SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Qupperneq 45
18. apríl 2010 45
Leikhúsin í landinu
www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Sun 18/4 kl. 16:00 Ö
Fös 23/4 kl. 20:00 U
Fös 30/4 kl. 20:00 U
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
Gunni Þórðar - lífið og lögin (Söguloftið)
Lau 17/4 kl. 17:00
Lau 24/4 kl. 17:00
Sun 2/5 kl. 16:00
Lau 8/5 kl. 17:00
Fös 14/5 kl. 20:00
Lau 22/5 kl. 17:00
Fös 28/5 kl. 20:00
Jón Gnarr. Lifandi í Landnámssetri (Söguloftið)
Lau 24/4 kl. 20:00
Lau 1/5 kl. 20:00
Lau 8/5 kl. 20:00
Lau 15/5 kl. 20:00
Lau 22/5 kl. 20:00
Lau 29/5 kl. 20:00
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Draugagangur í Óperunni
Fim 29/4 kl. 20:00
Hellisbúinn
Fös 23/4 kl. 20:00
Síðustu sýningar!
Sunnudagur
Rúnar Sigurpálsson sé að það er
komin grúppa hérna „Vegtollar út
frá Reykjavík“. Finnst að fólk þurfi
ekki að borga til að flýja þetta ve-
sældarþorp.
Helga Waage Sjaldan hafa eins
margir beðið eins spenntir eftir bók
sem þeir ætla ekki að lesa.
Soffía Auður Birgisdóttir Ætti mað-
ur að láta binda rannsóknarskýrsl-
una inn í leður og setja allt ritsafnið
upp í hillu við hliðina á Laxness?
Mánudagur
Arnar Másson Er stoltur af sinni
konu. Hljóp Parísarmaraþon í dag á
3 klst. og 13 mín. Einungis níu kon-
ur á Íslandi hafa hlaupið maraþon
hraðar hún.
Þriðjudagur
Erlingur Erlings Aftur til Khost á
morgun. Fjarri harmakveinum
hrunsins og þarf ekki að hafa
áhyggjur af neinu nema vegs-
prengjum, stöku eldflaugum og
sjálfsmorðssprengjuárásum. Þýðir
ekki að spyrja, ég vil ekki skipta.
Miðvikudagur
Svanhildur Hólm Valsdóttir missti
símann sinn ofan í skúringafötuna.
Það þýðir því ekkert að hringja.
Sölvi Snær Magnússon Kann virki-
lega að meta Matthías Johann-
essen skáld.
Fimmtudagur
Gerður Kristný á færeyskan vin
sem setti inn þessa færslu: Asj, nú
má eg fara at dustsúgva mær garð-
in.
Hallgrímur Ólafsson Hvenær á að
gefa skýrsluna út með sið-
blindraletri? Maður spyr sig …
Föstudagur
Bergþóra Jónsdóttir hugsar um allt
góða íslenska byggið og hveitið frá
Þorvaldseyri sem hefur farið í
brauðbakstur á heimilinu síðustu
misserin og vonar að undir jöklinum
þrífist áfram bleikir akrar og slegin
tún þrátt fyrir hamfarirnar núna.
Anna Kristín Ásbjörnsdóttir „Þú
mátt verða gamall, en það er bann-
að að vera gamall.“ Sigurður Páls-
son ljóðskáld.
Fésbók vikunnar flett
Páll Hreinsson með skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis.
Morgunblaðið/Kristinn
B
laðamenn víða í Evr-
ópu hafa gert að
gamni sínu und-
anfarna daga með því
að kalla eldgosið, fyrst í Fimm-
vörðuhálsi og nú í Eyja-
fjallajökli, hefnd Íslendinga
gagnvart þeim sem þjóðin hefur
átt í erjum við vegna Icesave.
Einn þessara erlendu starfs-
bræðra er Jeremy Warner, að-
stoðarritstjóri á hinu breska
Daily Telegraph, en hann sér-
hæfir sig í umfjöllun um við-
skipti og efnahagsmál.
Árangursríkara
en viðskiptabann
Nú virðist sýna sig, segir War-
ner, að vilji lítið land ná sér
niðri á öðru mun stærra sé eng-
in leið árangursríkari en spú-
andi eldfjall. Viðskiptabann,
hversu árangursríkt sem það
kynni að verða, gæti ekki haft
meiri áhrif en þær efnahags-
hörmungar sem gosið í Eyja-
fjallajökli geti mögulega valdið
Bretlandi og raunar stórum
hluta Norður-Evrópu, segir
hann í blaðinu.
„Ég geri ráð fyrir að það,
hversu dýrkeypt þetta verður,
ráðist af vindáttum og lengd
gossins,“ segir hann, en lokun
breskrar flughelgi mun hafa
veruleg efnahagsleg áhrif. Hag-
kerfi Bretlands sé eitt hið opn-
asta í heimi og gríðarlega miklu
máli skipti að fólk geti ferðast
til og frá landinu. „Hið eina
sambærilega sem mér dettur í
hug er lokum bandarísku loft-
helginnar í kjölfar [hryðju-
verkaárásanna] 11. september.“
Warner segir enn ekki hægt að
gera sér grein fyrir því með
vissu hve miklu tjóni sú lokun
olli en þó sé vitað að bandaríska
alríkisstjórnin pungaði út gríð-
arlegum fjárhæðum – bæði í
formi styrkja og lána – til þess
að koma í veg fyrir að fjöldi
flugfélaga legði upp laupana.
Tekjutap þeirra hafi numið
milljörðum dollara.
Losunarheimildir fyrir hendi?
Fólk hefur velt því fyrir sér á
netinu hvort Íslendingar hafi
losunarheimildir vegna þeirra
lofttegunda sem berist út í and-
rúmsloftið í kjölfar eldgossins!
Slíkar vangaveltur eru í sjálfu
sér eðlilegar; vitaskuld ekki
hvort heimildir eru fyrir hendi
heldur að almenningur velti
fyrir sér hvað þarna er á ferð-
inni og hve magnið er mikið.
Úr iðrum jarðar koma nefni-
lega að hluta til sömu efni og
maðurinn dælir út í andrúms-
loftið með brennslu olíu og
kola, t.d. koltvíoxíð (CO2) sem
er líklega kunnast gróðurhúsa-
lofttegundanna sem svo eru
kallaðar. Við rannsóknir á
Fimmvörðuhálsi á dögunum
kom í ljós að magnið var um-
talsvert en vísindamaður sem
Morgunblaðið ræddi við í gær
sagði ekki enn hægt að fullyrða
neitt varðandi Eyjafjallajökul.
Í Financial Times er fall ís-
lensku bankanna rifjað upp í
vikunni; að þeir hafi sprungið í
loft upp í hittiðfyrra og það
reynst breskum og hollenskum
yfirvöldum dýrkeypt.
Nú hafi önnur sprenging orð-
ið á Íslandi og aftur séu áhrifin
mikil í löndunum tveimur.
Hermt er í blaðinu að „vinir“
Íslendinga sleppi reyndar ekki
því öskufallið hafi einnig áhrif á
flugsamgöngur í Skandinavíu,
en frændþjóðirnar þar hafi ver-
ið reiðubúnir að aðstoða Ís-
lendinga eftir bankahrunið.
Blaðamaður Financial Times
ætti kannski að kynna sér að-
eins betur viðhorf frændþjóð-
anna í Skandinavíu. Þá skildi
hann hugsanlega hvers vegna
askan leitar í svo miklum mæli
þangað líka …
Hefnd Íslendinga
vegna Icesave?
Efni sem berast út í andrúmslofið
úr iðrum Eyjafjallajökuls eru að hluta
til þau sömu og valda hinum
margumræddu gróðurhúsaáhrifum.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Gríðarlegt öskufall hefur verið á Mýrdalssandi en askan hefur áhrif víða; flugsamgöngur liggja niðri víða álfunni.
Morgunblaðið/Ómar
568 8000 – borgarleikhus.is –midasala@borgarleikhus.is
Upplýsingar um sýningar á
Borgarleikhus.is
Gauragangur HHHH EB, Fbl
Faust HHHH IÞ, Mbl
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Mbl., GB
Nánar á leikhus
id.is
Sími miðasölu
551 1200
Síðasta sýning 25. aprí
l
Tryggðu þér miða á þes
sa frábæru fjölskyldusý
ningu!