SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Side 6
6 6. júní 2010
Handritshöfundar The Wire eru sennilega betur að
sér um viðfangsefni sitt, undirheima Baltimore-
borgar, en almennt gengur og gerist um höfunda
sjónvarpsþáttaraða. Framleiðandi og einn aðalhöf-
undur þáttanna, David Simon, starfaði í yfir áratug á
dagblaðinu Baltimore Sun sem lögreglufréttaritari og
komst hann því í náin kynni við atburði í undir-
heimum borgarinnar. Eftir að hafa tapað hug-
sjónaeldi blaðamannsins sneri Simon sér að bóka-
skrifum. Hans fyrsta bók, Homicide: A Year on the
Killing Streets kom út árið 1991 og vakti nokkra at-
hygli en hún byggðist á reynslu Simon af því að fylgja
eftir lögreglunni í Baltimore. Tveimur árum síðar voru
samnefndir þættir gerðir eftir bókinni og tók Simon
þátt í að skrifa handritið.
Eftir að þeirri þáttaröð lauk rétt fyrir aldamótin,
tók Simon saman höndum við Ed Burns, fyrrum lög-
reglumann og grunnskólakennara í Baltimore, um að
skrifa bók sem síðar var gerð að stuttri þáttaröð sem
bara heitið The Corner og hlaut m.a. Emmy-verðlaun
fyrir besta handrit. Þeir Simon og Burns héldu sam-
starfinu svo áfram með The Wire og nýttu sér reynslu
sína og þekkingu á þeim samfélagsmeinum sem hrjá
bandarískar borgir. Þessi þekking handritshöfund-
anna endurspeglast í dýpt þjóðfélagsrýninnar sem
þættirnir eru þekktir fyrir. Annarri seríu þáttanna,
sem fjalla um erfiðleika hafnarverkamanna borg-
arinnar, lýsti Simon í viðtali sem „meðvitaðri rök-
semdafærslu fyrir því að óheftur kapítalismi komi
ekki í stað velferðarstefnu og hann geti ekki, án
nokkurar samfélagslegrar sáttar, þjónað öðrum en
fáum útvöldum á kostnað fjöldans.“
„Kapítalisminn þjónar fáum á kostnað fjöldans“
Í þáttunum sjást hættuleg gengi fíkniefnasala eins og
þessa stjórna stórum hluta borgarinnar.
Þ
egar Jón Gnarr var inntur eftir því í
kosningabaráttunni fyrir borg-
arstjórnarkosningarnar með hverjum
Besta flokknum hugnaðist helst að
starfa með í borgarstjórn stóð ekki á svari hjá
Jóni: „Mér finnst það fara mikið eftir því hverjir
hafi séð sjónvarpsþættina The Wire.“ Þetta sér-
stæða skilyrði fyrir meirihlutamyndun, en ekki
er vitað til þess að sjónvarpssmekkur stjórn-
málamanna hafi áður ráðið úrslitum um sam-
starf þeirra í millum, reyndist ekki orðin tóm
því á meðan að á meirihlutamyndun við Sam-
fylkinguna stóð í vikunni afhenti Jón oddvita
hennar, Degi B. Eggertssyni, fyrstu seríu þátt-
anna við hátíðlega athöfn. Jón er reyndar ekki í
ómerkari félagsskap aðdáenda þáttanna en Bar-
acks Obamas Bandaríkjaforseta sem lét hafa það
eftir sér þegar hann var enn öldungarþingmað-
ur að The Wire væru uppáhaldsþættir hans.
Hvaða sjónvarpsefni er þetta eiginlega sem
dregur að sér lofsyrði frá eins ólíkum stjórn-
málamönnum og Obama og Jóni Gnarr?
Þættirnir gerast í Baltimore borg á austur-
strönd Bandaríkjanna og þykja þeir segja á afar
raunsannan hátt frá skuggahliðum borgarinnar
frá hinum ýmsu sjónarhólum. Þar er fíkniefna-
heimurinn í forgrunni með öllum þeim glæpum
og spillingu sem honum fylgir. Skera þættirnir
sig út að því leyti að hver þáttaröð er gerð út frá
mismunandi sjónarhorni. Í fyrstu seríunni
fylgjast áhorfendur með átökum lögreglu við
glæpagengi sem selja fíkniefni, í þeirri annarri
eru það hafnarverkamenn sem leiðast sumir út í
smygl sem eru í sviðsljósinu og í þeirri þriðju
beinist athyglin að stjórnmálunum sem eru
langt frá því að vera ónæm fyrir spillingu sam-
félagsins í heild. Í síðustu tveimur seríunum
beinist kastljósið að skólakerfi borgarinnar og
fjölmiðlum.
Aðalhöfundur og framleiðandi þáttanna,
fyrrverandi blaðamaðurinn David Simon, segir
um þá: „Þátturinn er í raun og veru um hina
bandarísku borg og um hvernig við hrærumst
saman í henni. Hann fjallar um hvernig stofn-
anir hafa áhrif á einstaklingana og hvort sem þú
ert lögga, hafnarverkamaður, eiturlyfjasali,
stjórnmálamaður, dómari eða lögfræðingur þá
þarftu að glíma við þær stofnanir sem þú hefur
bundið trúss þitt við.“
The Wire hóf göngu sína árið 2002 á HBO
kapalsjónvarpsstöðinni bandarísku og voru
framleiddar fimm þáttaraðir fram til ársins
2008. Hlutu þeir þegar mikið lof gagnrýnenda
og hafa þættirnir verið kallaðir metnaðarfyllsta
og flóknasta sjónvarpsdrama sem framleitt hef-
ur verið. Þá hlutu þættirnir aðeins tvenn
Emmy-verðlaun fyrir handrit. Þrátt fyrir ein-
róma lof gagnrýnenda og harðra aðdáenda nutu
þættirnir þó ekki eins mikilla vinsælda á meðal
almennra áhorfenda eða iðnaðarins, að minnsta
kosti í Bandaríkjunum.
Hvort ástæðan fyrir því að Jón nefndi þáttinn
sérstaklega í aðdraganda kosninganna hafi ein-
göngu verið háð skal ósagt látið en það er þó
vissulega hægt að draga ýmsar hliðstæður á
milli þáttanna og Besta flokksins. Eitt af því sem
virðist hafa dregið kjósendur að flokknum er að
frambjóðendur hans eru venjulegt fólk sem hef-
ur ekki verið alið upp í stjórnmálaflokkum í
hvernig það á að tala og hegða sér. Höf-
undateymi The Wire er á sama hátt merkilegt
fyrir þær sakir að enginn úr því átti sér bak-
grunn í sjónvarpsiðnaðinum. Höfundarnir,
fyrrverandi blaðamaður, fyrrverandi rann-
sóknarlögreglumaður auk nokkurra glæpa-
sagnahöfunda, voru því ekki aldir upp innan
bransans þar sem þeim var kennt hvernig „átti“
að gera hlutina heldur nálguðust þeir skriftirnar
með nýrri sýn og ferskleika þeirra sem ekki eru
fastir í dróma hefðarinnar og þess sem mark-
aðurinn krefst af þeim.
Þættirnir hafa verið rómaðir af hárbeittri
þjóðfélagsrýni sinni sem skýtur jafnvel frétta-
og heimilidamyndastöðvum ref fyrir rass. Í stað
þess að treysta á ástfóstur áhorfenda á marg-
tuggnum persónum, höfðar The Wire svo til
nýjungagirninnar með síbreytilegu sjónarhorni
og sögupersónum á milli þáttaraða. Ferskleik-
inn er tekinn fram yfir gamlar klisjur.
Eitt aðskilur þó Besta flokkinn og þættina,
stór hluti almennings hefur tekið Besta opnum
örmum. Nú er að sjá hvort að stjórnartíð flokks-
ins verði af sömu gæðum og The Wire.
Strengdir
upp á vír
Af mikilvægi The
Wire við myndun
meirihluta
Ætli Dagur B. Eggertsson og Jón Gnarr, oddvitar Samfylkingar og Besta flokksins, séu að rifja upp atriði úr The Wire?
Morgunblaðið/GolliVikuspegill
Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is
Hér á Íslandi hafa
The Wire verið sýndir
á Stöð 2 og hófust
sýningar á fimmtu og
jafnframt síðustu
þáttaröðinni í síðustu
viku. Eru þættirnir
sýndir kl. 22:10 á
fimmtudagskvöldum.
Í þessari tíu þátta röð
er fylgst með fjöl-
miðlum út frá sjón-
arhóli blaðamanna
The Baltimore Sun
þar sem handritshöf-
undurinn David Sim-
on starfaði í tólf ár við
að fjalla um glæpi.
5. sería
nýhafin
www.noatun.is
Grillveislur
www.noatun.is
eða í næstu Nóatúns verslun
Pantaðu veisluna þína á
999VERÐ
FRÁ
MEÐ MEÐL
ÆTIÁ MANN
Grillveislur Nóatúns:
Grísahnakkasneiðar
Lambalærissneiðar
Kjúklingabringur
Lambafile
Ein með öllu
Þín samsetning