SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Page 40

SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Page 40
40 7. mars 2010 H refna hefur þrátt fyrir ungan aldur komið víða við. Hún var í fyrsta unglingalandsliði Ís- lands og hefur tvisvar sinnum keppt á heimsmeistaramótinu með ís- lenska kokkalandsliðinu. Hún lærði kokk- inn á Apótekinu, fór síðan á Sjávarkjall- arann og var rétt nýorðin 27 ára þegar hún opnaði Fiskmarkaðinn. „Ég var alltaf að elda þegar ég var lítil og mér fannst það bara rosalega skemmtilegt. Foreldrar mínir elduðu ekkert mikið en fóru reynd- ar mjög mikið út að borða. Svo komu þau heim og elduðu eitthvað sem mér fannst ekkert endilega gott og ég var alltaf að skipta mér eitthvað af, segja að þetta ætti að vera svona og hinsegin,“ segir Hrefna um fyrstu skrefin í eldhúsinu og hlær við. Hún segist alltaf hafa vitað að hana langaði að verða kokkur þegar hún yrði stór en segir að mamma hennar hafi í upphafi hvatt hana til að leggja eitthvað annað fyrir sig. „Þegar ég fór á unglingsaldurinn var mamma alltaf að reyna að ýta mér á aðra braut af því að henni fannst ég aðeins of ung, en þegar ég varð tvítug fann ég aftur að mig langaði að verða kokkur og þá sagði mamma að ég væri tilbúin. Þannig að ég byrjaði tvítug að læra.“ Fiskurinn krefjandi Hrefna segir að þrátt fyrir ungan aldur hafi hún verið alveg verið tilbúin til að reka sinn eigin stað þar sem það hafi verið markmið hennar frá upphafi námsins. Fiskmarkaðurinn hefur frá upphafi fengið mjög góða dóma og jákvæða umfjöllun og Hrefna er ánægð með staðinn. Hún segir að það sé á margan hátt erfiðara og meira krefjandi að matreiða sjávarafurðir en annað hráefni. „Mér finnst mjög gaman að elda fisk. Það er aðeins erfiðara að gera hann góðan, maður þarf að vera nákvæm- ari þegar maður er að elda hann sem er mjög skemmtilegt,“ segir hún en eldhúsið segir hún vera á asískum nótum. „Við erum með sushi og þannig mat en notum íslenskt hráefni. Þetta er svona asískt blandað við íslenskt en ekki „fusion“ samt. Við kryddum ekki mjög mikið og leyfum hráefninu að njóta sín, en útfærsl- an er kannski á asíska háttinn.“ Eldar grænmeti heima Hrefna segir að fiskibollur séu allra besti matur sem hún fær, en hún segir jafnframt að það breytist oft hvað er í uppáhaldi hjá henni á hverjum tíma. „Maður tekur ást- fóstri við eitthvað í tvo, þrjá mánuði og borðar yfir sig af því. Tekur til dæmis eitt- hvert grænmeti og gerir allt við það,“ seg- ir hún, en grænmetisréttir eru einmitt það sem Hrefna eldar oftast heima hjá sér. Hún segist vera dugleg við að elda og að kær- astinn sé líka mjög góður kokkur, „ég er bara miklu fljótari að elda en hann, dríf þetta bara af“. Hrefna viðurkennir að úrvalið af græn- meti í verslunum mætti vera meira og segir það vera óþægilega háð innflutningi frá öðrum löndum. Hún segir þó mögu- leikana óþrjótandi þegar um matreiðslu á grænmeti er að ræða. „Ég nota mikið af kryddi til að gera þetta skemmtilegt og svo eru svo margar mismunandi eldunar- aðferðir. Það er hægt að gufusjóða, steikja, búa til bökur, buff, hrísgrjónarétti og alls konar. Það eru eiginlega mestu möguleik- arnir í grænmeti.“ Innt eftir góðu ráði þegar kemur að eldamennskunni er Hrefna fljót að gefa svar. „Það er alltaf betra að elda minna en of mikið, af því að það er auðveldara að elda það þá meira ef þarf, en það er ekki hægt að elda til baka! Hráefnið heldur líka alltaf áfram að eldast þegar það er komið út úr ofninum út af hitanum.“ Hrefna hefur einlægan áhuga á matargerð og hefur heimsótt veitingastaði víða erlendis. Morgunblaðið/Ómar Fiskur og grænt Hrefna Rósa Jóhanns- dóttir Sætran er yfir- kokkur og eigandi Fiskmarkaðarins. Hún segir sjávarafurðir vera ögrandi hráefni en eldar mest af græn- meti heima. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Grænmetisréttir eru jafnan ́a borðum Hrefnu og kærasta hennar en hún segir möguleika hráefnisins endalausa. Morgunblaðið/Ómar Matur Sætkartöflu-hnetusmjörs- baka Það er hægt að gera nokkrar litlar bök- ur eða bara eina stóra. 1 pakki smjördeig 4 stk. egg 2 stórar sætar kartöflur 100 ml rjómi 6 msk. hnetusmjör 2 rif hvítlaukur 2 stk. skalotlaukar salt og pipar Aðferð: Saxið laukana fínt. Brjótið egg- in í skál. Pískið hnetusmjörinu saman við. Blandið rjómanum og laukunum út í. Skrælið og skerið sætu kartöfl- urnar í litla kubba. Bætið út í eggja- blönduna. Kryddið með salti og pipar. Fletjið út smjördegið. Setjið það í botninn á forminu sem þið ætlið að hafa bökuna í. Hellið fyllingunni ofan í og bakið í 20 mín. ef það eru litlar bök- ur en 40 mín. ef þær eru stærri. Tandoori-kryddaðar kartöflur 200 g litlar kartöflur 2 msk. tandoori krydd 1 stk. hvítlaukur 100 g ósaltað smjör salt Aðferð: Sjóðið kartöflurnar með hýð- inu þar til þær eru tilbúnar. Bræðið smjörið á pönnu ásamt gróft skornum hvítlauknum og tandoori-kryddinu. Steikið kartöflurnar vel á pönnunni þar til þær verða fallegar á litinn. Tofu og græn chilli dressing 1 stk. tofu 1 stk. grænt chilli 1 stk. sítróna salt Aðferð: Setjið tofu í matvinnsluvél og maukið þar til það er orðið eins og mæjónes í áferð. Grófsaxið chilli og bætið út í. Kreistið safann úr sítrón- unni út í og kryddið með salti.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.