SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 45

SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Side 45
28. febrúar 2010 45 Íslenski dansflokkurinn 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Endalaus - Febrúarsýning2010 (Stóra sviðið) Sun 28/2 kl. 20:00 Sun 7/3 kl. 20:00 Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Sun 11/4 kl. 16:00 Sun 18/4 kl. 16:00 Fös 23/4 kl. 20:00 Fös 30/4 kl. 20:00 Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Gunni Þórðar - Lífið og lögin (Söguloftið) Fös 5/3 kl. 20:00 Ö Lau 13/3 kl. 17:00 Ö Fös 19/3 kl. 20:00 Lau 27/3 kl. 17:00 Ö Fim 1/4 kl. 20:00 Fös 9/4 kl. 20:00 Jón Gnarr. Lifandi í Landnámssetri (Söguloftið) Lau 6/3 kl. 20:00 Fös 12/3 kl. 20:00 Lau 20/3 kl. 20:00 Fös 26/3 kl. 20:00 Lau 3/4 kl. 20:00 Lau 10/4 kl. 20:00 Íslenska óperan 511 4200 | midasala@opera.is Vetrarferðin eftir Franz Schubert - Jóhann Smári Sævarsson og Kurt Kopecky Sun 28/2 kl. 20:00 Aðeins þessi eina sýning! Aida - Ástarþríhyrningurinn- Elín Ósk, Jóhann Friðgeir og Hörn Hrafnsdóttir Fös 5/3 kl. 20:00 Aðeins þessi eina sýning! Hellisbúinn Fim 4/3 kl. 20:00 Lau 27/3 kl. 20:00 Vinsælasti einleikur allra tíma! Hafnarfjarðarleikhúsið 555 2222 | theater@vortex.is Ufsagrýlur (Hafnarfjarðarleikhúsið) Sun 28/2 kl. 20:00 Fös 5/3 kl. 20:00 Lau 13/3 kl. 20:00 Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F Föstudagur Einar Bárðarson: Hvaða rugl er þetta? Ég má ekki samþykkja fleiri vini á Facebook nema ég hendi einhverjum út! Má sem sagt ekki eiga fleiri vini en 4.927! What is the world coming to? Sindri Freysson: Ég gruna Jón Kalman um að hafa skrifað allan þennan snjó. Fimmtudagur Þorgrímur Þráinsson: You may say I’m a dreamer. But I’m not the only one … Kristín Svava: joined the group Ég hata það þegar ég er að labba í kirkjugarði með lugt og Gyrðir Elíasson er að elta mig. Kristján B. Jónasson: Les sög- una um Frankenstein á kvöldin fyrir soninn. „Hver er Paracelsus, pabbi?“ er spurning sem fær mann til að halla sér aftur í sæt- inu og segja, „sko …“ Við erum að hugsa um að opna gullgerð- arlistarverkstæði hér í húsinu. Edda Björg Eyjólfsdóttir: Á fyndn- asta mann í heimi. Björn Þorláksson: veit ekkert yndislegra en börn. Starkaður grýtir gafflinum sínum út í vegg við matborðið í andartaks þreytu- kasti. Mamma hans hrópar: „Heyrðu, hvað er þetta, Stark- aður?“ Sá stutti svarar að bragði: „Þetta? Þetta er gaffall, mamma.“ Miðvikudagur Rúnar Sigurpálsson: Næstum al- kul í samfélaginu en samt er verðbólgudraugurinn sprelllifandi! Ásta Andrésdóttir: Er hægt að óverdósa á rauðum ópal? Mánudagur Elísabet Kristín Jökulsdóttir: Það er stjörnubjart og himinhvolfið svo tignarlegt og fallegt, skínandi stjörnur, vinir mínir, alltaf á sama stað, af hverju ætti ég að vera að flytja? Fésbók vikunnar flett Aðbúnaður skólabarna er misgóð- ur og hér á landi þykir foreldrum gjarnan óásættanlegt þurfi börn þeirra að eyða deginum í svoköll- uðum lausum kennslustofum; færanlegum, tímabundnum skóla- stofum sem standa á skólalóð, skammt frá aðalbyggingunni. Í þorpinu Miao í Kína gerir fólk hinsvegar ekki miklar kröfur. Und- anfarinn aldarfjórðung hefur grunnskólakennsla farið fram í risastór- um helli sem náttúruöflin hafa sorfið inn í fjall um mörgþúsund ára skeið. Skólinn heitir Dongzhong sem þýðir á íslensku „í helli.“ Tvö hundruð börn mæta í hellinn að jafnaði dag hvern en hann hýsir kennslurými og leikvelli. Staðurinn Hér sést vel hversu gríðarstór hellirinn er og er stærð hans jafnan líkt við flugskýli. Kennsla í helli Um tvö hundruð nemendur ganga í Dongzhong. A ðeins 16 ára gömul var Amy Fisher orðin al- ræmd í Bandaríkj- unum, og jafnvel víð- ar. Hún bjó á Long Island og átti í ástarsambandi við giftan mann, Joey Buttafuoco, sem var tuttugu árum eldri en hún. Dag nokkurn í maí 1992 mætti Fisher heim til Buttafuoco og skaut konuna hans, Mary Jo, í höfuðið. Butta- fuoco var ekki heima. Mary Jo lifði af og eftir lýsingu hennar á árásarmanninum handsamaði lögreglan Fisher. Ástarævintýrið komst upp, Fisher sat inni í sjö ár og Buttafuoco í hálft ár fyrir nauðgun, þar sem Fisher var undir lögaldri. Lengi vel var Fis- her kölluð Long Island Lolita í fjölmiðlunum og enn í dag er vís- að til hennar í blöðum með þessu nafni. Svo mikla athygli vakti málið að ári síðar kom út myndin The Amy Fisher Story með Drew Barrymore í aðalhlutverki. Fisher losnaði úr fangelsi árið 1999, gerðist blaðamaður og gift- ist skömmu síðar. Vann hún m.a.s. til verðlauna fyrir skrif sín auk þess sem hún skrifaði bók um lífsreynslu sína. Fyrir nokkr- um árum komust Fisher og eig- inmaður hennar í fréttirnar eftir að sá síðarnefndi seldi þekktu klámmyndafyrirtæki upptöku sem sýndi þau hjónin í ást- aratlotum og Fisher nakta í sól- baði og í sturtu. Fisher fór í mál en skömmu síðar samdi hún við fyrirtækið og samþykkti að halda kynningarfund í tengslum við útgáfu myndbandsins. Hún og eiginmaðurinn sömdu einnig frið. Þarna virtist Fisher hafa fundið bransa við sitt hæfi. Aðeins ári eftir að heimagerða kynlífs- myndbandið var gert opinbert lék Fisher, þriggja barna móð- irin, í eigin klámmynd, Amy Fis- her: Nakin og berskjölduð. Hún setti á stofn klámsíðu þar sem sjá má hana í fangbrögðum við ung- ar, lögulegar konur og kemur fram á nektardansstöðum einu sinni í mánuði. Síðustu fréttir af Fisher bárust í lok janúar þegar hún tilkynnti að hún myndi gefa hluta af þjórfé sínu fyrir strípi- dansinn til að hjálpa fórn- arlömbum jarðskjálftans á Haítí. Það munar um minna. Amy Fisher sat inni í sjö ár eftir að hafa skotið konu ástmanns síns. Fisher hefur nú lifibrauð af klámvefsíðu og súludansi. Hvað varð um ... Amy Fisher? ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Mbl., GB Mbl., IÞ Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200 GERPLA 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Upplýsingar um sýningar á Borgarleikhus.is

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.