SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Side 22
22 18. apríl 2010
É
g hefði viljað vera heima í morg-
un og fylgjast með þegar þær
báru, en við ákváðum að vera
ekki heima í nótt því það er svo
óumræðilega erfitt að rýma um miðja
nótt,“ sagði Anna Runólfsdóttir bóndi
þegar við gengum með henni um túnin í
Fljótsdal síðastliðinn fimmtudag. Hún er
að huga að lömbunum sem fæddust
snemma um morguninn, áður en hún
kom heim frá frænku sinni þar sem fjöl-
skyldan gisti í tvær nætur vegna eldgoss-
ins í Eyjafjallajökli.
Hún fer með lambærnar inn í fjárhús,
gefur lömbunum næringu og leyfir þeim
aðeins að jafna sig. „Þær geta farið fljótt út
aftur, ef gos leyfir,“ segir Anna.
Sauðburður hófst of snemma í Fljótsdal
því hrútur slapp í túnið undir lok nóv-
ember. „Ég vissi af því en vonaði að ekki
yrði mikill skaði en hann hefur verið mjög
skilvirkur og náð að lemba sex til sjö ær.“
Við erum komin með Önnu inn í fjár-
húsin þar sem hún er að reyna að koma
skipulagi á féð. „Ég veit ekki hver á
hvað,“ segir hún. Rýmingin setti allt úr
skorðum í sauðburðinum. Þrjár ær voru
saman í kró. Tvær báru á meðan Anna var
að heiman. Hún er viss um að önnur hafi
borið þremur lömbum en hin einu. Tvö
lömb gengu með þeirri sem Anna taldi
einlembda og hún hafði áhyggjur af því að
aukalambið fengi ekki nóg. Þess vegna
sleppti hún kindum sem komnar voru að
burði út þegar hún þurfti næst að fara að
heiman þannig að þær gætu borið úti í ró
og næði.
„Þetta er ekki góð tímasetning fyrir gos
og rýmingu,“ segir hún.
Eins og dekkjabrenna
Anna og maður hennar, Þorkell Daníel Ei-
ríksson, eru með tvö lítil börn, telpu á
fjórða ári og sex mánaða dreng. Bústofn-
inn er rúmlega tvö hundruð kindur.
Fljótsdalur er innsti bærinn í Fljótshlíð
og er því nokkuð afskekktur. Það breyttist
raunar á einni nóttu þegar eldgosið hófst á
Fimmvörðuhálsi, þá var Fljótsdalur
skyndilega kominn í alfaraleið Íslendinga
sem þyrsti í að sjá eldgos. „Þið eruð fyrstu
blaðamennirnir núna en síminn stoppaði
ekki í fyrra gosinu,“ segir Anna sem aftur
hafði nóg að gera við símsvörun í flóðinu
nú á fimmtudagskvöldið.
Eldstöðvarnar blasa við úr stofuglugg-
anum í Fljótsdal. Skriðjökullinn Gígjökull
þar sem jökulvatnið frussast reglulega úr
toppgíg Eyjafjallajökuls. Fjær sést í Fimm-
vörðuháls þar sem fyrra eldgosið varð. Þá
er stóra ógnin, Katla í Mýrdalsjökli, ekki
langt undan.
Anna notar orðið óþægilegt þegar hún
er spurð að því hvernig sé að búa undir
eldfjalli. Hún er alin upp á bænum. „Ég
hef alltaf vitað að við búum við eldfjöll og
sér í lagi hefur verið hugsað um áhrifin af
Kötlu.“
Þótt rýmingar séu erfiðar fyrir fjöl-
skyldufólk, ekki síst þegar rjúka þarf að
heiman í skyndingu að nóttu til, er Anna
ánægð með hvernig til hefur tekist. Gerð
var ný neyðaráætlun fyrir nokkrum árum
og svo vildi til að nokkrum dögum fyrir
fyrra eldgosið var farið yfir hana á fundum
með íbúunum. „Það setti alla í gírinn og
var góður undirbúningur,“ segir hún.
„Svo komu sms-skilaboð um rýmingu.
Þau komu á óvart og vegna umræðunnar
hélt ég fyrst að þetta væri gabb – nema
hvað tíminn var ekki líklegur til slíks, það
var komið fram yfir miðnætti. Það hvarfl-
aði að mér að einhver hefði nú rekið sig í
takkann hjá Neyðarlínunni,“ segir Anna.
Þau voru betur meðvituð um að eitt-
hvað væri að gerast þegar það fór að
krauma í toppgíg Eyjafjallajökuls fyrr í
þessari viku. „Það var skjálftavirkni þegar
við fórum að hátta. Svo komu sms-
skilaboð um rýmingu,“ segir Anna. Það
leyndi sér heldur ekkert hvað var að ger-
ast þegar litið var til jökulsins. „Vatnið
stóð eins og reykjarstrókur út úr jökl-
inum, það var eins og verið væri að
brenna dekkjum,“ segir Anna.
Ósofin og pirruð
Hún segir að bæði börnin hafi tekið þess-
ari röskun ótrúlega vel. „Það er auðveld-
ara með kornabarnið, það heldur bara
Sauðféð
á mig
algerlega
Anna Runólfsdóttir fylgist með eldgosum og flóð-
unum frá Eyjafjallajökli út um stofugluggann í
Fljótsdal. Eldgosin hafa raskað daglegu lífi fjöl-
skyldunnar og það kemur á versta tíma þar sem
sauðburður er hafinn. Anna er mikil sveitakona
og þykir ákaflega vænt um kindurnar. Það kem-
ur því á óvart að hún á sér annað og gjörólíkt líf,
hún er verkfræðingur og vinnur á mölinni.
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is
Margir snúningar eru á sauðburði og ekki hjálpa náttúruhamfarnir til. Anna fer með nýfædd lömb inn í fjár
Passað upp á bókhaldið. Anna Runólfsdóttir er að reyna að venja lamb undir kind sem missti annað