SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Blaðsíða 31
6. júní 2010 31
Upphrópanir hinna ólesnu
Sjálfsagt eiga þeir tveir úr bankastjórn Seðlabanka
Íslands sem sátu þar með Eiríki Guðnasyni eftir að
tjá sig um þessa sögu alla. Ótrúlega margur gat
fjallað um þúsunda síðna skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis klukkutímum eftir að hún kom
út. Aðrir hafa viljað gefa sér betri tíma. Margur
hinna ólesnu spekinga hefur einnig hiklaust fjallað
um einkunnagjöfina „vanræksla í starfi“ án þess að
gera neitt með út á hvað sú „vanræksla“ á að hafa
gengið, og hefur kannski alls ekki kynnt sér það
enn þá. Augljóst má vera að nefndarmennirnir
mátu það svo að þeir fengju betri frið fyrir blogg-
urum, opinberum „fréttaskýrendum“ og of-
stopamönnum á vefnum ef þeir gerðu það sem þeir
gerðu. Og þeim varð að ósk sinni. Einn úr hópi
hinna vanstilltustu, landskunnur leigupenni, hefur
lýst þeirri skoðun sinni að fyrst að embættismenn
fengu stimpilinn „vanræksla í starfi“ fyrir það til að
mynda að svara ekki munnlegum fyrirspurnum
skriflega (!) í brimskaflinum miðjum, þá beri að
hundelta viðkomendur, svipta þá áunnum lífeyri
og þrengja kost þeirra sem verða má, því það hafi
Pólverjar gert við menn sem báru ábyrgð á rit-
skoðun, pyntingum, fangelsunum og morðum á
þúsundum.
Enn má bæta úr lestrarleysi
Í grein Eiríks Guðnasonar seðlabankastjóra kemur
fram að þótt rannsóknarnefndin léti prenta þús-
undir blaðsíðna af upplýsingum, vangaveltum og
áfellisdómum, þá birti hún ekki í skýrslunni sjálfri
andmæli þeirra sem sérstaklega var vikið að. Er
það með miklum ólíkindum. Því hafði reyndar
verið lofað að andmælin yrðu birt í hinum prent-
aða hluta skýrslunnar. Þau má víst finna í 11. við-
auka skýrslunnar á vefnum! Sjálfsagt er skýrsla
rannsóknarnefndar Alþingis dálítið dottin úr tísku.
En það er þó full ástæða til að hvetja menn til að
lesa hana og draga af henni sínar eigin ályktanir.
Hinir fjölmörgu „fréttaskýrendur“ sem hafa fjallað
ítarlega um skýrsluna fram til þessa án þess að lesa
hana eru einnig eindregið hvattir til að gera það.
Betra er seint en aldrei.
Reykvíkingar sleikja
sólina í Lækjargötunni.
Morgunblaðið/Ómar
H
eimsmeistarakeppnin í Suður-Afríku hefst 11. júní. Suður-Afríka er land
mikilla andstæðna. Ekki eru nema sextán ár frá því að aðskilnaðarstefnan í
landinu leið undir lok og á þeim tíma, sem síðan er liðinn, hafa orðið miklar
breytingar. Undir styrkri forustu Nelsons Mandela tókst að koma því til leiðar
að farin var leið sátta, en ekki haturs þegar kúgun hvíta minnihlutans á svarta meirihlut-
anum lauk.
Vandamálin eru þó gríðarleg og glæpir daglegt brauð. 50 morð eru framin á dag í Suður-
Afríku eða rúmlega 18 þúsund á ári. Á nokkurra mínútna fresti er konu nauðgað og nokk-
urra sekúndna fresti er framinn þjófnaður. Glæpir og kúgun eru hins vegar ekki lengur
bundin í lög og greina má breytingar til batnaðar. Milljónir blökkumanna mynda nú milli-
stétt Suður-Afríku. Milljónir manna brjótast nú úr sárri fátækt og skapa sér aðstæður til að
geta lifað lífinu með reisn. Heimsmeistarakeppnin er hluti af þessari upprisu Suður-Afríku
og færir ekki bara íbúum landsins heldur allrar álfunnar heim sanninn um hvers hún getur
verið megnug.
Orri Páll Ormarsson kallar fótbolta hnattrænan faraldur í fyrirsögn á grein um fyrri
heimsmeistaramót í Sunnudagsmogganum í dag. Í blaðinu er einnig sagt frá nýrri og glæsi-
legri ferða- og fótboltabók með myndum Páls Stefánssonar, Áfram Afríka, þar sem sést
hvernig þessi faraldur hefur tekið sér bólfestu í Afríku.
Rithöfundurinn Chimamanda Ngozi Adichie, sem skrifaði skáldsöguna Hálf gul sól, skrif-
ar grein um fótbolta í Afríku og þjóðerniskenndina í bók Páls. „Þjóðerniskenndin blómstraði
þessa nótt en það var ekki allt,“ skrifar hún um daginn, sem Nígería varð ólympíumeistari í
fótbolta í Atlanta. „Til varð þjóðerniskennd sérstakrar ættar, mild, fyrirgefandi og bjart-
sýn.“ Síðar bætir hún við að hún hafi áttað sig á að „íþróttir gera okkur svörtum Afr-
íkubúum kleift að fjalla um sögulega og pólitíska erfiðleika á göfugan og sálarhreinsandi
hátt“. Hún talar um fótboltaþjóðarstolt, sem gefi „sjaldgæft tilefni til að skynja ómengað
stolt“, sem „færir heiminum þau skilaboð að jafnvel þótt við séum ekki í G-20 hópnum sem
ákvarðar örlög heimsins, jafnvel þótt við verðum alltaf neðst á kvörðum sem mæla heilsu,
góða stjórnarhætti og gagnsæi í stjórnsýslu, jafnvel þótt saga okkar sé vörðuð vonlausum
ríkisstjórnum, innviðir samfélagsins séu að hruni komnir, stofnanir okkar óstarfhæfar og
flest sé okkur mótdrægt, þá skiptir það ekki máli … við unnum vegna þess að við erum
greind og hæfileikarík. Þetta er ekki allt vonlaust. Við getum líka átt okkar góðu stundir.“
Rick Bender hefur ekki alltaf átt góðar stundir. Hann greindist með krabbamein í munni
vegna tóbaksnotkunar, missti helming kjálkans, þriðjung tungunnar og allar tennurnar
nema sex. Rúm tuttugu ár eru frá því að þetta gerðist og Bender hefur helgað krafta sína
baráttunni gegn tóbaksnotkun. „Ég var aldrei neitt sérstaklega myndarlegur áður en núna
er ég með andlit sem enginn gleymir,“ segir Bender í viðtali í Sunnudagsmogganum. Andlit
sem er áminning til þeirra sem nota munntóbak.
Fótboltaþjóðarstolt
„Ég tel að þetta sýni að almenningur
vilji venjulegt fólk til að vinna fyrir
sig.“
Geir Kristinn Aðalsteinsson oddviti L-listans á Ak-
ureyri um stórsigur flokksins í bæjarstjórnarkosn-
ingunum.
„Þetta er náttúrlega flokkur
sem er með allskonar.“
Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, sem
vann kosningasigur í Reykjavík.
„Okkar forysta sam-
anstendur af millistéttarfólki,
háskólafólki, sem hefur það
ágætt og hefur misst
tengslin við alþýðuna.“
Þorleifur Gunnlaugsson, fráfar-
andi borgarfulltrúi VG.
„Ég held að þetta sé
pólitískur landskjálfti
sem er að ganga yfir
landið.“
Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra um niðurstöður
kosninganna.
„Eigum við að trúa
því að Evrópa sé að
refsa okkur fyrir eldgos
og flugsamgöngur? Þetta
var ekki sanngjarnt.“
Páll Óskar Hjálmtýsson um gengi íslenska lagsins í
Evróvisjón.
„Ég held að hann sé að leika.“
Guðni Ágússton, fyrrverandi ráðherra, um framboð
Jóns Gnarrs.
„Hver er þessi Guðni Ágústsson?“
Jón Gnarr í tilefni af ummælunum hér að ofan.
„Karlar væla meira.“
Evert Víglundsson CrossFit-þjálfari um mun-
inn á kynjunum.
„Þegar ég sótti um var ég spurð
hvort ég væri að sækja um
fyrir bróður minn eða
pabba minn.“
Anna Kristín Guðnadóttir sem er
að ljúka sveinsprófi í bifreiða-
smíði.
„Þetta er pólitísk að-
gerð en framkvæmd í
kærleika.“
Jón Atli Jónasson sem hefur neitað
að taka við tilnefningum til Grím-
unnar.
„Fangelsi er ekki góður
staður fyrir börn.“
Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Barnaverndar Reykja-
víkur.
Ummæli vikunnar
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Stofnað 1913
Útgefandi: Óskar Magnússon
Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal