SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Síða 32
32 7. mars 2010
þrjár geta hugsanlega sigrað.
Líklegastar til vinnings eru Avatar,
bæði vegna þess að hún hefur gert ótrú-
lega hluti í miðasölunni. Er orðin á
nokkrum vikum langtekjuhæsta mynd
allra tíma bæði í Norður-Ameríku og á
heimsvísu. Talin enda í 2,8-3,0 millj-
örðum dala og hefur þá bætt fyrra met
Titanic upp undir helming! Slíkar tölur
kann kvikmyndaheimurinn að meta
betur en flest annað og hefur örugglega
verið ofarlega í huga meðlimanna þegar
þeir gengu til kosninga. Þar fyrir utan er
myndin slíkt þrívíddar-tækniundur að
hún markar tímamót í sögunni. Er um-
hverfisvæn ástarsaga í útgeimi, hin stór-
fenglegasta afþreying.
The Hurt Locker er einhver áhrifarík-
asta mynd ársins en um leið ein sú
hrikalegasta og virkaði á mann eins og
bílvelta niður snarbratta fjallshlíð. Mað-
ur skreiddist út úr bíóinu eftir miskunn-
arlausan djöfulganginn í Íraksstríðinu,
en fylgst er með gengi sprengjuleit-
arflokks sem vinnur við að gera sprengj-
ur óvirkar. Hún var mjög óþægileg á að
horfa en jafnframt minnisstæð stríðs-
ádeila. Þessar tvær eru líklegustu sig-
urvegararnir en ég var stórhrifin af Up
in the Air, þar sem Clooney sannar enn
og aftur hvað hann er ótrúlega þjáll,
flinkur og sjarmerandi gamanleikari og
Reitman frumlegur leikstjóri á alla lund.
Inglourious Basterds, nýtur vinsælda
akademíunnar sem almennings, spurn-
ing hvað hún hefði náð langt ef leik-
stjórinn væri annar en Tarantino. Dist-
rict 9 set ég í heiðursflokkinn því þar ber
þessari snjöllu og frumlegu framtíðarsýn
að vera – þó að hún eigi sjálfsagt hverf-
andi líkur á sigri.
Avatar
The Hurt Locker
Up in the Air
Inglourious Basterds
District 9
Í slappari helmingnum er vissulega ein
virkilega sigurstrangleg mynd, Up. Hvað
teiknimynd er að gera í þessum hópi er
mér ráðgáta, Akademían er með sér
flokk fyrir slík verk og þar trónar hún
líka (!) Að öðru leyti er B-deildin óvæn-
leg til afreka en ekki er hægt að ganga
framhjá An Education. Hér kemur kven-
leikstjóri við sögu, og það engin önnur
Tvísýn úrslit
á afhend-
ingarkvöldi
Óvissan ræður ríkjum í flestum flokkum Ósk-
arsverðlaunanna í ár og setur öðru fremur mark
sitt á kvöldið. Sérfræðingur Sunnudagsmoggans
spáir í slaginn sem hann telur að standi á milli
Avatar og The Hurt Locker, í mörgum tilfellum.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Hverjir hampa Óskarnum í ár?
82.
Óskarsverðlauna
afhendingarhátíðin
er ein sú ófyr-
irsjáanlegasta í ára-
raðir, ef ekki áratugi. Í höfuðflokkunum
mun baráttan örugglega standa á milli
hinna gjörólíku verka, aðsóknarrisans
Avatar, sem færir leikstjórann James
Cameron á kunnuglegar slóðir eftir 12
ára fjarveru sem hann hefur notað til að
skapa byltingarkennda þrívíddartækni,
sem flestir stórmyndasmiðir eru skyndi-
lega farnir að kljást við. Annað virðist
ekki skynsamlegt því Avatar valtaði yfir
öll kunn aðsóknarmet á leifturhraða.
Búum okkur undir sannkallað þrívídd-
armyndafár fram eftir öldinni, eða
þangað til að ný og fullkomnari tækni
leysir hana af hólmi. Hinn meg-
inkeppinauturinn er hin gjörólíka The
Hurt Locker, harðsoðin og miskunn-
arlaus mynd úr Íraksstríðinu. Svo
skemmtilega vill til að leikstjóri hennar
er engin önnur en Kathryn Bigelow,
fyrrverandi eiginkona hr. Camerons.
Slík staða hefur aldrei komið áður upp á
skákborði Óskars.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar
á flokkum og fjölda mynda, sem nú eru
10 í stað 5 í keppni um Bestu mynd árs-
ins. Þetta verður til þess eins að lengja
afhendingarhátíðina sem er ærið löng
fyrir.
Líkt og venjulega skjóta svo óvæntir
sigurvegarar upp kollinum, sem er
ómissandi þáttur í sýningunni og fyllir
minnipokamenn bjartsýni og trú á lífið.
En rennum nú yfir helstu verðlauna-
tilnefningar þar sem mín spádómsgáfa
getur hæglega beðið alvarlegan hnekki!
Þann líklegasta set ég efstan í röðina
hverju sinni, síðan koll af kolli.
Besta mynd ársins
Líkt og kom fram hér að ofan hefur Aka-
demían gert nokkrar breytingar á hefð-
bundnu formi verðlaunanna og er fjölg-
un tilnefndra „Bestu mynda ársins“ um
helming, mest áberandi. Ég ætla að gefa
þessu fáránlega afturhvarfi til fyrri tíma
langt nef og skipta hópnum í tvennt:
Þær sem koma til greina, en hin helftin
fer í 2. flokk, úrkastið, eða hvað við
köllum það. Myndirnar í A-flokki eru
misjafnlega sigurstranglegar en einar
en hin bráðflinka danska Lone Scherfig,
sem á m.a. að baki þá eftirminnilegu
Ítölsku fyrir byrjendur (2000). Precio-
us … er stórfengleg mynd um þeldökkt
undirmálsfólk og á allan heiður skilinn
en má sín ekki gagnvart hákörlunum.
Up
Precious: Based on the Novel ‘Push’ by
Sapphire
An Education
A Serious Man
The Blind Side
Besta erlenda myndin
Hér er ástandið bágborið, enn sem kom-
ið er hefur engin myndanna verið sýnd á
voru fagra landi. Þó má teljast mjög lík-
legt að sú þýska eða franska hirði verð-
launin. Nú síðast var Un Prophète að
hreinsa Cesar-verðlaunin í heimaland-
inu. En hér er rennt nokkurn veginn
blint í sjóinn, en allar myndirnar hafa
hlotið frábæra dóma þar sem þær hafa
verið teknar til sýninga.
Spámaður (Un Prophète) Frakkland
Hvíti borðinn (Das Weisse Band) Þýskaland
Ajami Israel
The Milk of Sorrow (La Teta Asustada) Peru
The Secret in Their Eyes (El Secreto de Sus
Ojos) Argentina
Besti leikstjórinn
Í þessum flokki eru virkilega skemmti-
legir og óvenjulegir hlutir að gerast þar
sem fyrrverandi hjónin Bigelow og
Cameron eru líklegust til að kljást um
verðlaunin. Er ekki kominn tími til að
konur í leikstjórastól fái uppreisn æru?
Cameron á vissulega ólíkt glæsilegri feril
að baki en Bigelow á ofurskellinn K17;
The Widowmaker og Strange Days á fer-
ilskránni. Og reyndar líka Blue Steel,
tvítuga, en minnisstæða B-mynd. Flest-
ar líkur benda til að Cameron hirði karl-
inn, ef svo verður ekki þá kemur engin
önnur en Bigelow til greina.
Avatar – James Cameron
The Hurt Locker – Kathryn Bigelow
Up in the Air – Jason Reitman
Inglourious Basterds – Quentin Tarantino
Precious: Based on the Novel ‘Push’ by
Sapphire – Lee Daniels
Besti karlleikarinn í aðalhlutverki
Hér liggja úrslitin í loftinu (óskhyggja?)
Jeff Bridges er ástsæll leikari af öflugum
Hollywood-rótum. Einstakur leikari
sem hefur verið með eindæmum mis-
heppinn í hlutverkavali en jafnan verið
stutt á milli mynda þar sem hann hefur
fengið tækifæri til að sýnt sinn magnaða
og persónulega leikstíl og fjallsterku og
aðlaðandi útgeislun sem hefur fært hon-
um stöðugar vinsældir í kvikmynda-
heiminum. „Nú er minn tími kominn,“
getur hann sagt og það afslappaður og í
andlegu jafnvægi. EN, þetta bannsetta
en, af hverju þurfti George Clooney,
annar hágæðaleikari og ámóta sjarmör,
dáður hér sem annars staðar, að sýna
besta leik ferilsins á þessu sama ári?
Clooney er eini leikarinn sem getur
reynst Bridges skeinuhættur, hann er
ótrúlega þéttur í Up in the Air. Freeman
bregst aldrei og væri vel að sigrinum
kominn, gefum honum smá-von fyrir
sinn sympatíska Mandela. Renner á litla
von, þótt staffírugur sé sem taugalaus
nagli sem gerir vítisvélar óvirkar með
bros á vör í stríðshrjáðri Bagdad. Hef
ekki séð Firth í A Single Man og satt að
segja aldrei talið hann líklegan til stór-
ræða.
Jeff Bridges – Crazy Heart
George Clooney – Up in the Air
Morgan Freeman – Invictus
Jeremy Renner – The Hurt Locker
Colin Firth – A Single Man
Besta leikkonan í aðalhlutverki
Einn af veikleikum Kvikmyndaakademí-
unnar er að veita af og til hæfileikalitlum
fegurðardísum þessa eftirsóttustu veg-
semd kvikmyndaheimsins. Juliu Ro-
berts, Gwyneth Paltrow, Halle Berry …
Allar státa þær af Óskar sem bestu leik-
konur í aðalhlutverki en litlum leiklist-
arhæfileikum. Hætt er við að enn ein,
Sandra Bullock, bætist í þennan föngu-
lega hóp í ár fyrir göngu sína í gegnum
The Blind Site (sem hefur mokað inn fé).
Þó er hún að berjast við stallsystur sínar
sem hún hefur lítið roð í. Hina magn-
þrungnu Mirren; Hina fersku, verðandi
stórstjörnu, Mulligan; Gabourey Sidibe,
sem fær einróma lof fyrir túlkun á hinni
holdugu, ólæsu og óskrifandi blökku-
stúlku í Harlem. Ég vona að hún vinni,
hún hefur þá allavega heiðarlega ástæðu
til að gráta úr sér augun, öfugt við stöll-