SunnudagsMogginn - 07.03.2010, Side 44
44 7. mars 2010
Hin breska Kate Nash sló í gegn með plötu
sinni Made Of Bricks árið 2007, plata sem
lagði grunninn að töffarapoppinu sem svo
margar breskar stúlkur iðka í dag; þ.e. hráar
„mér er skítsama“-lífsreynslusögur í bland
við stíliseraða og ofurspræka popptónlist.
Nash mun gefa út aðra plötu sína, My Best
Friend Is You, í apríl komandi. Það er sjálfur
Bernard Butler, fyrrverandi gítaristi Suede,
sem upptökustýrir. Fyrsta smáskífan nefnist
„Doo Wah Do“ og kemur út 12. apríl.
Kate Nash klár með
plötu númer tvö
Kate Nash
Belle & Sebastian
GLASGOW-sveitin geðþekka Belle & Sebast-
ian er farin að huga að nýrri plötu, en nú eru
fjögur ár liðin frá þeirri síðustu (The Life
Pursuit, 2006). Sveitin hefur verið að vinna
að efninu í heimabænum en svo verður hald-
ið til Los Angeles þar sem tekið verður upp.
Sveitin hyggst þá sækja nokkrar tónleikahá-
tíðir í sumar til að viðra sig. Belle & Sebast-
ian hefur legið í hálfgildings híði og Stuart
Murdoch, leiðtogi sveitarinnar, gaf út plötu
undir heitinu God Help The Girl í fyrrasumar.
Ku það vera tónlist við mynd eftir Murdoch
sem á reyndar ennþá eftir að „skjóta“.
Belle & Sebastian
leggur í nýja plötu
Þrenningunni Lily, Rosemary
og hjartagosanum, Jack of He-
arts, bregður fyrir í Hænuung-
unum, leikriti Braga Ólafssonar
sem nú er sýnt í Þjóðleikhúsinu.
Ekki er gott að gera sér grein
fyrir því hve margir átta sig á
hvaðan þau spretta, en hafir þú
legið andvaka yfir þrautinni, kæri les-
andi, er mér ljúft að upplýsa að öll eru
þau persónur í samnefndu lag á plötunni
Blood on the Tracks eftir Bob Dylan sem
kom út 1975, þegar Bragi var þrettán ára.
Þó að hér sé skrifað um poppklassík, en
ekki leikhúsklassík, má geta þess að
setningin kemur fyrir þar sem söguper-
sónan Sigurhans horfir hugsi yfir stofuna
heima hjá sér í blokkinni og segir svo:
„Lily, Rosemary and the Jack of
Hearts“. Það gefur augaleið að
hann er að vísa til þess að
skömmu áður lauk samtali hans
við stúlkuna Lillý, en faðir
hennar er nýlátinn, en hvernig
texti lagsins rímar við annað
það sem fram fer í Hænuung-
unum verða aðrir að gera upp við sig.
Þegar Blood on the Tracks kom út má
segja að vegur Dylans hafi verið með
minnsta móti. Skífurnar tvær þar á und-
an, Dylan og hin arfaslaka Planet Waves,
bentu til þess að innblásturinn væri upp
urinn. Blood on the Tracks var því ekki
síst fagnað fyrir það að Dylan væri aftur
kominn í stuð, en hún skorar líka hátt á
Dylan-kvarðanum, þó ekki taki ég undir
það að hún sé ein af hans bestu verkum
eins og svo oft er haldið á lofti. Hún er þó
klassík á sinn hátt og þarf ekki Hænu-
unga til.
Mikið var um það rætt á sínum tíma að
platan væri sprottin af tilfinningaróti
Dylans í kjölfar skilnaðar hans og Söru,
en þau höfðu þá verið gift í um áratug, og
vissulega má lesa marga textana þannig
að þeir séu endurrit deilna þeirra í mill-
um sem Jakob, sonur þeirra, hefur og
tekið undir. Dylan er þó ekki allur þar
sem hann er séður og í sjálfævisögu sinni
segir hann að innblástur skífunnar sé all-
ur fenginn frá rússneska rithöfundinum
Anton Tjekov, sem var líka leikskáld.
Eins og Bragi.
arnim@mbl.is
Poppklassík: Blood on the Tracks – Bob Dylan
Bob Dylan og Hænuungarnir
Þ
egar bretapopppsveitin Blur
sprakk loksins á limminu
voru örlog einstakra meðlima
eðlilega í limbói eins og jafnan
gerist er vinsælar poppsveitir hætta.
Meðlimir kunna iðulega lítið annað en
að vera í hljómsveitinni sem um ræðir
og hafa oftast ekki haft rænu á því að
koma á samböndum eða búa á annan
hátt í haginn ef ske kynni að í harð-
bakkann slægi.
Í tilfelli Blur var það svo að Graham
Coxon gítarleikari fór að sýsla við sóló-
feril sem hann hefur rekið síðan með
dágóðum árangri. Alex James bassa-
leikari fór m.a. að skrifa í blöð og
trymbillinn Dave Rowntree er í lög-
fræðinámi. Damon Albarn, sem var alla
tíð heili bandsins, hefur líkt og Coxon
haldið áfram að sýsla við tónlist, en þó
undir allt öðrum formerkjum. Á meðan
Coxon dælir út gítarrokki er Albarn
búinn að hringsóla um nánast öll tón-
listarform sem hægt er að ímynda sér;
heimstónlist, hipp-hopp og gallsúra
tilraunatónlist. Og allt þetta hefur hann
gert með góðum árangri, merkilegt
nokk. Og það merkilegasta er óefað
sýndarsveitin Gorillaz, skipuð fjórum
teiknimyndahetjum sem vinur hans
Jamie Hewlett skapaði en Hewlett þessi
vann m.a. að myndasögunum Tank
Girl. Plata, samnefnd sveitinni, kom út
árið 2001 og önnur, Demon Days, fjór-
um árum síðar. Báðum var þeim af-
skaplega vel tekið og Albarn og Hew-
lett hafa útfært Gorillaz-hugmyndina
enn frekar með ýmsum hætti, t.a.m.
með tónleikum, en svo á leiðtogi sveit-
arinnar, Murdoc, til með að koma með
kjaftforar, á stundum hneyksl-
unargjarnar yfirlýsingar.
Fyrir þremur árum hófu Albarn og
Hewlett að vinna að verkefni sem þeir
kölluðu Carousel. Átti það að standa
utan við Gorillaz en á endanum þróað-
ist það upp í að verða þriðja plata sveit-
arinnar, Plastic Beach. Albarn hefur
lýst því yfir að þetta sé poppaðasta
plata Gorillaz til þessa en bætir við að:
„En ég reyni um leið að nýta þá
reynslu sem ég bý yfir til að ljá henni
eitthvað sem kalla mætti dýpt.“
Fyrsta lagið af plötunni sem fór í
spilun kallast „Stylo“ og þar má heyra
Mos Def og sjálfan Bobby Womack
syngja. Womack hafði enga hugmynd
um hvað Gorillaz væri en þar eð dóttir
hans fílaði hana ákvað hann að láta slag
standa!
Damon
apabróðir
Þriðja Gorillaz-plat-
an, Plastic Beach,
kemur út eftir helgi.
Þessi leynisveit Da-
mons Albarn er nú
búin að taka undir sig
dularfulla eyju, eins
og sjá má í teikn-
ingum hinnar Górill-
unnar, Jamie Hewlett
Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is
Górillunnar 2D, Murdoc Niccals, Noodle og Russel Hobbs og Plastströndin góða.
Fjöldinn allur af listamönnum leggur gjörva
hönd á plóg á plötunni. Þeir eru Snoop Dogg,
Hypnotic Brass Ensemble, Kano, Bashy,
Bobby Womack, Mos Def, Gruff Rhys, De La
Soul, Little Dragon, Mark E. Smith, Lou Reed,
Mick Jones, Paul Simonon, sinfonia ViVA og
The Lebanese National Orchestra for Oriental
Arabic Music. Einar Örn Benediktsson, ekta-
vinur Albarn, lagði þá til rödd á plötuna en
hún var á endanum ekki notuð og var hann
ekki sá eini sem það mátti þola.
Mark E. Smith, eins og Jamie
Hewlett sér hann fyrir sér.
Górillukórinn
Tónlist
Upptökustjórinn Steve Lillywhite (U2 og
fleira) ásælist sæti Simon Cowell í American
Idol, en Cowell er sem kunnugt er á leiðinni í
X-Factor. Lillywhite er það áfjáður í að vera
arftaki Cowell, einhverra hluta vegna, að
hann hefur póstað stuttu myndbandi á you-
tube þar sem hann lýsir mætti sínum og
megin og ástæðunum fyrir því að hann ætti
að fá starfið.
Steve Lillywhite
Steve Lillywhite vill
stól Cowell