SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 44

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 44
44 28. febrúar 2010 Thom Yorke og spilafélagar hans í hljóm- sveitinni Atoms For Peace. Það eru fleiri en Jónsi sem gerst hafa ein- herjar í tónlistinni, tímabundið að minnsta kosti, því Thom Yorke, söngspíra Radio- head, hefur sett saman hljómseit sem fylgja á eftir sólóverkefnum hans. Sveitin sú hefur fengið nafnið Atoms For Peace og mun með- al annars leika á Coachella-tónlistarhátíð- inni og átta tónleikum vestanhafs til við- bótar. Félagar Yorkes í sveitinni eru ekki af verri endanum: Nigel Godrich, Joey War- onker, Mauro Refosco og Flea. Einherjaferðalag Thoms Yorkes Jón Þór Birgisson hyggst leggjast í ferðalög á árinu að kynna breiðskífuna Go. Jón Þór Birgisson, eða bara Jónsi, er nú að gyrða sig í brók og gá að vopnum sínum fyrir væntanlega útgáfu á breiðskífunni Go, en platan kemur út 5. apríl næstkomandi. Tón- leikaferð til að kynna skífuna hefst þó fyrr og skammt er í að Jónsi haldi til Bretlands að æfa sveit sína fyrir tónleikaferð sem standa á fram eftir ári. Fyrstu tónleikarnir verða víst leynitónleikar í Lundúnum, en svo hefst op- inber tónleikaferð 6. apríl í Vancouver í Kan- ada. Þeir sem ekki eiga heimangengt vestur um hafa geta beðið til 26. maí og séð hann í Lundúnum, nú eða brugðið sér til Barcelona, en nýjustu fréttir herma að Jónsi muni troða þar upp á Sonar-hátíðinni 19. júní. Jónsi leggst í ferða- lög um heim allan Í Hænuungunum hans Braga Ólafssonar, sem frumsýndir voru í Þjóðleihúsinu á laug- ardagskvöld, bregður fyrir blás- aranum Eli „Lucky“ Thompson, eða nánar tiltekið tónlist af skífu hans Tricotism, sem kom út 1956 hjá Impulse!-útgáfunni. Thompson var samtíðarmaður Johns Coltranes og blés í tenórsaxófón líkt og hann. ’Trane sló í gegn, varð svo vinsæll að segja má að hann hafi komið Impulse! á kortið, en þótt menn dái enn Coltrane er Thompson gleymdur að mestu leyti og það að ósekju. Músíkin á Tricotism var tekin upp í tveimur tveggja daga lotum, annarri í jan- úar og hinni í desember og sama skipan á í bæði skiptin; fyrri daginn tríó- upptaka og þann seinni kvin- tett. Tríóið skipuðu Thompson á saxófón, Skeeter Best á gítar og Oscar Pettiford á bassa, en í kvintettinum voru auk Thomp- sons og Pettifords þeir Jimmy Cleveland á básúnu í öllum lög- unum nema einu og Osie Johnson á trommur, líka í öllum lögunum nema einu, og svo skiptu Hank Jones og Don Abney píanóspilinu á milli sín. Allt er þetta sjörnumannskapur og ekk- ert út á spilamennskuna að setja, en held- ur eru þó kvintettópusarnir venjulegri, ef svo má segja, og mun skemmtilegra að hlusta á tríóupptökurnar. Í þeim blómstr- ar Thompson, gengur lengra í spunanum. Best er fyrirtaks gítarleikari, smekklegur og nákvæmur og Pettiford fer líka á kost- um á bassann og sérlega gaman að heyra spilamennskuna hjá þeim félögum öllum í laginu Tricotism. Af Lucky Thompson er annars það að segja að viðurnefnið átti alls ekki við hans ævi; hann missti móður sína ungur og ólst upp við mikla fátækt og erfiðleika. Hann féll snemma fyrir saxófóninum en komst ekki í alvöru hljóðfæri svo hann æfði sig á kústskafti sem hann hafði tálgað hnappa á. Hann komst svo yfir saxófón fyrir al- gjöra hundaheppni og spilaði síðar með mörgum af helstu djasssveitum Banda- ríkjanna. Á áttunda áratugnum dró hann sig út úr tónlistinni og bjó á götunni árum saman. arnim@mbl.is Poppklassík: Tricotism – Lucky Thompson Tríó, kvintett og Lucky Thompson E nginn listamaður í dægurtónlist- arsögunni hefur snúið aftur með viðlíka reisn og Johnny Cash. Eins og svo margir sveitatónlistarmenn á svipuðu reki upplifði hann þurrkatíð mikla um miðjan níunda áratuginn og á endanum var honum sparkað af útgáfunni sinni sem hann hafði malað gull fyrir í áratugi. Rick Rubin, þekktur í rapp- og rokk- kreðsum sem upptökustjóri með sannkallaða Mídasargáfu, lóðsaði Cash svo inn á útgáfu sína, American Recordings, árið 1994 og tók upp fyrstu plötuna í hinni svonefndu „Am- erican“-röð. Platan sló í gegn, kynnti Cash fyrir nýjum hlustendahópi, en á matseðlinum var blanda af lögum Cash, annarra sveita- tónlistarmanna og svo yngri höfunda, eins og Glenns Danzigs og Toms Waits. Þessi útgáfu- röð varð einkar farsæl en síðasta platan fyrir andlát Cash árið 2003 var American IV: The Man Comes Around (2002). Platan nýja er önnur platan sem kemur út eftir andlátið, árið 2006 kom platan American V: A Hundred Highways út og byggjast báðar plöturnar á upptökulotu sem fór fram árið 2003, um sumarið og fram á haust. Þessi síðasta plata er líklega sú lágstemmd- asta af þeim öllum, yfir henni er styrkjandi og rólyndislegur andi þess sem veit að endirinn er að nálgast. Maður finnur fyrir sátt og æðru- leysi, á köflum heyrir maður hvernig röddin er farin að lækka en aldrei brestur hún. Cash rúllar í gegnum lög eftir Sheryl Crow og Kris Kristofferson m.a., hér er að finna síðasta lag- ið sem hann samdi, „I Corinthians 15:55“, og hér er dásamleg útgáfa af staðlinum „Satisfied Mind“. Cash kveður svo með „Aloha Oe“, lagi eftir fyrrverandi drottningu Hawaii, Lili’uo- kalani. Þar segir m.a.: „One fond embrace/ before I now depart/Until we meet again, un- til we meet again …“ En er þetta svo virkilega síðasta platan í þessari röð? Dæmin hafa sannað, undanfarin ár, að sífellt eru að „finnast“ ný lög og áður óheyrð hjá gildandi listamönnum. 2Pac Shak- ur var aldrei jafnvirkur og eftir að hann hafði snúið tám upp í loft, og gaf út tvöfalda geisla- diska á hverju ári að manni fannst. Myndi maður þá stökkva á American VII: A Message from Heaven? Hmm … ég er eiginlega ansi hræddur um að maður myndi uppveðrast yfir slíkum fréttum og gleyma á stundinni öllum yfirlýsingum um að platan á undan hafi verið lokalokaplatan. Ég meina, það er ekki eins og við séum að tala um Police Academy hérna. Þetta er Cash! Kveðja að handan Sjötta og síðasta platan í American-röð Johnnys Cash er komin út. Ber hún hinn viðeigandi titil Ain’t No Grave, og inniheldur allra síðustu upptökur goðsagnarinnar. Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Johnny Cash var eitursvalur alla tíð, og fyrir tilstuðlan töfralæknisins Ricks Rubins smaug hann inn í hjarta X-kynslóðarinnar. Var það ekki Sherlock Hol- mes sem sagði eitthvað á þá leið að þegar svarið væri augljóst kæmi maður ekki auga á það? Þegar Rick Rubin var fengið það hlut- verk að vinna með Johnny Cash datt hann niður á hugmynd sem var svo ein- föld, að hún reyndist hreinasta snilld. Hann stillti einum hljóðnema fyrir framan Cash, færði honum gítar í hönd og fór svo út á verönd og leyfði hinum aldna höfðingja að vera í friði. Afraksturinn var sex plötur; sem ein- kennast af berstrípaðri, sumpart drungalegri feg- urð þar sem djúpur bari- tónn Cash smýgur inn í merg og bein. Umslag nýju plötunnar. Cash end- urreistur Tónlist Besta plata Rolling Stones er að flestra mati Exile on Main Street, sem þó var gagnrýnd fyrir það á sínum tíma hvað hún væri löng enda tvöföld. Á hátíðarútgáfu hennar sem kemur út í maí lengist hún enn, því tíu lögum verður skeytt við sem aldrei hafa heyrst og tveimur lögum til í öðrum búningi. Að auki fylgir heimildarmynd um gerð plötunnar. Hluti af magnaðri myndskreytingu bestu skífu Rollinganna: Exile on Main Street. Aukin útgáfa Exile on Main Street

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.