SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Síða 18
18 7. mars 2010
Þ
etta hefur verið mikil törn,“
segir Gunnar Björnsson, for-
seti Skáksambandsins.
„Auðveldi parturinn er mót-
ið sjálft, en undirbúning-
urinn er erf-
iðastur og
tekur mest á. Það er tauga-
trekkjandi að bíða eftir því
hvort allir skila sér. Eftir að
mótið hefst er þetta mikil
vinna, en í nokkuð föstum far-
vegi.“
– Náðust þau markmið sem
menn settu sér?
„Við stefndum að því að ná
áhugaverðum keppendalista,
þar sem nokkrir væru á meðal
bestu í heimi, og það tókst með
til dæmis Sokolov, Dreev og
Baklan. Svo vildum við fá
sterkar skákkonur, sem gekk
eftir, meðal annars með Krush
og Dronovalli og hinum indversku skákkon-
unum. Einnig vildum við fá undrabörn og
fengum Cori-systkinin og Nyzhnyk. Og loks
goðsagnirnar, Westerinen og Romanishin,
sem við lögðum mikið á okkur til að fá.“
– Hvernig fannst þér þetta þróast?
„Hannes Hlífar Stefánsson stendur sig alltaf
vel á Reykjavíkurskákmótum. Svo stóðu ís-
lensku keppendurnir sig prýðilega, Henrik
Danielsson, Bragi Þorfinnsson, Jón Viktor
Gunnarsson og Hjörvar Steinn Grétarsson.
Örn Leó Jóhannsson brilleraði, fimmtán ára
gutti sem fékk fjóra vinninga, en hefði átt
samkvæmt stigum að fá einn.“
– Hvenær kviknaði áhugi hjá þér á skák?
„Ég byrjaði árið 1977 þegar Spasskí og Hort
komu hingað. Ég var bara fimm ára þegar
Spasskí og Fischer tefldu og man varla eftir
því. Svo fór ég að leggja leið mína niður í TR
og hef verið fastur í þessu síðan árið 1980.“
– Af hverju ertu ekki stórmeistari?
„Ég lít nú ekki á mig sem skákmann fyrst
og fremst,“ segir hann og hlær. „Miklu fremur
félagsmálamann. Ég er með um 2.150 Eló-stig,
þannig að ég er sæmilegur skákmaður, hefði
náð nokkrum vinningum í hús á Reykjavík-
urskákmótum.“
– Hvernig fer þetta saman við
starfið í Landsbankanum?
„Þetta fer ágætlega saman. Ég fæ
stuðning vinnuveitandans, þar
hafa menn þolinmæði gagnvart
þessu, að ég skreppi á Reykjavík-
urskákmótið og tali við blaða-
menn, frekar en að vera í
vinnunni. Ég vinn líka þannig
vinnu, að ég er ekki í afgreiðslu, og
get tekið símann eða svarað tölvu-
pósti ef svo ber undir.“
– Skák kom við sögu þegar
Landsbankinn stóð sem tæpast?
„Já, ég tefldi á Íslandsmóti
skákfélaga haustið 2008, 3.-5.
október, og vann Jón L. Árna-
son stórmeistara. Það er mín
best teflda skák á ferlinum. Nokkrir stór-
meistarar fylgdust með skákinni og mér leið
eins og kóngi. Á mánudeginum var hinsvegar
allt í uppnámi í bankanum og í minni deild var
allt í upplausn, menn voru bara að fylgjast
með á netinu og í óvissu, enda skilaboðin
óljós. Þá dreif ég alla skákáhugamenn í fund-
arherbergi í bankanum og sýndi þeim skákina
gegn Jóni.“
– Og þú smalaðir þeim aftur saman á
fimmtudagskvöld?
„Já, þá fæ ég Irinu Krush til að tefla fjöltefli.
Hún fór illa með okkur bankamennina, tók
13,5 vinninga í 14 skákum. Það var aðeins
Guðmundur Kristinn Lee sem náði punkti.“
– Fjölmenni fylgdist með skákskýringum á
mótinu?
„Já, þetta var eins og í gamla daga, fullur
salur af fólki að fylgjast með, enda náði ég
fimm stórmeisturum til að skýra, fjórmenn-
ingunum og Friðriki. Það skýrðu fleiri íslensk-
ir stórmeistarar skákir en tefldu á mótinu.“
Nyzhik var vinningi frá því að verða yngstur stórmeistara, en tapaði síðustu tveim skákunum. Irina Krush mætti svöng til leiks og gæddi sér á grænmetisböku eftir að skákin hófst.
Skákmenn notuðu kaffihúsið til þess að fara yfir leikina í lok dags.
Hjörvar Steinn Grétarsson sigraði Örn Leó Jóhannsson, en báðir stóðu þeir sig afar vel á skákmótin
Byrjaði þegar
Spasskí
mætti Hort
Bak við tjöldin
Texti Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Myndir Golli golli@mbl.is
Gunnar Björnsson