SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 24

SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 24
24 18. apríl 2010 E ltingaleikur fjölmiðla við Gervimann útlönd hefur staðið yfir þessa viku, en hann skýtur upp kollinum í skýrslu Rannsóknarnefndar Al- þingis og er þar „samheiti yfir 14 kennitölur yfir óþekkta aðila erlendis“. Þar er birtur listi yfir Gervi- menn frá fjórtán heimshornum og íslenskar kennitölur þeirra. Þær eru reyndar níu stafir í skýrslunni, en það skýrist væntanlega af því, að þær séu afritaðar úr reikni- forriti, en þá fellur fremsta núllið niður. Í skýrslunni er listi yfir 410 félög, sem kennitölur Gervimanna eru bendlaðar við yfir 10% eignarhlut í, á árunum 2006, 2007 og 2008. Þá er listi yfir arðgreiðslur til Gervimanns, þar sem hann er skráður eigandi, og nær hann til 64 fyrirtækja. Hæstu arðgreiðslurnar koma frá Kaupþingi eða um milljarður fyrstu tvö árin og tæpir tveir milljarðar þriðja árið. Er nema von að menn spyrji sig hver Gervimaður með stórum staf geti verið? Uppruni árið 1930 Það vakti forvitni blaðamanns þegar leitin hófst að Gervimaður Færeyjar hélt úti nafnlausu bloggi á Mbl.is. Hann spurðist fyrir um tildrög þess, sem varð til þess að blogginu var snarlega lokað. En til þess að stofna blogg- síðu þarf gilda kennitölu, því þær eru sjálfkrafa bornar saman við þjóðskrá. Það lá því beint við að knýja þar dyra. „Þetta er alveg makalaust,“ sagði Skúli Guðmunds- son, skrifstofustjóri Þjóðskrár, við blaðamann og áttaði sig engan veginn á því hvernig Gervimennirnir hefðu náð að gera sig gildandi í íslensku viðskiptalífi, hvað þá af hverju það gerðist árið 2006. „Það er skrýtið, því byrjað var að nota kennitölurnar fyrir meira en 25 árum og til að taka af allan vafa um að þær bæru með sér lög- ráða aldur, þá hefjast þær allar á 010130. Gervimennirnir eru því komnir á níræðisaldur.“ Og Gervimennirnir eru í raun gervimenn. Ástæðan fyrir því að þessar kennitölur voru búnar til er sú, að þegar ólögráða börn fóru til útlanda varð að vera hægt að tengja þau kennitölu lögráða einstaklings á þeim stað. „Íslenska þjóðskrárkerfið er þannig úr garði gert, að það verður að tengja ólögráða einstakling einhverjum lög- ráða einstaklingi. Og þegar ólögráða barn flytur til út- landa, til einhvers sem ekki er skráður í okkar kerfi, var þetta niðurstaðan á sínum tíma, svo hægt væri að halda utan um réttindi viðkomandi barns áfram. Annars hefði ekki verið hægt að lýsa þeirri staðreynd, að barnið væri flutt úr landi.“ Þetta átti til dæmis við ef barnið átti íslenskt foreldri hér á landi, en fór út til erlends foreldris, sem ekki átti kennitölu í þjóðskrárkerfinu. „Þá þurftum við að halda börnunum áfram í kerfinu, en gátum ekki tengt þau ein- um eða neinum, öðrum en svokölluðum Gervimanni,“ segir Skúli. „Því hitt foreldrið, sem barnið dvaldist hjá, var ekki með neina kennitölu á Íslandi. Lengi vel var að- eins ein kennitala, Gervimaður útlönd, en árið 1992 var ákveðið að stofna nýja kennitölu á Norðurlöndin og álf- urnar og helstu ríki, til þess að lýsa nánar hvar börn í reynd voru. Flest börn fara til Norðurlanda, síðan komu helstu álfurnar og að síðustu er gervimaður útlönd safn- heiti þeirra sem eftir standa. Þetta eru því kennitölur sem enginn notar í raun og veru og sem einungis er ætlað að sýna að barn sé í ákveðnu landi. Og allt í einu eru þessar kennitölur orðnar áhrifaafl í viðskiptum á Ísland.“ Hann þagnar. „Þetta er alveg með endemum. Í ljósi alls þessa, er spurning hvort Þjóðskrá sé ekki tilneydd til að breyta heiti þessa fyrirbæris, svo Gervimaðurinn ljúki sínu ein- kennilega hlutverki í íslensku viðskiptalífi.“ Ekki utangarðsskrá Enn átti þó eftir að rekja spor Gervimanna inn í við- skiptalífið. Þegar spurst var fyrir hjá fyrirtækjaskrá rík- isskattstjóra, sem býr til kennitölur fyrirtækja, þá kom starfsfólk þar af fjöllum, því hvorki fannst tangur né tetur af Gervimanninum í gögnum þar. Fyrirtækjaskrá hefur upplýsingar um fjölda fyrirtækja á hverjum tíma, rekstrarform og atvinnugreinaflokkun þeirra, einnig stjórnarsetu, framkvæmdastjóra, prókúru- hafa og endurskoðendur. En þar er ekki að finna upplýs- ingar um eignarhald fyrirtækja. „Við erum með sérstaka utangarðsskrá fyrirtækja, en þar eru eingöngu félög sem skráð eru erlendis,“ sagði Skúli Jónsson, forstöðumaður Fyrirtækjaskrár. „Við út- hlutum þessum aðilum kennitölum, en eingöngu vegna bankaviðskipta eða viðskipta við fjármálastofnanir. Til að komast í þá skrá þurfa fyrirtækin að leggja fram vottorð frá skráningarstofu erlendis, sem má ekki vera eldra en þriggja mánaða. Þar að auki höfum við gert kröfu um, sem hljómar kannski hlægilegt núna, að umsóknirnar fari í gegnum bankana. Það var til þess að skoðað yrði hvort þau tengdust peningaþvætti eða einhverri vafasamri starfsemi.“ Sambærileg utangarðsskrá, nema fyrir einstaklinga, er gefin út af þjóðskrá. Þá er kennitalan ekki fullgild, heldur einungis hægt að nota hana í viðskiptum og þá á nafni viðkomandi. En Gervimaður í útlöndum var ekki með gervi- kennitölu, heldur fullgilda kennitölu í Þjóðskrá. Og hvernig gat staðið á því? Á misskilningi byggt „Þetta er allt á misskilningi byggt,“ sagði Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte, þegar leitað var álits hjá honum. „Maður lítur yfir þennan lista og þar er mikið um erlend fyrirtæki, sem halda úti starfsemi hér á landi. Í sumum tilfellum hafa þau fengið kennitölu hérlendis, en sumum ekki. Margt af þessu sýnist mér ekki stand- ast skoðun. Ég sé á listanum mörg dótturfélög og jafn- vel útibú stórra erlendra fyrirtækja, sem eru með starfsemi hérna, og nákvæmlega ekkert óeðlilegt við það. Þarna er verið að vinna úr gögnum hjá ríkisskatt- stjóra og einhverra hluta vegna skilgreinir hann þetta svona. Ég skil það ekki. Þarna fær listi af fyrirtækjum þann stimpil að vera Gervimaður í útlöndum.“ – Og fleiri en fjórtán kennitölur? „Já, ég get ekki séð annað af listanum. Þetta er fullt af fyrirtækjum.“ Hann vísar svo á Völu Valtýsdóttur lögfræðing, sem hafði kynnt sér málið, og sagðist vita um að minnsta kosti fjögur fyrirtæki á listanum, sem hefðu verið stofnuð fyrir árið 2006. „Eitt er stofnað árið 1999,“ segir hún. „Þannig að ég veit ekki að hverju er verið að ýja með því að nefna ártalið 2006.“ Hún segir öll fyrirtækin á listanum að einhverju leyti í eigu erlendra aðila. „Það er auðvitað ekkert ljótt við það.“ Óþekktir aðilar En málið skýrist þegar leitað er í smiðju Skúla Eggerts Þórðarsonar ríkisskattstjóra. „Þetta er það sem kallað er gervikennitölur,“ segir hann. „Við höfum notað þær til að koma ákveðnum frumskrám inn í vöruhús gagna. Upplýsingarnar voru afhentar rannsókn- arnefnd Alþingis úr þessu vöruhúsi gagna og eru í sjálfu sér alveg réttar, en þó þannig að skattyfirvöld búa yfir ítarlegri upplýsingum um hluta af þessum hópi. Við höfum ekki kennitölur á þennan hóp og þar af leiðandi þurfum við að fara aftur í frumgögnin til að sækja upplýsingar, en þar má finna nöfn og heim- ilisföng sumra af þessum aðilum. En síðan vitum við ekkert um aðra. Það er ástæðan fyrir því að nefndin birtir töfluna, að við höfum engar haldbærar upplýs- ingar um þá eigendur.“ Ástæðan fyrir því að Gervimaður útlönd „stígur fram á sjónarsviðið 2006 og er þá orðinn skráður eig- andi íslenskra fyrirtækja“ er að þá var formi upplýs- inga í kerfi ríkisskattstjóra breytt. Í skýrslunni kemur raunar fram að á þessum tíma „voru skil á hlutafjár- Leitin að Gervi- manni í útlöndum Gervimaður útlönd er afar áhrifamikill í viðskiptalífinu, ef marka má skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. En þar sem lítið fer fyrir honum á torgum, var grennslast fyrir um forsögu hans. Pétur Blöndal pebl@mbl.is ’ Þá er huliðshjálmur yfir eignarhaldinu og ekki vitað um hvern ræðir, eins og kemur fram í skýrslu rannsókn- arnefndarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.