SunnudagsMogginn - 28.02.2010, Qupperneq 45
28. febrúar 2010 45
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Endalaus - Febrúarsýning2010 (Stóra sviðið)
Sun 28/2 kl. 20:00 Sun 7/3 kl. 20:00
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Sun 11/4 kl. 16:00
Sun 18/4 kl. 16:00
Fös 23/4 kl. 20:00
Fös 30/4 kl. 20:00
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
Gunni Þórðar - Lífið og lögin (Söguloftið)
Fös 5/3 kl. 20:00 Ö
Lau 13/3 kl. 17:00 Ö
Fös 19/3 kl. 20:00
Lau 27/3 kl. 17:00 Ö
Fim 1/4 kl. 20:00
Fös 9/4 kl. 20:00
Jón Gnarr. Lifandi í Landnámssetri (Söguloftið)
Lau 6/3 kl. 20:00
Fös 12/3 kl. 20:00
Lau 20/3 kl. 20:00
Fös 26/3 kl. 20:00
Lau 3/4 kl. 20:00
Lau 10/4 kl. 20:00
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Vetrarferðin eftir Franz Schubert - Jóhann Smári
Sævarsson og Kurt Kopecky
Sun 28/2 kl. 20:00
Aðeins þessi eina sýning!
Aida - Ástarþríhyrningurinn- Elín Ósk, Jóhann
Friðgeir og Hörn Hrafnsdóttir
Fös 5/3 kl. 20:00
Aðeins þessi eina sýning!
Hellisbúinn
Fim 4/3 kl. 20:00 Lau 27/3 kl. 20:00
Vinsælasti einleikur allra tíma!
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Ufsagrýlur (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Sun 28/2 kl. 20:00
Fös 5/3 kl. 20:00
Lau 13/3 kl. 20:00
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Föstudagur
Einar Bárðarson: Hvaða rugl er
þetta? Ég má ekki samþykkja
fleiri vini á Facebook nema ég
hendi einhverjum út! Má sem
sagt ekki eiga fleiri vini en 4.927!
What is the world coming to?
Sindri Freysson: Ég gruna Jón
Kalman um að hafa skrifað allan
þennan snjó.
Fimmtudagur
Þorgrímur Þráinsson: You may
say I’m a dreamer. But I’m not
the only one …
Kristín Svava: joined the group
Ég hata það þegar ég er að labba
í kirkjugarði með lugt og Gyrðir
Elíasson er að elta mig.
Kristján B. Jónasson: Les sög-
una um Frankenstein á kvöldin
fyrir soninn. „Hver er Paracelsus,
pabbi?“ er spurning sem fær
mann til að halla sér aftur í sæt-
inu og segja, „sko …“ Við erum
að hugsa um að opna gullgerð-
arlistarverkstæði hér í húsinu.
Edda Björg Eyjólfsdóttir: Á fyndn-
asta mann í heimi.
Björn Þorláksson: veit ekkert
yndislegra en börn. Starkaður
grýtir gafflinum sínum út í vegg
við matborðið í andartaks þreytu-
kasti. Mamma hans hrópar:
„Heyrðu, hvað er þetta, Stark-
aður?“ Sá stutti svarar að bragði:
„Þetta? Þetta er gaffall,
mamma.“
Miðvikudagur
Rúnar Sigurpálsson: Næstum al-
kul í samfélaginu en samt er
verðbólgudraugurinn sprelllifandi!
Ásta Andrésdóttir: Er hægt að
óverdósa á rauðum ópal?
Mánudagur
Elísabet Kristín Jökulsdóttir: Það
er stjörnubjart og himinhvolfið
svo tignarlegt og fallegt, skínandi
stjörnur, vinir mínir, alltaf á sama
stað, af hverju ætti ég að vera að
flytja?
Fésbók vikunnar flett
Aðbúnaður skólabarna er misgóð-
ur og hér á landi þykir foreldrum
gjarnan óásættanlegt þurfi börn
þeirra að eyða deginum í svoköll-
uðum lausum kennslustofum;
færanlegum, tímabundnum skóla-
stofum sem standa á skólalóð,
skammt frá aðalbyggingunni.
Í þorpinu Miao í Kína gerir fólk
hinsvegar ekki miklar kröfur. Und-
anfarinn aldarfjórðung hefur grunnskólakennsla farið fram í risastór-
um helli sem náttúruöflin hafa sorfið inn í fjall um mörgþúsund ára
skeið. Skólinn heitir Dongzhong sem þýðir á íslensku „í helli.“ Tvö
hundruð börn mæta í hellinn að jafnaði dag hvern en hann hýsir
kennslurými og leikvelli.
Staðurinn
Hér sést vel hversu gríðarstór
hellirinn er og er stærð hans
jafnan líkt við flugskýli.
Kennsla í helli
Um tvö hundruð nemendur ganga
í Dongzhong.
A
ðeins 16 ára gömul var
Amy Fisher orðin al-
ræmd í Bandaríkj-
unum, og jafnvel víð-
ar. Hún bjó á Long Island og átti í
ástarsambandi við giftan mann,
Joey Buttafuoco, sem var tuttugu
árum eldri en hún. Dag nokkurn
í maí 1992 mætti Fisher heim til
Buttafuoco og skaut konuna
hans, Mary Jo, í höfuðið. Butta-
fuoco var ekki heima. Mary Jo
lifði af og eftir lýsingu hennar á
árásarmanninum handsamaði
lögreglan Fisher. Ástarævintýrið
komst upp, Fisher sat inni í sjö ár
og Buttafuoco í hálft ár fyrir
nauðgun, þar sem Fisher var
undir lögaldri. Lengi vel var Fis-
her kölluð Long Island Lolita í
fjölmiðlunum og enn í dag er vís-
að til hennar í blöðum með þessu
nafni. Svo mikla athygli vakti
málið að ári síðar kom út myndin
The Amy Fisher Story með Drew
Barrymore í aðalhlutverki.
Fisher losnaði úr fangelsi árið
1999, gerðist blaðamaður og gift-
ist skömmu síðar. Vann hún
m.a.s. til verðlauna fyrir skrif sín
auk þess sem hún skrifaði bók
um lífsreynslu sína. Fyrir nokkr-
um árum komust Fisher og eig-
inmaður hennar í fréttirnar eftir
að sá síðarnefndi seldi þekktu
klámmyndafyrirtæki upptöku
sem sýndi þau hjónin í ást-
aratlotum og Fisher nakta í sól-
baði og í sturtu. Fisher fór í mál
en skömmu síðar samdi hún við
fyrirtækið og samþykkti að halda
kynningarfund í tengslum við
útgáfu myndbandsins. Hún og
eiginmaðurinn sömdu einnig
frið.
Þarna virtist Fisher hafa fundið
bransa við sitt hæfi. Aðeins ári
eftir að heimagerða kynlífs-
myndbandið var gert opinbert
lék Fisher, þriggja barna móð-
irin, í eigin klámmynd, Amy Fis-
her: Nakin og berskjölduð. Hún
setti á stofn klámsíðu þar sem sjá
má hana í fangbrögðum við ung-
ar, lögulegar konur og kemur
fram á nektardansstöðum einu
sinni í mánuði. Síðustu fréttir af
Fisher bárust í lok janúar þegar
hún tilkynnti að hún myndi gefa
hluta af þjórfé sínu fyrir strípi-
dansinn til að hjálpa fórn-
arlömbum jarðskjálftans á Haítí.
Það munar um minna.
Amy Fisher sat inni í sjö ár eftir að hafa skotið konu ástmanns síns.
Fisher hefur nú lifibrauð af klámvefsíðu og súludansi.
Hvað varð um ...
Amy
Fisher?
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Mbl., GB
Mbl., IÞ
Nánar á leikhusid.is Sími miðasölu 551 1200
GERPLA
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Upplýsingar um sýningar á
Borgarleikhus.is