SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Side 10
10 18. apríl 2010
H
inn 23. nóvember 2008, einum og hálfum mánuði eftir
bankahrun, birtist í sunnudagsblaði Morgunblaðsins
fréttaskýring eftir mig, undir fyrirsögninni Sjónarspil
og sýndarleikir Glitnis og FL.
Í greininni, sem var byggð á hluta af lánabók Glitnis frá 31. janúar
2008, var baktjaldamakk í Glitni
rakið, þar sem tugir milljarða króna
voru lánaðir úr bankanum til hand-
valinna Baugstengdra aðila, sem svo
vitanlega töpuðust allir. Það var Jón
Ásgeir Jóhannesson sem sá um val-
ið.
Morgunblaðið var varla komið úr
prentvélinni laugardaginn 22. nóv-
ember þegar Jón Ásgeir hafði
brugðist harkalega við fréttaskýr-
ingu minni. Hann fékk birta svar-
grein eftir sig í Fréttablaðinu á leið-
araopnu sunnudaginn 23.
nóvember (sama dag og greinin
birtist í Mogganum) og símleiðis hót-
aði Jón Ásgeir mér málsókn.
Jón Ásgeir fór mikinn í grein sinni
sem birtist undir fyrirsögninni
Órökstuddar dylgjur.
Hér eru nokkrar orðréttar tilvitn-
anir í grein Jóns Ásgeirs: „Morgun-
blaðið heldur áfram að ráðast að mér
og tengdum félögum. Nú birtir Agnes
Bragadóttir upplýsingar um stöðu
einstakra viðskiptamanna við Glitni
hinn 31. janúar 2008.
Á grunni þeirra upplýsinga treystir Morgunblaðið sér til að slá
upp fjögurra dálka svörtum kassa á forsíðu þar sem fullyrt er:
„Helstu stjórnendur Glitnis ásamt fulltrúum stærsta hluthafans, FL
Group, brutu allar verklagsreglur við lánveitingar“ og að líklegt sé
„talið að krafist verði opinberrar rannsóknar á viðskiptunum“,“
segir Jón Ásgeir m.a. í grein sinni.
Síðar segir hann: „Morgunblaðið er væntanlega að reyna að sá
þeirri hugmynd að stærstu eigendur Glitnis, félög tengd mér, hafi
gengið um sjóði Glitnis eins og þeir ættu þá …
Tilgangurinn helgar meðalið
Það stendur ekki steinn yfir steini í svikabrigslum Agnesar. Það er
líklega vegna þess að hún hefur ákveðið fyrirfram, eins og hirðin
sem hún tilheyrir, að allt sem tengist mér og mínum félögum sé tóm
spilling og svikamylla. Hugsanlega veit Agnes betur, en tilgang-
urinn helgar meðalið.
Ég get skilið að venjulegt fólk, sem hefur því miður orðið fyrir
barðinu á hruni íslensks efnahagslífs, sé reitt og leiti skýringa, jafn-
vel sökudólga. Það ríkir mikil tortryggni og andúð í garð bankanna,
fjárfestingafélaganna og ekki síst þeirra einstaklinga í viðskiptalíf-
inu sem mest hefur borið á. Ég mun standa skil á því sem að mér
snýr og vík mér ekki undan þeirri ábyrgð sem ég ber. Ég veit að ég
hef ekki aðhafst neitt ólöglegt og neita því að sitja undir ítrekuðum
ásökunum á borð við þær sem Agnes ber á borð, í trausti þess að fólk
geri ekki kröfur um að svikabrigslin séu rökstudd.
Hvað gengur Morgunblaðinu til? Hverra erinda gengur blaðið? Af
hverju hafa órökstuddar ávirðingar í nýlegum greinaskrifum ein-
staklinga ratað í þrígang á forsíðu blaðsins? Af hverju er Agnes
Bragadóttir með mig og tengd félög á heilanum, en fjallar lítið sem
ekkert um aðra banka eða eigendur blaðsins? Af hverju eyðir seðla-
bankastjóri stórum hluta ræðu sinnar hjá Viðskiptaráði í ósannindi
um að ég stjórni öllum fjölmiðlum í landinu og að ég skuldi þúsund
milljarða?
Það er sjálfsagt og eðlilegt að fjallað sé með gagnrýnum hætti um
viðskiptalífið ... en sú gagnrýni verður að byggjast á staðreyndum
og rökum, ekki síendurteknum ósannindum, dylgjum og slúðri.“
Þótt lygin sé endurtekin út í eitt verður hún ekki sönn. Jón Ásgeir
og félög honum tengd skulda 5,74 milljónir evra, eða tæpa þúsund
milljarða króna, samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.
Lánveitingar Glitnis sem ég fjallaði um eru
til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara.
Ekkert af þessu er „ósannindi, dylgjur
og slúður“.
Að endur-
taka lygina
nógu oft
’
Þótt lygin sé
endurtekin
út í eitt
verður hún ekki
sönn. Jón Ásgeir
og félög honum
tengd skulda 5,74
milljónir evra.
06:00 Ég vakna vanalega á
þessum tíma. Hlustaði á ágæta
klassík í Ríkisútvarpinu á meðan
ég fékk mér kornmeti og súr-
mjólk, en það gerir mig vitlaus-
an að heyra alltaf eitthvert
gerviklapp sem þeir leika eftir
hvert tónverk – alltaf sama
klappið eins og upp úr dós. Þeir
halda sennilega að ekkert
venjulegt fólk hlusti á útvarpið
fyrir allar aldir.
07:00 Vann ég að verki í
sambandi við valnefnd í stöðu
eldfjallafræðings við Háskóla Ís-
lands.
08:30 Fór ég í bakaríið í
Stykkishólmi til að kaupa brauð
og nesti í mína daglegu göngu-
ferð. Í þetta sinn fórum við í
tveggja tíma göngu í Helgafells-
sveit, framhjá Smyrilshamri og
Árnesborg, að ósum þar sem
Gríshólsá og Bakkaá falla í Hofs-
staðavog. Gangan varð að vera í
styttra lagi í dag, þar sem við
vorum enn stirð eftir fimm tíma
gönguna í Búðahrauni í gær.
Hápunkturinn í gær var að finna
yndislegt vetrarblóm (saxifraga)
í blóma í hrauninu. Fyrsta villta
blómið sem ég sé í vor. Veður
var hið besta til göngu í morgun,
þurrt og enginn vindur. Ég rakst
á nokkra bergganga í fjörunni og
falleg rauð millilög af fornum
jarðvegi milli tertíeru blágrýt-
ishraunlaganna. Svo rakst ég á
fornt hraunlag af líparíti, rétt
hjá spennistöðinni, en það kom
mér mikið á óvart. Þetta svæði
er svo fallegt að ég skil ekkert í
því að ég skuli ekki hafa gengið
hér fyrr.
Það er víst oft svo að maður
leitar langt yfir skammt.
12:00 Var mér boðið í nýja
soðna ýsu og kartöflur hjá Stellu
frænku minni, en hún og Sig-
urður Hauksson gátu frætt mig
frekar um örnefni á stöðum þar
sem ég fór um á gönguleiðinni.
Ambáttarskeið? Hvaða saga er
nú á bak við það örnefni? Var
ambáttin á flótta? Undan hverj-
um?
13:00 Fór ég að vinna við
handrit fyrir vídeósýningu um
gosið á Fimmvörðuhálsi, sem
verður sýnt í Eldfjallasafni í
sumar. Ég er að reyna að kynn-
ast betur iMovie HD-forritinu til
að skapa vídeómyndina. Þetta
eru allt of margir valmöguleik-
ar!
16:00 Ég skrapp yfir í gamla
barnaskólann, rétt hinum meg-
in við götuna, en þar hef ég her-
bergi sem ég nota fyrir fag-
bókasafn Eldfjallasafns. Það er
dálítið skrítið að vera kominn
inn í gamla skólahúsið aftur, en
ég var hér í barnaskóla fyrir um
59 árum.
Skrifaði blogg á vulkan.blog.is
um bólstraberg. Mér finnst að
fólk ætti almennt að vita um
bólstraberg, þar sem það er al-
gengasta hrauntegund á jörð-
inni, en sést aðeins neðansjávar,
– nema á Íslandi, þar sem
bólstraberg hefur myndast við
eldgos undir jöklum. Það er
næstum því jafnmerkilegt og
móberg! Skrapp út í búð og tók
eftir því að það er bara besta
veður í Hólminum. Kíkti á óró-
ann sem er mældur á Goða-
bungu og jarðskjálfta undir
Eyjafjallajökli, sem eru nú næst-
um hættir. Mér sýnist gosið al-
veg að deyja út. Þetta var stutt
og laggott. Samt væri nú gaman
ef gosið tæki sig upp aftur,
svona eins og nokkrar dauða-
hryglur. Er samt að hugsa um að
skreppa á Fimmvörðuháls á
helginni.
18:30 Það er kominn kvöld-
matur og ég er að steikja bleikju
í matinn. Ég reyni að bægja frá
mér óskemmtilegum hugsunum
um rannsóknarskýrsluna um
bankahrunið, en er farinn að
hlakka til göngunnar í fyrra-
málið. Er ekki dásamlegt að hafa
eitthvað til að hlakka til? Ég fæ
að sjá grjót sem ég hef aldrei séð
áður! Á hvaða fjall á Snæfellsnesi
skyldi gangan á morgun nú
verða? Ég verð að halda áfram
að ganga daglega, því annars fæ
ég brauðfætur. Þeir koma víst
hvort sem er með aldrinum …
Vissara að fara snemma í
rúmið, enda aldrei neitt af viti í
sjónvarpinu.
Dagur í lífi Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings
Haraldur Sigurðsson við eldgosið á Fimmvörðuhálsi.
Morgunblaðið/RAX
Dagleg ganga kemur í
veg fyrir brauðfætur
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Breyttu lífi þínu til hins betra? Gerðu eitthvað í málunum núna
Lifandi og nærandi
Lífsstílsnámskeið
Tryggðu þér pláss á þessu
einstaka námskeiði.
Síðast komust færri að en vildu.
Námskeið umnæringuna í lífi okkar.
Heildræn nálgun þar sem horft er til
lífshátta, hugarfars og næringar.
Mataræði, uppskriftir, yoga,
hugleiðsla og hamingjufyrirlestur
meðÁsdísi Olsen. Takmarkaður
fjöldi þátttakenda.
Heilsusamlegmáltíð fráMaður
Lifandi fylgir í hvert skipti.
Verð 39.000 kr.
Nánari upplýsingar á heimasíðu
okkar www.madurlifandi.is
Námskeiðin eru undir
handleiðslu Ingibjargar
Stefánsdóttur,
jógakennara,
markþjálfa og
heilsuráðgjafa
Borgartúni 24 - Hæðarsmára 6 - Hafnarborg - s: 58 58 700 - www.madurlifandi.is