SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Side 6
6 7. mars 2010
A
llt útlit er fyrir æð-
isgenginn endasprett
í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu á
þessu vori. Mótið hefur um
margt spilast óvenjulega og þeg-
ar tíu umferðir eru óleiknar eiga
þrjú lið býsna góða möguleika á
meistaratitlinum, Chelsea, Man-
chester United og Arsenal.
Undanfarin tíu ár hafa meist-
araliðin í Englandi tapað að með-
altali 3,7 leikjum á vetri. Flestum
tapaði Manchester United 2000-
01, sex talsins, en Arsenal fæst-
um, ekki einum einasta, 2003-
04. Chelsea hefur þegar lotið
fimm sinnum í gras á yfirstand-
andi leiktíð og Manchester Unit-
ed og Arsenal sex sinnum. Man-
chester City hefur raunar aðeins
tapað fjórum leikjum en tíu jafn-
tefli gera það af verkum að liðið
er tólf stigum frá toppnum enda
þótt það eigi leik til góða. Það er
að líkindum of breitt bil að brúa,
jafnvel í þessu undarlega árferði.
Meðalstigafjöldi ensku meist-
araliðanna undanfarinn áratug er
88,3 stig. Chelsea á stigametið,
95 stig frá 2004-05 en 2000-01
dugðu 80 stig Manchester United
til að landa titlinum. Chelsea er á
toppi deildarinnar núna með 61
stig og gæti því í besta falli lokið
keppni með 91 stig. Eins og mót-
ið hefur þróast verður að teljast
afar hæpið að eitt toppliðanna
vinni alla sína leiki fram á vorið
og því eru yfirgnæfandi líkur á
því að deildin vinnist á færri stig-
um en 88. Nær örugglega koma
85 stig til með að duga.
Toppliðin þrjú hafa leikið á als
oddi á heimavelli í vetur, Chelsea
og United hafa unnið tólf af fjór-
tán leikjum sínum þar og Arsenal
ellefu. Úti hafa þau öll unnið sjö
leiki af fjórtán. Samtals hafa
toppliðin þrjú tapað sautján
leikjum, þar af þrettán á útivelli.
Til samanburðar má geta að þrjú
efstu liðin í fyrra, United, Liver-
pool og Chelsea, töpuðu aðeins
ellefu leikjum allan veturinn.
Líkið reyndist með lífsmarki
Sú staðreynd að Arsenal sé aftur
komið í bullandi baráttu um tit-
ilinn er til marks um tor-
kennilegheit sparktíðarinnar.
Manchester United ók yfir
Skytturnar á Emirates-
leikvanginum í lok janúar og
Chelsea bakkaði yfir líkið viku
síðar. Öll sund virtust lokuð.
Síðan hefur Arsenal fengið fullt
hús stiga úr þremur leikjum á
meðan Chelsea hefur aðeins nælt
í þrjú stig og United fjögur. Sé
mið tekið af þessari þróun gæti
þess vegna allt önnur staða verið
komin upp í lok mánaðarins.
Ýmsir eru á því að Arsenal eigi
auðveldustu leikina eftir, þeirra á
meðal Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester United
– ef hægt er að tala um auðvelda
leiki á þessu stigi móts.
Engum blöðum er hins vegar
um það að fletta að Chelsea á erf-
iðustu dagskrána fyrir höndum.
Liðið á meðal annars eftir að
mæta Tottenham og Liverpool á
útivelli, auk risaslagsins við
Manchester United í Leikhúsi
draumanna 3. apríl. Á móti kem-
ur að heimaleikirnir virka auð-
veldir á pappírunum. Það veikir
lið Chelsea verulega þessa dagana
að þrír lykilmenn eru frá vegna
meiðsla, Petr Cech, Ashley Cole
og Michael Essien. Raunar hafa
öll toppliðin lent í meiðslavand-
ræðum í vetur, nægir þar að
nefna stórmenni á borð við Rio
Ferdinand og Nemanja Vidić hjá
United og Robin van Persie og
Theo Walcott hjá Arsenal.
United á eftir að mæta fjórum
af efstu liðunum sex, þar af
þremur heima, Chelsea, Liver-
pool og Tottenham. Þá eiga þeir
Fergusynir eftir að glíma við
samborgara sína í Manchester
City á útivelli.
Þar munu bein skjálfa.
Hverjir hreppa hnossið?
Æðisgenginn endasprettur framundan í ensku
úrvalsdeildinni þar sem þrjú félög kljást um gullið
Vikuspegill
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Reuters
Þeir hafa borið höfuð og herðar yfir aðra leikmenn í Englandi í vetur: Wayne Rooney, Manchester United; Didier Drogba, Chelsea og Cesc Fàbregas, Arsenal. Þeir hafa gert 69 mörk.
Leikirnir sem toppliðin eiga
eftir:
Chelsea: West Ham (h),
Blackburn (ú), Portsmouth
(ú), Aston Villa (h), Man. Utd
(ú), Bolton (h), Tottenham (ú),
Stoke (h), Liverpool (ú), Wig-
an (h).
Man. Utd: Wolves (ú), Fulham
(h), Liverpool (h), Bolton (ú),
Chelsea (h), Blackburn (ú),
Man. City (ú), Tottenham (h),
Sunderland (ú), Stoke (h).
Arsenal: Burnley (h), Hull (ú),
West Ham (h), Birmingham
(ú), Wolves (h), Tottenham
(ú), Wigan (ú), Man. City (h),
Blackburn (ú), Fulham (h).
! ! " # $ "
#
% &' ( ' !)** '$ *
! "#
$! " %&
'! "
()
**
& & %
+
Baráttan um fjórða sætið, sem
gefur þátttökurétt í Meist-
aradeild Evrópu næsta vetur, er
ekki síður hörð. Fjögur félög hafa
ósvikinn áhuga á því sæti, Totten-
ham og Manchester City, sem
hafa 49 stig, Liverpool, sem hefur
48 stig og Aston Villa, sem hefur
45 stig en á tvo leiki til góða á
Liverpool og Tottenham og einn á
City.
Stóru félögin fjögur, Chelsea,
Manchester United, Arsenal og
Liverpool, hafa einokað efstu
sætin fjögur frá árinu 2005.
Einnig barist um fjórða sætið
Leikur Manchester City eða Liver-
pool í Meistaradeildinni að ári?
Reuters