SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Qupperneq 39

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Qupperneq 39
6. júní 2010 39 Vissir þú að …? mikla auglýsingu. Þar má nefna Manolo Blahnik, Jimmy Choo, Fendi, Dior, Dolce & Gabbana, Chanel, Prada, Ro- berto Cavalli og Richard Tyler og svo mætti lengi telja. Sannur Sex and the city-aðdáandi er nefnilega ansi hlið- hollur „sínum“ merkjum; drekkur ein- ungis Cosmopolitan, giftir sig í kjól frá Vivienne Westwood og slær ekki hend- inni á móti Hermes Birkin-töskum eða Manohlo Blahnik-skóm. Fjórar ólíkar vinkonur Vinkonurnar fjórar eru allar mjög ólík- ar, hvort sem litið er til persónuleika þeirra eða fatavals. Einhvern tímann á flakki mínu um veraldarvefinn rakst ég á skondinn samanburð þar sem stíl vinkvennanna var líkt við ólík tíma- skeið kvenna. Ungar stelpur klæða sig líkt og Carrie Bradshaw; fylgjast með tískunni, prófa sig áfram og klæða sig með stæl. Á útskriftaraldri tekur fag- legur stíll Miröndu við; þá skiptir mestu máli að líta fullorðinslega út. Þegar börnin svo líta dagsins ljós er það húsmæðrastíllinn hennar Charlotte sem verður í aðalhlutverki. Þegar konur eru svo komnar á fimmtugsaldurinn breyt- ast þær í Samönthu; klæða sig glæsilega og leita ef til vill eftir augngotum yngri manna. Þó að þetta sé svolítið ýkt dæmi leynist þarna smásannleikskorn. Það verður áhugavert að sjá hvort vinkonurnar fjórar eru enn í sínu gamla „trendsetter“-formi og við fáum að sjá enn eitt tískufyrirbrigði Sex and the City á förnum vegi í sumar. Það myndi svo sannarlega lífga upp á land- ann því klæðnaðurinn í myndinni er að þessu sinni með austurlenskum blæ þar sem þessar fjórar fræknu skella sér til Abu Dhabi, langt frá ys og þys borg- arinnar. ’ Sannur Sex and the City-aðdáandi drekkur einungis Cosmopolitan, giftir sig í kjól frá Vivienne Westwood og slær ekki hendinni á móti Hermes Birkin-tösku eða Manohlo Blahnik- skóm. Leikin af Cynthiu Nixon. Trausta vinkonan Miranda er lögfræð- ingur sem tekur starfsframa sinn oftar en ekki fram yfir aðrar skyldur. Hún er vel stæð allt frá fyrsta þætti og er fyrst af stelpunum til að festa kaup á eigin íbúð. Miranda er einstaklega hnyttin og með heldur kaldhæðnislegan húmor sem fær mann alltaf til að brosa. Karakterar Sex and the City hafa verið slípaðir til í gegn- um árin og er Miranda þar efst á blaði. Hún er algjör A-manneskja, frekar íhalds- söm í klæðnaði og sést nánast aldrei í flegnum fötum. Á daginn klæðist hún drögtum og flíkum sem henta vinnunni en tekur sig ekki jafn alvarlega eftir sólsetur. Þá velur hún líflegri föt sem eru þó einföld í sniði og toppar útlit sitt með glæsilegum opnum skóm sem eru hæfilega háir. Setning: „Ég hef lítið sjálfstraust, en læt það í ljós á heilbrigðan hátt … með því að borða heilan kassa af tvöföldu Oreo kexi.“ Mennirnir: Steve Brady, dr. Robert Leeds, Skipper Johnston. Miranda Hobbes Leikin af Kim Cattrall. Opinskáa og einstaka vinkonan Samantha er almannatengill fræga og ríka fólksins. Hún er með lykla að öllum helstu partíum New York- borgar og klæðir sig í samræmi við lífsstíl sinn. Stórir og glæsilegir skartgripir, glansandi kjólar, áber- andi dragtir og í rauninni allt sem æpir glamúr einkennir Samönthu. Hún setur ekki aldurinn fyrir sig og sést í flegnari kjólum en flestar kon- ur þora að klæðast, enda vön mikilli nekt. Hún gengur ávallt hreint til verks og hugsar og talar umkynlíf daginn út og inn. Það hafa eflaust flestir aðdáendur Sex and the City farið hjá sér í ófáum kynlífsatriðum hennar sem eru engu lík. Setningin: „Menn halda framhjá af sömu ástæðu og hundar sleikja eist- un á sér … því þeir geta það.“ Mennirnir … og konan: Richard Wright, Smith Jerrod og Maria. Samantha Jones  Carrie hitti Mr. Big í fyrsta þættinum af Sex and the City. Þau rákust á úti á götu og Carrie missti nokkra hluti úr tösku sinni, þar á meðal smokkapakka.  Alec Baldwin og George Clooney höfn- uðu báðir hlutverki í þættinum „Escape from New York,“ sem síðar fór til glaum- gosans Matthew McConaughey.  Að fimmta þáttaröðin var stytt í átta þætti vegna þess að Sarah Jessica Park- er varð ólétt. Í þáttaröðinni klæðist Car- rie víðum fötum og ef vel er að gáð má greina litla bumbu.  Cynthia Nixon er ekki með gat í eyr- unum. Allir eyrnalokkar sem hún ber eru klemmu-lokkar.  Kim Cattrall er bresk. Hún fæddist ár- ið 1956 í Bítlaborginni Liverpool en flutti þaðan til Kanada með foreldrum sínum aðeins þriggja mánaða gömul.  Sarah Jessica Parker lék ásamt fjór- um systkinum sínum í uppfærslu Munici- pal-leikhússins af Söngvaseið í St. Lou- is, Missouri.  Sara Jessica Parker er eina leikkonan í þáttunum sem hefur klausu í samningi sínum sem tryggir að hún þurfi ekki að koma nakin fram, enda sést hún aldrei án nærfata.  Patricia Field er helsti búningahönn- uður Sex and The City. Hún á einnig heið- urinn af flestum búningum í myndinni The Devil Wears Prada..  Chris Noth (Mr Big) sat í tvö ár á skóla- bekk í Marlboro-menntaskólanum í Ver- mont. Á þeim tíma bjó hann í trékofa sem hann reisti sjálfur.  Í upphafsstefi þáttanna mátti sjá glitta í tvíburaturnanna í New York. Eftir árás- irnar 11. september fannst framleið- endum þáttanna myndskeiðið ekki við hæfi og skiptu turnunum út fyrir Empire State-bygginguna.  Kim átti í ástarsambandi við fyrrver- andi forsætisráðherra Kanada, Pierre Trudeau.  Amma Kristin Davis hefur hvorki séð þættina né myndirnar.  Kim og fyrrverandi eiginmaður hennar gáfu út bók sem bar titilinn „Listin við fullnægingu kvenna“.  Bakaríið „The Magnolia Bakery“ í New York varð svo vinsælt í kjölfar heimsókn- ar Miröndu og Carrie í einum af þáttunum að eigendurnir neyddust til að ráða dyra- vörð.  Nafni Mr. Big var haldið leyndu þar til í lokaatriði þáttaraðanna. Fullt nafn hans, John James Preston, birtist í stiklu mynd- anna en hann er nefndur í höfuðið á Preston Sturges sem leikstjóri mynd- anna heldur mikið upp á.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.