er ekki í minnsta vafa um að gæðaverk Kazans eftir 1950, séu best leiknu myndir sögunnar. „Á þeim eru engin tímamörk“, segir kvikmyndafræðingurinn, sem telur Baby Doll og Á eyrinni, fremstar meðal jafningja. Báðar verða myndirnar á sýningum The American Cinemateque; „Waterfronts and Streetcars: An Elia Kazan Retrospective“, sem hefjast um næstu mánaðamót Hirsch hefur látið þau orð falla um Kazan að hann hafi í raun skapað nýjan, byltingarkenndan leikstíl, „the Method“, eða raunsæisaðferðina, sem gaf leikurum tækifæri á að finna nýja dýpt í sálfræðilegum raunveruleika persónunnar. Hirsch mun stýra umræðum með leikurum úr myndum Kazans á hverri sýningu, sú fyrsta verður hin stórfenglega A Face in the Crowd, frá 1957. Þar gefur að líta Andy Grifffith í sínu besta formi á ferlinum sem flæking frá Arizona sem slær í gegn í sjónvarpi á kostnað þeirra sem standa honum næst. Þá verður einnig rætt við óskarsverðlaunaleikkonuna Patriciu Neal, sem skóp sér nafn undir öruggri stjórn Kazans. Síðan munu þau birtast hvert af öðru; Eli Wallach (Baby Doll), sem sjálfur er kominn á tíræðisald- urinn; Carroll Baker, sem fékk óskarsverðlaunatilnefningu fyrir frábæran leik sem eggjandi stelputrippi, tottandi á sér þumalinn og verðandi brúður í Suðurríkjunum. Terry Moore (Man on a Tig- htrope ’53). O.fl. o.fl. Síðasta stórmynd Kazans var America, America, frá 1963. Stór og mikilfengleg epík byggð á lífi leikstjórans, ungs Tyrkja sem varð uppnuminn af Bandaríkjunum og hélt vestur um haf við fyrsta tækifæri. Hún er ekki aðeins hans persónulegasta mynd heldur einnig sú sem honum þótti vænst um. Kvikmyndatöku- snillingurinn Haskell Wexler mun fylgja verkinu úr garði ásamt gríska leikaranum Stathis Giallelis, sem lék frænda Kazans í myndinni. Kazan-kynningin mun flakka um helstu borgir Vesturheims og óskandi að það beri tilætlaðan árangur: Hreinsi nafn snillingsins sem varð fótaskortur á einni myrkustu stund Bandaríkjanna fyrir hartnær 60 árum. Þetta voru tímar ótta og ofsóknaræðis þar sem enginn gat um frjálst höfuð strokið. En að því kom að hinum of- stækisfulla öldungadeildarþingmanni og handbendi hans var vís- að út í kuldann, en fórnarlömb liggja enn óbætt hjá garði. Elia Kazan tók við heiðurs-óskarsverðlaunum árið 1999. Reuters Fær ofurleikstjóri uppreisn æru? Elia Kazan skildi eftir sig stórvirki, m.a. nokkrar best leiknu myndir kvik- myndasögunnar. Hann brotnaði einnig saman frammi fyrir ó-amerísku nefndinni illræmdu og sagði til gamalla félaga sinna í kommúnistaflokkn- um, blettur sem verið er að reyna að hreinsa af honum. Sæbjörn Valdimarsson sæbjorn@heimsnet.is Læknirinn, meinafræðingurinn í glæpa- rannsóknum hjá CNN, Kay Scarpetta, er vinsælasta hugarsmíð metsöluhöfund- arins Patriciu Cornwell og nýtur þessi höfuðsmíð skáldkonunnar mikilla vin- sælda í flestum þjóðlöndum. Bækurnar um lækninn eru orðnar einar 17 og láta engan bilbug á sér finna í sölutölum. Hollywood hefur barist í tvo áratugi að fá keyptan kvikmyndarétt bókanna af frú Cornwell og eytt himinháum upphæðum í undirbúningsvinnuna, en jafnan án ár- angurs til þessa. Cornwell hefur ekki sam- þykkt verðandi Scarpetta-kandídata á borð við Demi Moore og Kristin Scott Thomas, frekar en leikstjórana Antoniu Bird og Joel Schumacher. Cornwell hefur látið hafa eftir sér að það sé erfitt að koma á hana böndum, Scarpetta sé daðrari, næsta áhugalaus um hjónaband. En nú er björninn loksins unninn og sem gerðar verða á bókaflokknum og stóð hún í löngu og ströngu samningaferli við kvikmyndaverið áður en skrifað var und- ir. Cornwell reyndi að selja Hollywood fyrstu bókina árið 1990 fyrir vesæla 10.000 dali, og gerði það sem hún gat til að fá Jodie Foster til að taka að sér hlutverk Scarpetta. Síðla á 10. áratugnum reyndi hún að aðlaga sömu bók kvikmyndaform- inu, en það gekk ekki upp. Sony keypti réttinn árið 2000 fyrir 5 milljónir dala og fékk þá Robert Rodat og Stephen Schiff, til að sjá um handritið en þær áætlanir sigldu í strand. Þeir eru sárafáir höfundarnir sem hafa átt bækur í efsta sæti metsölulistanna sem aldrei hafa verið kvikmyndaðar, en Cornwell lét ekki hugfallast. Hún hafði samband við umboðsmann Jolie og eftir talsvert þóf og málmiðlanir voru báðar harðánægðar með sinn hlut. Með því að byrja kvikmyndabálkinn á glænýrri bók gefst Fox tækifæri til að upp- færa allar eldri bækur til samtímans, en margvísleg tækni og aðferðir í fyrstu bók- unum eru löngu úreltar. Cornwell heldur samt rétti til samþykkja allar breytingar beitan ekki af verri endanum, eða kyn- tröllið Angelina Jolie. Fox 2000, eitt af deildum 20th Century Fox, náði að sann- færa bæði stórstjörnuna og síðan metsölu- höfundinn um að þarna væri Scarpetta lif- andi komin í tignarlegum og þrautþjálfuðum líkama Jolie, sem hefur staðið sig vel í hasarmyndum á borð við Mr and Mrs Smith, Wanted og myndunum um Lauru Croft. Fyrirtækið ætlar að hefja kvikmyndabálkinn um dr. Scarpetta á glænýrri bók sem er ekki komin út á prenti. Fox hyggst hefja tökur í haust og verður kvikmyndagerðin unnin af írska handritshöfundinum Kerry Williamson, en ekki skáldkonunni sjálfri, sem segir að fundur sem hún átti með Jolie hafi gert út- slagið um söluna á kvikmyndaréttinum. Hún valdi einnig hina lítt þekktu William- son, tók hana fram yfir mörg mun þekkt- ari nöfn. Kvikmyndafréttir Frú Pitt kemst í feitt Leikkonan geðþekka Angelina Jolie. Laugardagur 27.02. kl. 22:00. (STÖÐ 2 BÍÓ) Hugsjónamenn í kennarastétt, er þekkt umfjöllunarefni kvikmynda, sumra minn- isstæðra, líkt og Stand and Deliver, Bekkjar- félagið og The History Boys. Nú bætist Free- dom Writers í hópinn, borin uppi af stórleik Swanks í klæðskerasniðnu hlutverki kennslu- konunnar Erin, sem tekur við bekk skipuðum nemendum sem virðist ekki viðbjargandi. Þeir eru fórnarlömb klíkustríða, ofbeldis og ójafnaðar í fátækrahverfi í Los Angeles. Myndin sýnir hvernig Erin, sem nánast ein ber traust til og hefur trú á unglingunum, nær til þeirra með því að byrja á að fræða þá um helförina og gera gyðinga að samnefnara minnihlutahópa og Þriðja ríkið að tákni valda- klíknanna sem kúga. Lætur þau m.a. lesa sögu skynsamrar stúlku sem upplifði hörm- ungar og ofsóknir og nemendurnir geta borið sig saman við, Önnu Frank. Slíkar myndir eru fyrirsjáanlegar, en þessi er byggð á raunverulegum atburðum og lætur engan ósnortinn þrátt fyrir agnúa líkt og skeyt- ingarleysi Erin um eigin hagi. Leikstjóri: Richard LaGravenese. Aðalleik- arar: Hilary Swank, Scott Glenn, Imelda Staunton. bbbnn Myndir vikunnar í sjónvarpi Með pennann að vopni Kvikmyndir

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.