SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Qupperneq 24

SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Qupperneq 24
24 7. mars 2010 bili og sjá í þeim báðum sýn Halldórs á samfélag okkar, hvernig hann dregur Ísland og Íslendinga inn í alþjóðasamhengi og setur kastljósið á eðli okkar Íslendinga. Mér finnst afar áhugavert hvað það eru mikil líkindi á milli þessara tveggja bóka í lýsingu skáldsins á þjóð sinni. Íslandsklukkan lýsir þjóð í vanda. Þessari kúg- uðu litlu eyþjóð er lýst í bókinni og þjóðar- karakterinn kemur svo sterkt fram. Það er fróð- legt og sjokkerandi að bera þessar lýsingar saman við það sem við lesum í blöðunum í dag um sam- skipti Íslendinga við Breta, Hollendinga, Norð- menn og Dani og útrásardæmið allt saman. Það er kafli í Íslandsklukkunni þar sem Gullinló,lands- tjóri Íslands í Kaupmannahöfn, segir eitthvað á þá leið: Það er alveg sama eftir hvaða lögum Íslend- ingar eru dæmdir, alltaf getið þið dregið upp ein- hvern lagabálk eða skinndruslu, einhverja Grágás og bent okkur á lagakafla sem sýknar ykkur af öllum glæpum. Þegar maður les þetta fær maður hland fyrir hjartað og hugsar: Guð minn almátt- ugur, þetta hefur alltaf verið svona. Við höfum alltaf verið á flótta undan lögum alþjóða- samfélagsins. Við höfum alltaf verið treg til að taka þátt í samstarfi af því að okkur finnst við vera svo sjálfstæð og heilsteypt og viljum vera smá. Við viljum vera sjálfstæð en stikkfrí á sama tíma vegna smæðar okkar. Síðustu árin lýstum við framvarðarsveit okkar sem útrásarvíkingum. Í sögulegu samhengi er út- rásarvíkingur manneskja sem gerði strandhögg í hafnarbæjum, drap, myrti og nauðgaði og stal öllu steini léttara og sigldi svo í burtu. Það er svo merkilegt að við skulum kjósa að titla pen- ingamennina útrásarvíkinga og það er svo lýsandi fyrir það hvernig þjóðarkarakter okkar er. Við fögnuðum útrásinni til Evrópu eins og sigri ís- lenska landsliðsins í handbolta. Íslenskt strand- högg var sigur þjóðarinnar. Við erum svo ung í samhengi þjóðanna og þetta óskaplega eyjastolt og vottur af þröngsýni og sjálfstæðisdýrkun verð- ur svo kjánaleg þegar maður horfir á það utan frá. Ég upplifði þetta mjög sterkt við lestur á Íslands- klukkunni.“ Fullkomlega innblásinn Komum að sjálfum þér og þínu einkalífi. Konan þín, Unnur Ösp Stefánsdóttir, er leikkona. Hvernig er að búa með manneskju sem er á sama sviði og maður sjálfur? „Það er frábært. Þetta er starfsvettvangur sem getur verið mjög sérkennilegur. Vinnutíminn er óvenjulegur, maður vinnur mikið á kvöldin. Það velt að hafa samúð með manneskju sem í sínum einfaldleika stendur þó svona mikið með sjálfri sér.“ Sem stendur leikurðu í Gerplu þar sem þú ferð með hlutverk Þormóðs. Sýningin hefur fengið afar misjafna dóma, verið lofuð og einnig verið Sjálfstæð þjóð en stikkfrí „Með tímanum hef ég orðið æðrulausari gagnvart gagnrýni. En gagnrýni hefur áhrif og það sem maður óttast mest hverju sinni er að hún hafi áhrif á aðsókn. Mér finnst ákveðinn hátíðleiki fylgja frumflutningi á nýju leikverki í Þjóðleik- húsinu sem byggist á menningararfi okkar, og mér þætti sorglegt ef fólk færi á mis við upplif- unina af Gerplu. Mér finnst reyndar að allir eigi að sjá Halldór Laxness í Þjóðleikhúsinu. Gerpla er sýning sem ég myndi sjálfur vilja sjá í leikhúsi. Umræða um gagnrýni er merkilega lifandi innan leikhússins. Þar er mikið talað um gagnrýnendur og dóma þeirra og leikhúsfólk lætur illa skrifaða og ómálefnalega gagnrýni fara sérstaklega fyrir brjóstið á sér. Sumir leikarar kjósa reyndar að lesa ekki umfjöllun um sýningar. Þetta er skiljanlegt því umfjöllun gagnrýnenda verður stundum mjög persónuleg og jafnvel rætin. Sumt sem þar er skrifað situr lengi í mönnum. Oft er ljóst strax af fyrirsögn á dómum að meiningin er ekki að fjalla um leiksýninguna sem slíka heldur er einblínt á það sem miður fer. Og af því að sýningin varð ekki nákvæmlega eins og gagnrýnandinn hafði fyrirfram séð fyrir sér tekur hann þá afstöðu að fjalla ekki bara um sýninguna heldur taka hana af lífi. Fyrir vikið gerir gagnrýn- andinn sjálfan sig að aðalatriði í staðinn fyrir að rýna í verkið og uppfærsluna. En mér finnst leið- inlegt að tala um gagnrýnendur, tölum um eitt- hvað annað.“ Tölum um Gerplu. Hvernig skáldsaga finnst þér hún vera? „Hún er frábær og óskaplega skemmtileg, dá- lítil strákabók. Ég hef gaman af því hvernig Hall- dór afhelgar fornsögurnar og sveipar allar per- sónur kaldhæðni. Af hverri einustu síðu drýpur stílsnilld Halldórs Laxness. Það er stundum eins og hann sé að monta sig, hrista sig og sýna hvað hann er óskaplega flinkur. Fyrir vikið verður bókin dálítið köld, ekki bara vegna þess að hún er íronísk heldur líka vegna þess að stílistinn leggst stundum yfir síðurnar og eignar sér þær. Mér fannst líka gaman að lesa Gerplu í ljósi þess að ég er að vinna í Íslandsklukkunni þar sem ég leik Magnús í Bræðratungu. Það er ótrúlega sláandi að lesa Gerplu og Íslandsklukkuna með stuttu milli- H inir gríðarlega vinsælu þættir Fanga- vaktin urðu sigursælir á Edduverð- launahátíðinni sem haldin var um síðustu helgi. Björn Thors fékk verð- laun fyrir leik sinn í þáttunum en hann fór með hlutverk fangans Kenneth Mána og túlkaði hann með einstöku samblandi af fyndni og samúð. Þetta eru ekki fyrstu verðlaunin sem Björn fær á leikferli sínum sem hann hefur áður hlotið Grím- una fyrir leik í Græna landinu og Vestrinu eina. Hann er fyrst spurður hvort verðlaun skipti hann máli. „Það er gaman að fá verðlaun og þau skipta máli því þau varpa kastljósi á vel unnin störf,“ segir hann. „Það sem er sérlega ánægjulegt við Edduverðlaunin er að þau eru veitt af fagfólki úr geiranum. Það er gott að fá klapp á bakið frá félögum sínum. Á hinn bóginn eru verðlaun dá- lítið eins og að fá góða gagnrýni. Það er mjög gaman að fá góða gagnrýni en hún skiptir ekki miklu máli til framtíðar. Þegar maður fer sjálfur að leggja of mikla meiningu í verðlaun er maður kominn út á hálan ís. Ég reyni því að forðast að leggja of mikla og þunga merkingu í verðlaun, aðra en þá að það er gott og gaman að fá þau.“ Í Fangavaktinni lékstu á móti Jóni Gnarr, Pétri Jóhanni Sigfússyni og Jörundi Ragnarssyni sem í Næturvaktinni og Dagvaktinni sköpuðu einstaka karaktera. Fylltistu keppnisskapi þegar þú fórst að leika á móti þeim og ákvaðst að láta þá ekki skyggja á þig eða hugsarðu ekki á þenn- an hátt? „Nei, ég hugsa alls ekki þannig. Leiklist er í eðli sínu samvinna. Keppnismennska í listum er auð- vitað til en endar venjulega úti í móa. Það að fara í keppnisskap innan verkefnis er eins og að ætla að verða besti fótboltamaðurinn á vellinum. Að lok- um er þér er skipt út af því þú gefur aldrei bolt- ann á meðspilara þína. Maður hlýtur að vilja sækja styrk sinn í liðsheildina, sérstaklega ef maður spilar með góðu liði. Í þessu samstarfi í Fangavaktinni var það framlag margra sem skilaði þessum fína árangri. Ég vann með frábæru fólki og allt gekk upp. Þetta var mikil samvinna.“ Maður verður var við að þeim sem hafa séð Fangavaktina þykir vænt um Kenneth. „Við þekkjum öll einfeldninga. Kenneth er óskaplega vel meinandi en tekur rangar ákvarð- anir og lendir úti á kanti í lífinu. Við Ragnar Bragason ræddum það mikið að hann er alls Ekki vondur maður og vill ekki gera öðrum illt en er móttækilegur og auðtrúa. Við þekkjum öll þannig manneskjur og þess vegna held ég að það sé svo skemmtilegt að halda með Kenneth. Hluti af því að Kenneth varð svona vinsæll er að það er auð- Viðtal Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Maður verður að fara vel með klárinn sinn Björn Thors vann á dögunum Edduverðlaunin fyrir mjög svo eft- irminnilega túlkun á hinum geðuga einfeldningi Kenneth Mána í Fangavaktinni. Þessa dagana leikur Björn í Gerplu í Þjóðleik- húsinu og framundan er sjálf Íslandsklukkan.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.