SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Blaðsíða 45

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Blaðsíða 45
6. júní 2010 45 Víkingaheimar 422 2000 | info@gudridur.com Ferðasaga Guðríðar - aukasýningar í júní Fös 11/6 aukas. kl. 20:00 Ö Lau 12/6 aukas. kl. 20:00 Ö Víkingaheimar, Víkingabraut 1, 260 Reykjanesbæ 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Rómeo og Júlía Upplýsingar um sýningar á Borgarleikhus.is ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Fíasól (Kúlan) Lau 12/6 kl. 13:00 Lau 4/9 kl. 15:00 Sun 12/9 kl. 15:00 Lau 12/6 kl. 15:00 Sun 5/9 kl. 15:00 Lau 18/9 kl. 13:00 Sun 13/6 kl. 13:00 Lau 11/9 kl. 13:00 Lau 18/9 kl. 15:00 Sun 13/6 kl. 15:00 Lau 11/9 kl. 15:00 Sun 19/9 kl. 13:00 Lau 4/9 kl. 13:00 Sun 12/9 kl. 13:00 Sun 19/9 kl. 15:00 Haustsýningar komnar í sölu! Hænuungarnir (Kassinn) Fös 10/9 kl. 20:00 Fös 17/9 kl. 20:00 Fös 24/9 kl. 20:00 Lau 11/9 kl. 20:00 Lau 18/9 kl. 20:00 Lau 25/9 kl. 20:00 Sun 12/9 kl. 20:00 Sun 19/9 kl. 20:00 Sun 26/9 kl. 20:00 Fim 16/9 kl. 20:00 Fim 23/9 kl. 20:00 Haustsýningar komnar í sölu! Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Fim 10/6 kl. 19:00 Aukas. Fös 10/9 kl. 19:00 Lau 25/9 kl. 19:00 Fös 11/6 kl. 19:00 Aukas. Lau 18/9 kl. 19:00 Fös 1/10 kl. 19:00 Lau 12/6 kl. 19:00 Aukas. Sun 19/9 kl. 19:00 Lau 2/10 kl. 19:00 Fim 9/9 kl. 19:00 Fös 24/9 kl. 19:00 Haustsýningar komnar í sölu! Sýningarnar hefjast kl. 19:00 Herra Pottur og ungfrú Lok (Kúlan) Sun 6/6 kl. 13:00 Sun 6/6 kl. 15:00 Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík Rokk (Kassinn) Fim 10/6 kl. 20:00 Fös 11/6 kl. 20:00 Athyglisverðasta áhugasýning ársins! V ið gengum út að vörmu spori. Guð- mundur lokaði hurðinni, ákveðinn. Það var ekki verið að tvístíga, leita að hurðum eða húnum. Nei, þessi maður kunni á sitt hús. Hér var sú veröld, sem hann hafði búið til, eins og um- gjörð utan um myrkrið. Og þess veröld umgekkst hann samkvæmt þeim vísdómi Háva- mála, að hollt sé heima hvat.“ Svo skrifaði Matthías Jo- hannessen um Guðmund Guð- mundsson, forstjóra Trésmiðj- unar Víðis, í Lesbók Morgunblaðsins árið 1962. Guðmundur fæddist þann 4. júní árið 1910 að Önundarholti í Villingaholtshreppi og hefði því fagnað aldarafmæli sínu í ár. Hann var sonur þeirra Hildar Bjarnadóttur og Guðmundar Bjarnasonar en faðir hans lést skömmu áður en hann fæddist. Í kjölfar þess brá móðir hans búi og flutti með syni sína þrjá, Bjarna Valdimar 13 ára, Gísla Ísfeld 8 ára og Guðmund, til Reykjavíkur. Miðbróðirinn Gísli lést úr berklum langt fyrir ald- ur fram úr berklum. Guðmundur var blindur allt frá æsku þegar hann fékk smá- flís í augað í slysi af sprengju. Smám saman eyðilagðist sjón hans og þegar komið var fram á 12 ára aldur var hann orðinn með öllu blindur. Eins og lýsing Matthíasar gefur til kynna lét Guðmundur fötlun sína þó ekki hamla sér í lífinu og því síður var hann bitur yfir hlutskipti sínu. „Þér munið vel eftir heim- inum og birtunni?“ spyr Matt- hías. „Hún er skemmtileg þessi birta, en ekki ómissandi. Það er til svo margskonar birta,“ svar- ar Guðmundur. „Hvernig tilfinning er það fyrir ungan dreng að missa sjónina?“ „Það er haldið í vonina í lengstu lög, og svo þegar hún bregst er ekki annarra kosta völ en sætta sig við orðinn hlut. Verða ekki bitur. Ég tek þetta ekki nærri mér lengur. Það er langt síðan ég hef sætt mig við þessi örlög. [...] Ég kvarta ekki. Ég hef við engan að sakast. Það á enginn að láta líf sitt tak- markast við það að vera blind- ur.“ Guðmundur hafði alið í brjósti vonir um að ganga menntaveginn en fötlun hans gerði það ómögulegt í þjóð- félagi þess tíma. Þess í stað sneri hann sér ungur að smíð- um. Í fyrstu smíðaði hann litla og einfalda hluti en með tíð og tíma óx honum ásmegin og smíðisgripirnir urðu stærri og vandaðri. Fræjum Víðis, tré- smiðjunnar sem hann stofnaði og varð að einu stærsta fyr- irtæki landsins í húsgagnaiðn- aði, sáði Guðmundur í kjall- arakompu á heimili móður sinnar á Grettisgötunni. Með eljusemi sinni tókst Guðmundi að sjá sér farborða með smíð- unum. Vann hann við trésmíði allt fram að síðari heimsstyrjöld og átti lítið verkstæði við Ljós- vallagötu 12. Þrátt fyrir að fá berkla í annað lungað sem dró úr starfsþreki hans lét Guð- mundur ekki deigan síga. Reisti hann hús við Víðimel sem hýsti nýtt verkstæði þar sem hann hóf að ráða menn í vinnu. Árið 1945 reisti hann svo Trésmiðj- una Víði við Laugaveg sem sá þegar best lét um hundrað manns fyrir vinnu. Guðmundur kvæntist tvisvar. Fyrri kona hans var Guðrún Axelsdóttir en þau skildu. Seinni eiginkona Guðmundar var Ólafía Ólafsdóttir og eign- uðust þau fimm syni, þá Ólaf Kristin, Gísla Ísfeld, Björn Inga, Sigurð Vigni og Guðmund Víði. „Sá sem einbeitir sér að einu ákveðnu verkefni nær fastari tökum á því en hinn, sem hefur margt í takinu,“ sagði Guð- mundur við blaðamanninn Matthías árið 1962. „Við getum náð langt með sterkum vilja. Þegar ég varð fyrir því slysi að missa sjónina ungur drengur, glataði ég lönguninni til að sóa tímanum í skemmtanir. Ég keppti heldur að því að búa mér það umhverfi sem ég vildi dveljast í.“ Lokaorð Matthíasar Johann- essen um Guðmund Guð- mundsson í Víði, sem lést þann 13. desember árið 1987, voru lýsandi um þann viljastyrk og ákveðni þrátt fyrir erfiðleika sem Matthías sá í viðmælanda sínum: „Ég kvaddi þennan mann sem var eins konar staðfesting á því, að ekkert ljós er án myrkurs og ekkert myrkur án ljóss.“ Hundrað ár voru á föstudag liðin frá fæðingu Guðmundar Guðmundssonar forstjóra Trésmiðjunar Víðis. Ekkert myrkur án ljóss Aldarminning Leikhúsin í landinu www.mbl.is/leikhus Uppselt Örfá sæti laus FarandsýningU Ö F Fimmtudagur Unnur Ösp Stefánsdóttir er agn- dofa eftir að hafa barið augum myndina PRECIOUS í gær, þvílík mynd, þvílíkur leikur … Mo’ni- que, í hlutverki móðurinnar, hlaut Óskarsverðlaun fyrir ein- hvern stórbrotnasta leik sem ég hef séð! Miðvikudagur Johanna Vigdis Gudmundsdottir On Beauty eftir Zadie Smith, lík- lega besta bók sem ég hef les- ið. Þriðjudagur Kristján Valur Jónsson Ég fyllist vonleysi og uppgjafarmóð er ég horfi upp á þululaust sjónvarpið. Það er engin reisn yfir neinu lengur. Mánudagur Sveinn Birkir Björnsson Nú er ég að reyna að horfa á þetta Wire-kjaftæði til að komast að hvernig Jón Gnarr ætlar að stjórna borginni og mér líst ekk- ert á þetta. Það er allt vaðandi í eiturlyfjum þarna og menn eru skotnir hægri vinstri. Er það alls konar fyrir aumingja? Sunnudagur Hrafn Jökulsson Spurt er: Fela úrslitin í sér kröfu um þingkosn- ingar? Fésbók vikunnar flett Mo’Nique með óskarinn sem hún fékk fyrir leik sinn í Precious. Reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.