SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Síða 22
22 7. mars 2010
Í
sland er öðru vísi en önnur lönd.
Sjálf erum við sumpart ef til vill
hrædd við þá staðreynd, en þó þrátt
fyrir allt hreykin og byggjum raunar
á henni hagsmunavon. En gagnstætt því,
sem við stundum viljum halda, þá er ekki
víst, að Íslendingar séu öðru vísi en aðrir
og í því er engin eftirsókn, nema það gefi
okkur sjálfum fullnægingu og öðrum
ávöxt af því, sem við afrekum. Alþjóðleg
listahátíð minnir okkur á það, að þjóðern-
isvitund og alþjóðasamkennd verður að
haldast í hendur.
[...]
Reykjavík fagnar listahátíð og væntir
þess, að slíkar verði haldnar reglulega í
framtíðinni, verði listalífi höfuðborgar og
lands lyftistöng og geri Reykjavík tengilið
milli heimsálfa, landa og manna.“
Þannig komst Geir Hallgrímsson borg-
arstjóri að orði við setningu fyrstu
Listahátíðarinnar í Reykjavík sumarið
1970. Nú, fjórum áratugum síðar, verður
ekki annað séð en Geir hafi orðið að ósk
sinni. Alltént er Hrefna Haraldsdóttir,
listrænn stjórnandi hátíðarinnar, ekki í
nokkrum vafa.
„Mér finnst hafa tekist mjög vel til,“
segir Hrefna þegar hún horfir um öxl.
„Verðmæti hátíðarinnar liggja í öllum
þeim góðu listamönnum sem hafa komið
á hátíðina. Það var vandað til verks í upp-
hafi og lagt upp með mikinn metnað.
Listahátíð í Reykjavík er löngu búin að
sanna gildi sitt.“
Ashkenazy lykilmaður
Tónninn var gefinn þegar á fyrstu hátíð-
unum með komu listamanna á borð við
Yehudi Menuhin, Jacqueline du Pré,
Daniel Barenboim, André Previn og
Mstislav Rostropovitsj. Þökk sé Vladimir
Ashkenazy, sem bjó hér á landi á þeim
tíma. „Ashkenazy var algjör lykilmaður í
upphafi. Tengslanetið var minna á ár-
unum í kringum 1970 en það er í dag og
sambandið við umheiminn minna.
Ashkenazy var hátíðinni því ákaflega dýr-
mætur – og er enn. Hann er verndari há-
tíðarinnar og fylgist vel með gangi mála.
Ashkenazy hefur alla tíð verið velviljaður,
áhugasamur og hvetjandi,“ segir Hrefna.
Hún segir stóru nöfnin hafa vakið mikla
athygli á hátíðinni fyrsta kastið, langt út
fyrir landsteinana. Það hafi verið vatn á
myllu innlendra listamanna. „Það er ekki
nokkur vafi að Listahátíð í Reykjavík hef-
ur hjálpað íslenskum listamönnum að
koma sér á framfæri erlendis. Við erum
alltaf að leiða saman listamenn og tengja
fólk. Listahátíð er öðrum þræði umboðs-
skrifstofa.“
Samstarf innlendra og erlendra lista-
manna hefur aukist jafnt og þétt á hátíð-
inni og segir Hrefna fólk koma til með að
fá góða mynd af því í vor. „Hugrekki og
nýsköpun eru broddurinn á hátíðinni.
Landamæri eru engin fyrirstaða í listum
lengur og mörkin milli listgreina mun
þokukenndari en áður. Listahátíð í
Reykjavík er ljúft og skylt að svara kalli
tímans.“
Klassík og nýsköpun
Hrefna tekur eigi að síður fram að ný-
sköpun og tilraunastarf muni ekki koma
niður á hinum hefðbundnari listum.
„Listahátíð hefur alltaf gert klassíkinni
hátt undir höfði og svo verður að sjálf-
sögðu áfram, ekki síst á sviði tónlistar.
Það getur verið svolítið snúið verkefni að
láta nýsköpun og klassík njóta sín saman
en um leið ákaflega skemmtilegt.“
Hrefna segir úrtöluraddir löngu þagn-
aðar, enda hafi Listahátíð margsannað
fjölhæfni sína. Allir eigi að finna þar eitt-
hvað við sitt hæfi. „Það er ekki hægt að
halda því fram með neinum rökum að
Listahátíð sé snobbhátíð, eins og sumir
virðast hafa óttast á fyrstu árunum. Jafn-
vægið hefur alla tíð verið gott, milli svo-
kallaðrar hámenningar og dægurmenn-
ingar, milli listgreina, innlendra og
erlendra listamanna.“
Hrefna segir það í raun mjög sjaldgæft
að hátíð af þessu tagi hafi allar listgreinar
undir. Mun algengara sé að þær sérhæfi
sig, einkum í smærri löndum. „Ég tel að
þessi sérstaða endurspegli íslenskt sam-
félag. Íslendingar eru víðsýnir að eðlisfari
og í fámennu samfélagi er þetta rökrétt.
Ekki svo að skilja að við séum með kvóta
fyrir ákveðnar greinar, þvert á móti snýst
dagskráin alltaf á endanum um gæði at-
Verðmætin
felast í
listafólkinu
Listahátíð í Reykjavík er fertug um þessar
mundir. Hrefna Haraldsdóttir, listrænn stjórn-
andi hátíðarinnar, lítur stolt um öxl á þessum
tímamótum og segir sóknarfærin ótvíræð, þrátt
fyrir erfið ytri skilyrði.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
„Íslendingar líta upp til hópa á menningu og listir sem sjálfsagðan hluta af sínu daglega lífi,“ segir
David Byrne og Cindy Sherman koma bæði á Listahátíð í Reykjavík í vor.