SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Page 12
12 7. mars 2010
B
laðamaður er búinn
að torga nokkrum
kaffibollum á Segaf-
redo þegar Dagur
Kári birtist loks, heldur seinn
á ferð en það er auðveldlega
fyrirgefið, hann er svo vina-
legur og blátt áfram. ekki ann-
að hægt en að fyrirgefa slíkum
mönnum. Dagur Kári fær sér
te í götumáli og við röltum yf-
ir að skrifstofu hans í Hafn-
arstræti. Þar bíður okkar ljós-
myndarinn Árni Sæberg og
Dagur er umsvifalaust dreginn
í myndatöku. Hann virðist
ekki hafa gaman af slíkum fyr-
irsætustörfum enda vanur því
að vera hinum megin við lins-
una. Hann fær að vísu að
plokka á bakpokagítarinn sinn
og virðist þá gleyma ljós-
myndaranum um stund. Árni
kveður og Dagur fær að
drekka ávaxtateið sitt.
The Good Heart segir af geð-
stirðum kráareiganda, Jacques,
sem fær sitt fimmta hjartaáfall
og kynnist Lucas, ungum úti-
gangsmanni, á sjúkrahúsi. Jac-
ques tekur Lucas undir sinn
verndarvæng og gerir hann að
læirsveini sínum á kránni,
enda ætlun hans að Lucas taki
við rekstrinum að honum
liðnum. Jacques er kominn á
endastöð, hjartað komið langt
fram yfir seinasta söludag og
því þarf að huga að framtíð
kráarinnar. Hann er hið mesta
fól í samskiptum við aðra en
undir niðri leynist þó gott
hjarta.
„Fyrstu hugmyndirnar
kvikna sennilega 2000, 2001
og svo er myndin tilbúin í
mars, apríl 2009. Þannig að
þetta spannar átta, níu ár,“
segir Dagur Kári um hið langa
ferli sem liggur að baki The
Good Heart. Kvikmyndin var
frumsýnd á kvikmyndahátíð-
inni í Toronto í september í
fyrra og verður frumsýnd í
Bandaríkjunum í næsta mán-
uði.
Líkt og í Nóa albinóa fæst
Dagur Kári í The Good Heart
við persónur sem eiga erfitt
með að fóta sig í samfélaginu.
Lengi vel stóð til að Tom Waits
færi með hlutverk Jacques og
Ryan Gosling með hlutverk
Lucasar. Þeir gengu úr skaft-
inu og í stað þeirra komu stór-
leikarinn Brian Cox og ung-
stirnið Paul Dano.
– Hvaðan kom þessi hug-
mynd, sagan af lærimeist-
„Gaf allt sem ég átti
í þessa bíómynd“
Leikstjórinn Dagur Kári Pétursson
frumsýndi fyrir helgi nýjustu kvik-
mynd sína hér á landi, The Good He-
art. Hvað tekur nú við? Dagur Kári
segist upplifa óvissuástand.
„Ég er með einhverjar hugmyndir sem eru skammt á veg komnar en mér líður að mörgu leyti eins og ég sé kominn í einhvers konar hring,“ segir Dagur Kári, spurður að því hvað taki nú við.
Kvikmyndir
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is