SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Qupperneq 4

SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Qupperneq 4
4 18. apríl 2010 Styrmir Gunnarsson hrósaði Borgarahreyfingunni á fundinum, sem hreyfingin hélt á fimmtudag, og þeim grasrótarhreyfingum, sem hefðu sprottið upp eftir hrunið, og spurði hver hefði komið ríkisstjórn Geirs H. Haarde frá. Staðið hefði til að hún sæti áfram og stjórnmálaflokkarnir hefðu ekki fellt hana: „Þið, sem genguð um göturnar gerðuð það.“ Styrmir sagði að grasrótarhreyfingarnar hefðu slegið réttan tón: „Ég hef skilið tóninn sem grasrótarhreyfingarnar hafa slegið frá upphafi fyrst og fremst á einn veg, að fólk- ið sem mótmælti á götunum í fyrra hafi verið að gera kröfu um aukið lýðræði, um meira lýðræði og opnara og gagnsærra samfélag.“ Hann bætti við að eina leiðin út úr kreppunni væri beint lýðræði, „í staðinn fyrir að kjósa fámennan hóp á nokkurra ára fresti taki fólkið sjálft allar meginákvarðanir, alveg sama hvort það er virkjun við Kárahnjúka, auðlindagjald í sjávarútvegi eða breytingar á kvótakerfinu“. Þegar honum var svarað með gagnrýni á beint lýð- ræði í Sviss stóð ekki á svari: „Pólitíska yfirstéttin á Íslandi mun alltaf finna einhverjar leiðir til að halda því fram að hið beina lýðræði sé ekki rétt aðferð.“ Hugmyndum sínum væri svarað með því að stórir að- ilar gætu keypt atkvæði kjósenda eða hinn venjulegi borgari hefði hvorki menntun né þekkingu til að taka sömu ákvarðanir og 63 þingmenn, en þeir væru í grundvallaratriðum hvorki betur menntaðir né betur upplýstir en fólkið salnum og væru á engan hátt bet- ur til þess fallnir en það og aðrir Íslendingar, sem rétt hefðu til að taka þátt í kosningum, til að taka slíkar ákvarðanir: „Þess vegna segi ég: það á að færa þetta vald til fólksins.“ Það á að færa þetta vald til fólksins Morgunblaðið/Ómar S kýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna er ekki opinberun í þeim skilningi að niðurstaða hennar komi á óvart. Hún er í einni setningu sú að meg- inábyrgðin er bankanna og stjórnkerfið brást með aðgerðarleysi sínu þrátt fyrir vitneskju um að allt væri komið í óefni. Skýrslan er hins veg- ar mjög rækileg krufning á fallinu og þar er mikið um upplýsingar, sem ekki hafa komið fram áður. Við því var að búast að í svo umfangsmikilli skýrslu fyndu allir eitthvað við sitt hæfi, eitt- hvað til að renna rökum undir sína kenningu um það hvers vegna íslenskt samfélag hefði farið á hliðina. Umræður um skýrsluna hafa að mestu leyti snúist um fortíðina. Spurt er hvað gerðist, hvers vegna og hver bar ábyrgðina. Við þessum spurningum verða að fást svör, en það er einnig lykilatriði að af henni verði dreginn lærdómur. Sú hugsun lá að baki orðum Páls Hreinssonar, formanns rannsóknarnefnd- arinnar, þegar hann hóf blaðamannafundinn til kynningar skýrslunni á mánudag með því að segja að nú þyrfti að bretta upp ermar og breyta því, sem breyta þyrfti. En hverju þarf að breyta? Auðveldar ákvarðanir um framtíðina Á meðan uppgjörið við hrunið yfirgnæfði um- ræðuna í fjölmiðlum hélt Borgarahreyfingin fund á fimmtudag undir yfirskriftinni „Hvað næst?“ þar sem frummælendur voru Jón Bald- vin Hannibalsson, fyrrverandi stjórnmálafor- ingi, Sigrún Davíðsdóttir fréttamaður og Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Spurningarnar á fundinum voru þrjár. Er stjórnmálaflokkunum treyst- andi? Hverra er ábyrgðin? Er þörf á nýjum samfélagssáttmála? Styrmir talaði tæpitungulaust á fundinum. Íslenskt þjóðfélag væri í raun hrunið og enginn trúverðugleiki eftir í því. Það væri gott að skýrslan „færði okkur heim sanninn um það, sem í alvörunni hefur verið að gerast hér á undanförnum árum“. Í því væri fólgin ákveðin von um framtíðina vegna þess að nú vissi fólk almennt hvað hefði verið á ferðinni á Íslandi „og þegar sú vitneskja liggur fyrir held ég að sé miklu auðveldara að taka ákvarðanir um fram- tíðina“. Sigrún Davíðsdóttir lagði áherslu á gerend- urna í bönkunum og sagði að það bæri vitni gríðarlegum hroka þeirra að kvarta undan því að þeir hefðu ekki verið stöðvaðir, en einnig hefði verið ógnvekjandi að heyra því lýst hvernig ekkert hefði verið gert í stjórnkerfinu þrátt fyrir vitneskju. Hún hafnaði því að öll þjóðin bæri ábyrgð á hruninu. Nýtt form lagar ekki hugarfar Sigrún vildi ekki svara því hvort þörf væri á nýjum samfélagssáttmála, en kvaðst trúa á ein- faldar afmarkaðar aðgerðir. Hún talaði um kunningja- og klíkusamfélagið og kvaðst ekki vera viss um að „ný lög og nýtt hitt og þetta“ breytti miklu um þau grundvallarvandamál, sem við væri að etja á Íslandi, að sumir fengju að gera hlutina og aðrir ekki samkvæmt ein- hverjum afstæðum kvarða. Hún sagði að vand- inn lægi í hugarfarinu, sem virtist liggja djúpt: „Það er engin allsherjarlausn að laga einhver form ef hér er einlægur brotavilji, sem glíma þarf við.“ Jón Baldvin tók undir þetta og sagði að helmingur embættisveitinga á Íslandi réðist af flokksskírteini, ekki hæfni. Jón Baldvin sagði að margir hefðu óttast að skýrslan yrði kattarþvottur, en svo væri ekki. Hans helsta gagnrýni var að formaður Sam- fylkingarinnar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefði verið undanskilinn. Hún hefði verið for- maður annars stjórnarflokksins í ríkisstjórn Geirs H. Haarde og bæri því jafna ábyrgð og hann á verkum þeirrar stjórnar. Nú væri að sjá hvort þingnefndin, sem fjalla á um skýrsluna, hefði manndóm í sér til að ákæra ráðherra og draga fyrir landsdóm og láta þá svara til saka, hvort sérstakur saksóknari með ábendingar í höndunum muni fylgja þeim eftir með máls- höfðun. „Það mun breyta miklu í þessu þjóð- félagi ef við getum sannfærst um að hér séu stjórnvöld, sem tryggi réttlæti,“ sagði Jón Baldvin. „Ef það bregst er fátt um fína drætti. Ef það tekst er það skref fram á við.“ Næsta skrefið væri hins vegar stóra spurn- ingin: Hvað við ætluðum að læra af óförum okkar: „Trúum við því að við getum gert þetta með smáskammtalækningum, skref fyrir skref, höfum við einhverja trú á því að við getum gert þetta innan stjórnmálaflokkanna eða höldum við að við þurfum að gera það eins og í Frakk- landi fyrir Du Gaulle þegar fjórða lýðveldið var komið í þrot, að það þurfi að byrja upp á nýtt og byggja nýtt samfélag á nýjum grunni. Ykkar er valið.“ Í leit að lausnum Hvað nú þegar skýrslan um hrun- ið liggur fyrir? Grasrótarhreyfingar hafa látið að sér kveða eftir hrunið og þær fara sínar leiðir til að vekja umræðu og þoka henni áfram. Morgunblaðið/Ómar Vikuspegill Karl Blöndal kbl@mbl.is Spurningar úr sal á fundi Borgarahreyf- ingarinnar á fimmtu- dag um hver séu næstu skref eftir skýrslu rannsókn- arnefndarinnar end- urspegluðu margar vantrú á íslensku valdakerfi. Einn spyrj- andi sagði að við sem þjóð fengjum það sem við kysum og í boði væri „ömurlegt, verra, skítt og glat- að“. Annar notaði garðyrkjulíkingu og spurði hvort til nokk- urs væri að vökva rætur stjórnkerfisins ef tréð væri dautt. Ömurlegt, verra, skítt og glatað ódýrt og gott! Krónu kjúk lingur599kr.kg

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.