SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Qupperneq 47
18. apríl 2010 47
LÁRÉTT
1. Mát fyrir óhreinindi heimilisins koma með ómerki-
legu tapi. (13)
7. Bungur Laxness innihalda eina sem er pen og
skepnur. (10)
8. Fer Eiki flókna leið að finna dráttardýr. (7)
10. Klukkur spjalla hálflauslega um hjálparlítinn.
(10)
11. Spil notað á bíl? (7)
12. Salta aftur fyrir jötun. (5)
14. Kim fer í létta flugfarið til að komast á miðin. (8)
16. Brennir glaður að hluta fyrir ruglaðan. (10)
18. Hefurðu hitt Ara eftir að hann gerðist handverks-
maður. (7)
20. Andstæða og mótrök gegn spurningaþætti? (7)
22. Tek fugla sem lærlinga. (8)
25. Ameríka tapar einum út af myndavél. (6)
26. Kærleikur kom í heimsókn hjá rómantískum.
(10)
27. Radísa brotnar hjá persónu á góðum stað. (7)
29. Lætur höfuðból. (5)
30. Félagi Grana á yngri árum fékk sneið. (9)
31. Kræfar lifa einhvern veginn á mat. (10)
LÓÐRÉTT
2. Stakur nær að munda það sem hefur takmark-
aða notkun. (7)
3. Runnum til baka í líkamshluta. (6)
4. Band notað í leiklist. (5)
5. Þúsund eru örg og æst yfir fugli. (6)
6. Lækna tímarit með pörtum af hjarna. (9)
7. Föst í brú nær að sýna vinnu. (7)
8. Fyrir arm færðu skít skordýrs. (7)
9. Blástur læt vera sem jarðveg. (7)
12. Vigta Aðalstein að minnsta kosti. (8)
13. Gestur fær nasl af því að hann varð án bands.
(10)
15. Sjór dragi andann hálfvegis í kafi. (7)
17. Stök skriða sýnir staðfestu. (6)
18. Hlátur er hálfvegis vegna Ægis og þess að hann
er rólegur. (8)
19. Láta raus gera sig ógrátandi. (8)
21. Erindi á dansgólfi. (9)
23. Nei, myrði ruglaðan með aðdróttun. (8)
24. Flugeldur skaddaðs. (6)
28. Alger verður öfugsnúin út af skipan. (5)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni í um-
slagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum 2,
110 Reykjavík. Frestur til að skila
úrlausn krossgátu 18. apríl rennur
út fimmtudaginn 22. apríl. Nafn
vinningshafans birtist í blaðinu 25. apríl. Heppinn
þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi kross-
gátunnar 11. apríl sl. er Ingibjörg Sól Ingólfsdóttir.
Hún hlýtur í verðlaun bókina Svörtuloft eftir Arnald
Indriðason. Vaka-Helgafell gefur út.
Krossgátuverðlaun
Öflugustu skákbræður Íslands í
dag – og er þá átt við bræður
sem tefla eitthvað að ráði – eru
Björn Þorfinnsson og Bragi Þor-
finnsson. Það er full ástæða til að
hafa fyrirvara á, því þennan titil
báru áður Jón L. og Ásgeir Þór
Árnasynir og um tíma Helgi Áss
og Andri Áss Grétarssynir. Sé
leitað utan landsteina koma í
hugann bandarísku bræðurnir
Donald og Robert Byrne og þeir
norsku Simen og Espen Agde-
stein. Í öllum þessum tilvikum
náði yngri bróðirinn náð yf-
irhöndinni í innbyrðis sam-
keppni og gat sá eldri þó talist
laukur í sérhverri ætt.
Í tilviki þeirra Björns og Braga
virtist geta þeirra lengi vel
þróast eftir kunnuglegu
mynstri; sá yngri, þ.e. Bragi, var
í upphafi ferilsins fljótur að ná
bróður sínum að styrkleika og
skaust síðan fram úr honum.
Ekki er gefið að sá eldri hafi unað
þessu og í seinni tíð hefur gengið
á ýmsu í samskiptum þeirra við
skákborðið og utan þess.
Víkur þá sögunni að keppni í
landsliðsflokki á Skákþingi Ís-
lands sem lauk um síðustu helgi.
Í 9. umferð settust þeir bræður
að tafli en þá var staða efstu
manna þessi:
1. Guðmundur Gíslason 6½ v.
(af 8) 2.-3. Hannes Hlífar og
Bragi 5½ v. (af 7) 4. Björn 5 v. (af
7).
Í skák bræðranna sem hér fer á
eftir velur Björn hörmulegan
leik, 15. Bc1, eftir þekkta byrjun.
Í 16 leiki er Bragi með unnið tafl.
Hvað gerðist svo er erfitt að út-
skýra. Bragi gat „loftað út“ með
hinum eitursvala leik, 21. … g6.
En hann gerði þau mistök að
reyna að knýja fram vinninginn
strax. Eldri bróðirinn greip
tækifærið, sneri vörn í sókn og
hægt og bítandi seig á ógæfu-
hliðina hjá Braga. Í vonlausu
hróksendatafli gafst hann svo
upp.
Braga beið síðan það verkefni
að mæta Hannesi Hlífari í 10.
umferð en tapið fyrir Birni bróð-
ur hafði svipt hann sjálfstrausti
og Hannes vann. Björn var þá
genginn í endurnýjun lífdaga og
vann Guðmund Gíslason:
Björn Þorfinnsson – Bragi
Þorfinnsson
Nimzoindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Dc2 d5 5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 Re4
7. Dc2 c5 8. dxc5 Rc6 9. cxd5
exd5 10. Rf3 Df6 11. e3 Bg4 12.
Be2 0-0 13. Bd2 Hfe8 14. Hd1
Had8 15. Bc1 Re5 16. b4 Bxf3 17.
Bxf3 Rxf3+ 18. gxf3 Dxf3 19. Hf1
d4 20. Hfd3 Rc3 21. Hg1
21. … Rd5 22. Dd1 Df6 23. Bb2
Rc3 24. Bxc3 dxc3 25. Hg4 Hxd3
26. Dxd3 Df3 27. Dd7 Hf8 28.
Hc4 Dh1+ 29. Ke2 Dc1 30. Dd3
Dxa3 31. Dxc3 Da6 32. Dd3 g6
33. Hd4 Da2+ 34. Kf3 h5 35. De4
Da6 36. Hd7 b6 37. c6 Df1 38.
Dd5 Dh1+ 39. Ke2 Dxd5 40.
Hxd5 Kg7 41. b5 Hc8 42. Kd3 Kf6
43. Hd7
– og svartur gafst upp.
Lokastaðan varð þessi:
1. Hannes Hlífar Stefánsson
8½ v. – Skákmeistari Íslands
2010 2. Björn Þorfinnsson 8 v. 3.
Stefán Kristjánsson 7 v. 4.-5.
Guðmundur Gíslason og Bragi
Þorfinnsson 6½ v. 6. Ingvar Þ.
Jóhannesson 4 v. 7.-9. Sverrir
Þorgeirsson, Þröstur Þórhalls-
son og Þorvarður Ólafsson 3½ v.
10. Róbert Lagerman 2½ v. 11.
Daði Ómarsson 1½ v.
Í áskorendaflokki sigraði Sig-
urbjörn Björnsson.
Heimsmeistaraeinvígið
hefst á fimmtudag
Titilvörn indverska heims-
meistarans Wisvanathans An-
ands hefst föstudaginn 23. apríl í
Búlgaríu. Andstæðingur hans,
Venselin Topalov, er aftur
mættur til leiks en hann tapaði
frægu einvígi fyrir Vladimir
Kramnik haustið 2008. Þeir
munu tefla 12 skákir.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Enginn er annars bróðir í leik
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang