SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Síða 37
7. mars 2010 37
U
ndanfarin tvö ár hafa
verið lærdómsrík
fyrir Íslendinga. Við
áttuðum okkur á því
að við erum ekki jafn flott og rík
og við héldum, en mikilvægast af
öllu var að við fórum að mótmæla
fyrir alvöru. Búsáhaldabyltingin
smitaði út frá sér og nú eru bar-
áttuglaðir og reiðir Íslendingar
farnir að standa upp og berja
hnefum í borðið þegar þeim
finnst vera brotið á sér. Dæmi má
sjá um þetta á öllum stigum þjóð-
félagsins, ekki síst hjá yngri kyn-
slóðinni.
Þeir eru fáir sem ekki muna
eftir framhaldsskólaárum sínum.
Margir muna eftir þessum árum
sem þeim bestu í sínu lífi. Það
hefur lengi verið talið að gott fé-
lagslíf sé mikilvægt svo nemendur
séu ánægðir og skemmti sér vel í
skólanum. Reglan hefur verið að
því betra sem félagslífið er í skól-
anum, því ánægðari verða nem-
endurnir með hann. Sumir skólar
leggja mikið upp úr félagslífinu og
styrkja nemendafélög sín vel, en
aðrir leggja síður upp úr því. Fjöl-
mörg nemendafélög hafa haldið
hefðum í fjölda ára, jafnvel tugi
ára, og eru þessar hefðir stærsti
þátturinn í félagslífi hvers skóla.
Flestir á menntaskólaaldri þekkja
Nemó – árshátíð Verslunarskól-
ans, 85 ballið – ball með „eig-
hties“ þema Menntaskólans við
Sund og Eplaballið sem er stærsta
skemmtun Kvennaskólans í
Reykjavík.
Það hefur lengi verið hefð hjá
nemendafélagi Fjölbrautaskólans
í Breiðholti (NFB) að halda árshá-
tíð sína á landsbyggðinni, hefð
sem nær allt til stofnára skólans.
Á árshátíðinni hefur tíðkast að
nemendurnir snæði saman, haldi
skólaball og gisti á hóteli í
grenndinni. Undanfarin 24 ár
hefur árshátíðin oftast verið hald-
in á Hótel Selfoss, en hefur þó far-
ið misvel fram.
Árshátíð NFB hefur verið stoð
félagslífsins undanfarin ár og hef-
ur aðsóknin á hátíðina verið mik-
il. Nemendur, sem náð hafa átján
ára aldri, hafa sumir gist á her-
bergjum Hótel Selfoss eftir ballið,
en það mætti segja að skemmt-
unin hefjist fyrst þar. Sungið og
spilað er langt fram eftir nóttu og
flest mál ganga áfallalaus fyrir sig.
Þetta hefur verið frábær skemmt-
un og flestir, ef ekki allir, koma
heim sáttir.
Árið 2007 var árshátíðin þó
ekki áfallalaus, en slagsmál, fíkni-
efni og óhófleg drykkja einkenndi
skemmtunina sem leiddi til þess
að árið eftir var NFB ekki lengur
velkomið á Hótel Selfoss. Þetta
var mikið áfall bæði fyrir skóla og
nemendafélag, enda bætir slíkt
ekki orðspor skólans. Það var svo
tveimur árum síðar, árið 2009,
sem nemendafélaginu tókst að
sannfæra bæði hótelið og skóla-
stjórn um ágæti nemendanna og
féllust báðir aðilar á árshátíð á
Hótel Selfoss sem gekk mjög vel,
en engin meiri háttar mál komu
upp. Núverandi stjórn nemenda-
félagsins bjóst því við að fá aðra
árshátíð á Selfoss í ár, en stjórn
skólans tók fyrir þann möguleika.
,,Skólayfirvöld Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti geta ekki ábyrgst
slíkt skemmtanahald tengt gist-
ingu hluta nemendahópsins á
hóteli og fjarri heimahúsum þar
sem foreldrar geta ekki sinnt eft-
irlitsskyldu sinni með fullnægj-
andi hætti,“ sagði Guðrún Hrefna
Guðmundsdóttir, nýráðinn
skólameistari FB í bréfi til allra
nemenda skólans. ,,Árshátíð úti á
landi með tilheyrandi gistingu er
kostnaðarsöm fyrir þátttakendur
og er þannig hugsanlega að ýta
undir mismunun nemenda með
tilliti til fjárhagsstöðu. Einnig er
það að að keyra yfir Hellisheiði að
næturlagi á miðjum vetri með
stóran nemendahóp ákveðin
áhætta,“ bætti hún við.
Erfið barátta nemenda
Það var ljóst strax í upphafi að
bann skólastjórnarinnar myndi
draga dilk á eftir sér, en aðeins fá-
einum klukkustundum eftir
ákvörðunina hófst mikið fár
meðal nemenda í skólanum.
Skipulögð mótmæli hófust strax á
mánudeginum eftir tilkynn-
inguna, og fóru nemendur í mæt-
ingarverkfall í kjölfarið og mættu
ekkert í tíma.
Mikill erill var í skólanum, sem
fylltist af fjölmiðlum og aðilum
sem forvitnir voru um málavexti.
Rapparinn vinsæli Dóri DNA kom
og hélt ræðu, Morfísliðið fór í
kappræður við skólastjórnendur
og tónlistaratriði voru skipulögð í
matsal skólans. Nemendur fóru í
einskonar skrúðgöngu um skól-
ann, börðu í trommur og vildu að
félagslífið væri í höndum nem-
endafélagsins en ekki skólans eins
og þetta væri í öðrum skólum. Því
var jafnvel hótað af nemendum að
draga skólann út úr Gettu betur,
þar sem skólinn var kominn í
fjórðungsúrslit.
Þrýstingurinn á skólastjórnina
var gríðarlegur á þessum tíma-
punkti, en hún gaf sig ekki. Á
endanum voru fundir boðaðir
með stjórn nemendafélagsins og
stjórn skólans, en þar börðust
nemendur enn frekar fyrir mál-
stað sínum og töldu upp rök fyrir
því að árshátíð skyldi halda á Sel-
fossi. Á endanum náðust þó sætt-
ir. Árshátíðin yrði haldin í bæn-
um, en ekki úti á landi.
„Við skipulögðum þetta þannig
að dagurinn byrjar í FB þar sem
leikritið okkar, Frumskógarlög-
málið, verður sýnt. Maturinn
verður svo haldinn á Hótel Sögu
með Audda og Sveppa sem
veislustjóra, en ballið verður í
Turninum með Bloodgroup sem
hita upp fyrir Skítamóral,“ sagði
Erla María Jónsdóttir, formaður
NFB, í viðtali við Morgunblaðið.
,,Skólinn kemur til móts við okk-
ur í kostnaði, og við erum sann-
færð um að þetta verður jafnvel
betra í ár en í fyrra.“
Sumir vilja meina að skólinn
hafi borið sigur af hólmi í þessu
máli, en aðrir álíta annað. Það er
ljóst að árshátíð nemendafélagsins
verður glæsileg í ár og eflaust
munu framhaldsskólanemendur
flykkjast á þennan árlega viðburð.
Það er ekki spurning að þessari
orrustu er lokið, en stríðið er
langt frá því að vera búið milli
nemendafélagsins og skólans. Á
næsta ári má búast við annarri
eins baráttu milli stjórna NFB og
FB, enda þykir þetta mikið hita-
mál meðal nemenda.
Í FB verður 2010 minnst sem
ársins sem nemendur stóðu upp
og börðu hnefum sínum í borðið.
Ársins sem nemendur héldu sína
eigin búsáhaldabyltingu. Þetta var
kannski ekki mikilvægasta bylt-
ing í heimi þetta árið, en er ekki
mikilvægt að ungt fólk temji sér
að standa við sannfæringu sína?
Í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti verður 2010 minnst sem ársins sem
nemendur skólans stóðu upp og börðu hnefum sínum í borðið.
Morgunblaðið/HilmarSig
Styr um-
árshátíð FB
Það hefur lengi verið hefð hjá nem-
endafélagi Fjölbrautaskólans í Breið-
holti (NFB) að halda árshátíð sína á
landsbyggðinni. Að þessu sinni lögðust
skólastjórnendur gegn þeirri hefð.
Hilmar Þór Sigurjónsson hilmarsig@mbl.is
Staðurinn - Ræktin
telpurS onuK r
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732
jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
NÁMSKEIÐUM
FYLGIR
FRJÁLS MÆTING
Í TÆKJASAL
Innritun hafin í alla TT flokka!
Sími 581 3730
Þú getur strax byrjað að æfa
Um leið og þú hefur greitt fyrir námskeiðið, er þér frjálst að mæta í tíma í opna kerfinu
TT tímar í boði:
6:15 – mán, mið, fös
7:20 – mán, mið, fös
10:15 – mán, mið, fös - Barnapössun
12:05 – mán, mið, fös - Barnapössun
14:20 – mán, mið, fös
16:40 – mán, mið, fös - Barnapössun
17:40 – mán, mið, fös - Barnapössun
18:25 – TT3 mán, mið - (16-25 ára)
18:40 – TT3 mán, þri - (16-25 ára)
19:25 – mán, mið, fim (18:25)
Fundur fyrir alla flokka sunnudaginn 14. mars kl. 15:00 og 16:00
Velkomin í okkar hóp!