SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 55

SunnudagsMogginn - 18.04.2010, Blaðsíða 55
18. apríl 2010 55 Helgin mín hefst á skemmtikvöldi með mínum frábæru vinnufélögum á Höfuðborgarstofu á föstudagskvöldið þar sem við höldum upp á velheppn- aða tiltekt, Operation Guli Hanskinn. Við, eins og aðrir starfsmenn borg- arinnar, erum nefnilega um þessar mundir að taka til bæði innan dyra og utan. Ég vona nú að ég vakni samt of- urhress á laugardagsmorguninn og drífi mig í Hreyfingu, en þar er gott að svitna, hvort sem er í tíma hjá Guð- björgu eða ein og sjálf með i-podinn í tækjasalnum. Svo má dekra við auma vöðva í gufunni eða pottunum og spjalla við skemmtilegt fólk. Eftir svona púl er venjan að fara heim og njóta samvista við fjölskyld- una yfir letilegum hádegismat, en það verður ekkert venjulegt við þessa helgi því Barnamenningarhátíð í Reykjavík verður haldin í næstu viku og þar með er ekkert sem heitir helg- arfrí. Hátíðin hefst kl. 10 á mánudags- morgun með litríkri skrúðgöngu 1.500 fjórðubekkinga í miðborginni og þar á eftir mun borgarstjóri setja hátíðina. Eftir það rekur hver viðburðurinn annan þar til hátíðinni lýkur á stór- skemmtilegum Vísnabókartónleikum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sunnudaginn 25. apríl, – þannig að ég veit líka hvað ég geri þá helgi! En sem betur fer er fátt skemmtilegra en að undirbúa hátíð svo að helgin verður vafa- laust viðburðarík og skemmti- leg, og svo reikna ég líka með að minn góði sambýlismaður eldi einn af sínum und- ursamlegu kjúklingaréttum á sunnudagskvöldið. Helginni lýkur svo með Söru Lund að sjálfsögðu, vinkonu minni á RÚV, sem er svo klár að upplýsa glæpi, en svo vonlaus í mannlegum samskiptum. Helgin mín Sif Gunnarsdóttir, forstöðumaður Höfuðborgarstofu Tiltektarfagnaður, Sara Lund og Barnamenningarhátíð í Reykjavík Í Hlustaranum segir frá Helgu sem vinnur að ritgerð í sagnfræði um verkafólkið frá Þýska- landi sem kom hingað til lands árið 1949 til að vinna á sveitabæjum á Íslandi. Margar þýsku kvennanna giftust Íslendingum og settust að hér á landi og ferðast Helga um landið og ræðir við þær sem eftir lifa. Súla býr norður í landi og er ein fárra eftirlifandi Þjóðverja úr þessum hópi. Helga verður veðurteppt hjá henni og meðal þeirra takast ágæt en á stundum undarleg kynni. Á bak við heimsókn Helgu til Súlu liggur þó meira en virðist í upphafi og grunar Súlu fljótt að erindi hennar sé meira en að safna heimildum fyrir ritgerðina. Líf Helgu hefur ekki verið neinn dans á rósum, hún komst að því í barnæsku að hún var ættleidd og missti svo dóttur sína úr sjaldgæfum sjúkdómi nokkrum árum áður en sagan gerist. Hún leitar trúnaðar í vini sem hún auglýsir eftir í gegnum netið. Sá vinur nefnir sig Hlustarann og honum trúir Helga fyrir sögu sinni og væntir góðra ráða frá honum. Ekki er hægt að ljóstra meira upp um plottið í sögunni, sem er bráðsnjallt hjá höfund- inum, án þess að skemma fyrir þeim sem eiga eftir að lesa bókina. Hlustarinn er þriðja skáldsaga Ingibjargar Hjartardóttur, en áður hafa komið út Upp til sig- urhæða og Þriðja bónin. Saga þýska verkafólksins sem kom hingað til lands í vinnumennsku eftir síðari heimsstyrjöldina er mjög áhugaverð og sniðugt hjá Ingibjörgu að vinna út frá henni. Um leið og maður les góða bók fræðist maður og verð- ur enn forvitnari um sögu þessa fólks. Hlustarinn gerist á fjögurra mánaða tímabili í íslenskum samtíma. Sagan fer í hring, staða Helgu í upphafi sögunnar er útskýrð með því að líta fjóra mánuði aftur. Bréfin til Hlustarans skipa stóran sess í framvindunni, með þeim er litið til baka, lesandinn fær að skyggnast inn í fortíð Helgu og ýmislegt kemur í ljós í þeim sem útskýrir söguna. Eina sem mér fannst athugavert við þessi bréfa- skipti er að Helga, sem virkar nokkuð lokuð per- sóna, skuli trúa ókunnugum tölvuvini fyrir sínum hjartans málum. Annars er þetta snjallt bragð hjá Ingibjörgu til að leyfa lesandanum að skyggnast inn í hugarheim og líf Helgu. Hún er annars frekar hlutlaus persóna á meðan Súla heillar lesandann strax með krafti sínum og er sterkasti karakter sögunnar. Ég var verulega sátt eftir lestur bókarinnar sem hélt mér við efnið frá upphafi til enda. Eina sem ég get fundið að henni varðar útlitið; í bókarkápuna hefði þurft að leggja meiri vinnu, bæði mynd- skreytinguna og leturgerðina, og titill bókarinnar hefði mátt vera sterkari, hann gefur ekki alveg nógu góða mynd af því hversu áhugaverða sögu hún hefur að geyma. Hlustarinn er raunsæ saga, skrifuð á leikandi lesmáli, áhugaverð og spennandi. Aðkomukona á hjara veraldar Bókmenntir Hlustarinn eftir Ingibjörgu Hjartardóttur bbbnn Kilja Salka 2010 Ingveldur Geirsdóttir Ingibjörg Hjartardóttir Höfundur Hlustarans. Morgunblaðið/Kristinn LISTASAFN ÍSLANDS ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Ævispor Útsaumsverk Guðrúnar Guðmundsdóttur Endurfundir Fornleifasýning fyrir alla fjölskylduna Aðgangur ókeypis fyrir börn Opið alla daga nema mánudaga 11-17 www.thjodminjasafn.is – s. 530 2200 Söfnin í landinu 13. mars - 2. maí 2010 Í barnastærðum Sunnudag 18. apríl kl. 15 - Samtal við hönnuðinn Gunnar Magnússon með Hörpu Þórsdóttur forstöðumanni Hönnunarsafns Íslands Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga www.hafnarborg.is sími 585 5790 Aðgangur ókeypis í samstarfi við Listasafn Íslands ÍSLENSK MYNDLIST hundrað ár í hnotskurn Sumardaginn fyrsta 22. apríl kl. 16 Leiðsögn – Inga Jónsdóttir OPIÐ: Fim.–sun. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði ANGURVÆRÐ Í MINNI 11.3.-2.5. LISTAMANNASPJALL - sunnudaginn 18. apríl kl. 14 Helgi Þorgils Friðjónsson myndlistarmaður DYNDILYNDI - verði gjafa gagnstreymi 17.4. - 2.5. 2010 Sýningin er framlag Myndlistaskólans í Reykjavík til Barnamenningarhátíðar 2010. Listsmiðjur, endurmenntunarnámskeið og uppákomur af ýmsu tagi. Dagskrá á www.dyndilyndi.is SAFNBÚÐ Fermingar- og útskriftartilboð á listaverkabókum. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600 OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR • www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÍSLAND::KVIKMYNDIR 1904-2009. Þróun kvikmyndagerðar á Íslandi. Um 100 íslenskar kvikmyndir, sem hægt er að skoða í fullri lengd. „Íslendingar“. Ljósmyndasýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur. Þjóðarsálin fönguð í myndum og texta. Þjóðin og náttúran. Íslensk dýralífsmynd fyrir börn og fullorðna. Myndgerð: Páll Steingrímsson. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Ljósmyndasýningin Spegilsýnir: Bára Kristinsdóttir, Einar Falur, Jónatan Grétarsson, Katrín Elvarsdóttir, Spessi, Þórdís Erla Ágústdóttir. Síðasta sýningarhelgi Opið virka daga 11.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn VÍKINGAHEIMAR Skipið Íslendingur og sögusýning - Söguleg skemmtun VÍKINGABRAUT 1 - REYKJANESBÆ Opið alla daga frá 11:00 til 18:00 Sími 422 2000 www.vikingaheimar.com info@vikingaheimar.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.