SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Qupperneq 33
18. apríl 2010 33
U
ppistöðufélagið sam-
anstendur af níu ungum
konum sem óðum eru að
hasla sér völl á vettvangi
uppistands á Íslandi. Félagið var sett á
laggirnar síðastliðið haust og hefur efnt
til þriggja uppistandskvölda á Næsta
bar fyrir troðfullu húsi. „Viðtökur hafa
verið vonum framar,“ segir einn Uppi-
stöðufélaga, Íris Ellenberger. „Eitt
kvöldið var meira að segja svo troðið að
blaðaljósmyndari sem boðað hafði
komu sína komst ekki inn í húsið.“
Auk þess að koma fram saman á sér-
stökum kvöldum hafa stelpur innan
hópsins tekið að sér uppistand hér og
þar með ágætum árangri.
Stofnandi Uppistöðufélagsins er
Þórdís Nadia Óskarsdóttir. Að sögn Ír-
isar auglýsti hún eftir stelpum á
Snjáldru (e. Facebook) og voru við-
brögð með ágætum. „Þangað til farið
var að tala um að koma fram op-
inberlega. Þá vildi engin gefa kost á
sér,“ segir Íris.
Nadia virkjaði þá nokkrar vinkonur
sínar og dró þær með sér út í djúpu
laugina. „Ég kom ekki inn í þetta alveg
strax,“ segir Íris, „en ég mætti á fyrsta
uppistandskvöldið og sá hvað þær
fengu frábærar viðtökur.“
Metnaðurinn hefur aukist
Eftir nokkrar þreifingar er hópurinn
nú fullmótaður og Íris staðfestir að
hann sé „býsna þéttur“. „Okkur hefur
farið hratt fram og margar stelpnanna
eru orðnar mjög færar. Metnaðurinn
hefur aukist kvöld frá kvöldi og við er-
um tilbúnar að stíga næsta skref.“
Spurð hvað hún eigi við með því
segir Íris að hópurinn hafi áform um að
koma fram oftar og jafnvel efna til
grínhátíðar. Hún leggur þó áherslu á,
að þau áform séu enn á hugmynda-
stiginu. „Eigum við ekki bara að segja
að við séum rétt að byrja.“
Enda þótt Uppistöðufélagið sé nú
lokaður klúbbur hvetur Íris allar konur
til að láta að sér kveða á vettvangi
uppistands. „Allar konur geta verið
fyndnar. Ég er til dæmis ekki þessi
dæmigerða brandarakerling og hélt
fyrir vikið að ég ætti ekkert erindi í
uppistand. Það var misskilningur. Ég
varð steinhissa þegar fólk hló eins og
vitleysingar að bröndurunum mínum
og var orðlaus yfir viðtökunum.“
Æfingin skapar meistarann í þessu
sem öðru og Íris segir uppistandara
snemma átta sig á því, þegar þeir
standa frammi fyrir hópi fólks, hvað
gengur og hvað ekki. „Ég hef fengið
mörg góð ráð og fylgst með atvinnu-
mönnunum en það er auðvitað lang-
best að vera óragur við að prófa sig
áfram.“
Eina reynslan sem Íris hafði af því að
koma fram áður en hún hellti sér út í
uppistandið var að flytja erindi en hún
leggur stund á doktorsnám í sagnfræði
við Háskóla Íslands. „Sú reynsla nýtist
mér ekki nema að afar takmörkuðu
leyti. Enda þótt lengi megi finna
spaugilega fleti á rannsóknarefninu er
tilgangurinn ekki að vera fyndinn þeg-
ar maður heldur fræðileg erindi,“ segir
hún sposk.
Enginn eðlismunur
Aðspurð kveðst Íris ekki greina mikinn
mun á körlum og konum í uppistandi.
Hver og einn uppistandari hafi sinn stíl
og stelpurnar séu mjög ólíkar inn-
byrðis, bæði í efnistökum og fram-
komu. „Það er auðvelt að þykjast sjá
einhvern eðlismun en satt best að segja
geri ég það ekki. Mér hugnast ekki
merkimiðinn „stelpuuppistand“.
Uppistandarar sækja iðulega í sitt nær-
umhverfi og stelpur eru ekkert öðru-
vísi en strákar í þeim efnum. Kannski
tölum við meira um kynlíf og sambönd
en strákarnir en það er samt ekki
gegnumgangandi,“ segir hún og hlær.
„Það sem skiptir mestu máli er að við
gerum þetta á okkar forsendum og
veltum ekki fyrir okkur hvað aðrir eru
að gera.“
Þess má geta að Áslaug Einarsdóttir
vinnur nú að gerð heimildarmyndar
um Uppistöðufélagið sem frumsýnd
verður á Skjaldborg á Patreksfirði um
hvítasunnuna.
Næsta uppistandskvöld Uppistöðu-
félagsins verður á miðvikudaginn
kemur á Næsta bar og hefst kl. 22. Þar
kemur Íris fram ásamt Margréti Erlu
Maack, Uglu Egilsdóttur og Þórdísi Na-
diu Óskarsdóttur.
Allar konur
geta verið
fyndnar
Íris Ellenberger greinir ekki mikinn mun á körlum og konum í uppistandi.
Morgunblaðið/Ernir
alklúbbnum, Comedy Store. Það var ótrúleg lífs-
reynsla og ég entist í tæpar fimm mínútur áður en ég
þurfti frá að hverfa. Það var þó hátíð miðað við suma
sem fóru upp á opnu kvöldi, ætli þetta hafi ekki verið
24 menn á heildina litið og þar af entist ekki nema
helmingurinn lengur en mínútu. Fyrst ég komst lif-
andi út úr þessum klúbbi hef ég ekkert að óttast.“
Hann segir breska áhorfendur ekki sýna neina mis-
kunn. „Formið er lengra komið þar en hér og sumir
áhorfendur mæta bara til þess að rakka menn niður.
Ég var ekki fyrr kominn á svið en einhver hrópaði á
mig: „Þú skuldar mér pening!“ Ég náði sem betur fer
að gera mikið grín úr því og svaraði á óvæntan hátt
fyrir land og þjóð. Það er ekkert elsku mamma þarna
en á móti kemur að Bretarnir hlæja eins og brjál-
æðingar líki þeim atriðið.“
Íslendingar auðmjúkir
Ari hefur sjaldan lent í óvæntum frammíköllum af
þessu tagi en segir uppistandara þurfa að vera undir
þau búin. „Láti menn frammíköll slá sig út af laginu er
alveg eins gott að snúa sér að einhverju öðru.“
Ari fer aftur utan um næstu helgi en á laugardag
verður Mið-Ísland með uppistand í íslenska menning-
arhúsinu í Kaupmannahöfn. Þar verður þó töluð ís-
lenska enda dagskráin ætluð Íslendingum í Dan-
mörku. „Hugmyndin er að bera mönnum fréttir
heiman úr héraði ef eldgosið sleppir okkur í gegn.“
Ari segir Íslendinga bestu áhorfendur í heimi.
„Stundum er sagt að Íslendingar séu dónar að eðlisfari
en það á ekki við í þessu sambandi, þeir munu alltaf
klappa fyrir listamönnum. Spurðu bara erlenda tón-
listarmenn sem hingað hafa komið. Það er nóg fyrir þá
að segja einu sinni „takk fyrir“ og þá eru þeir búnir að
bræða íslensku hjörtun, burtséð frá því hvort tónleik-
arnir eru góðir eða slæmir. Mín kenning er sú að þetta
sé ekki sveitamennska heldur þróað form af kurteisi.
Þegar allt kemur til alls eru Íslendingar upp til hópa
auðmjúkir og vita að skemmtun er ekki sjálfsagður
hlutur.“
Ari er bjartsýnn á framtíð uppistands á Íslandi. Sár-
lega vanti þó fastan samastað, yfirlýstan grínklúbb.
„Stelpurnar í Uppistöðufélaginu hafa verið á Næsta
bar og á tímabili vorum við búnir að hreiðra um okk-
ur á Batteríinu, sem var mjög fínn staður. Okkur var
því ekki hlátur í huga þegar hann brann. En leitin
heldur áfram. Ekki verður aftur snúið úr þessu.“
Morgunblaðið/Eggert