SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Blaðsíða 8
8 6. júní 2010
D
ennis Hopper skapaði sér nafn með því
að leika eiturlyfjaneytendur og und-
arlega utangarðsmenn. Hopper var
aldrei stórstjarna í Hollywood og í
raun var hann á skjön við draumaverksmiðjuna.
Þekktustu myndirnar, sem hann lék í, voru Easy
Rider eftir Peter Fonda, Apocalypse Now eftir
Francis Ford Coppola og Blue Velvet eftir David
Lynch.
Hopper lést á laugardag fyrir viku úr krabba-
meini að heimili sínu í Venice í Kaliforníu. Hann
var 74 ára gamall.
Hopper vakti fyrst eftirtekt árið 1955 fyrir að
leika flogaveikisjúkling í læknaþáttaröð, sem hét
Medic, og lítið hlutverk í kvikmyndinni Rebel
Without a Cause með James Dean í aðalhlutverki.
Árið eftir lék hann í myndinni Giant ásamt Dean
og Elizabeth Taylor. Hann og Dean urðu vinir og
Hopper var á uppleið í Hollywood þegar honum
lenti saman við leikstjórann Henry Hathaway.
Hopper var ekki sáttur við fyrirmæli leikstjórans
og sama senan var tekin áttatíu sinnum áður en
leikarinn lét sér segjast. Hopper sagði síðar að
Hathaway hefði sagt sér þegar tökum lauk að hann
væri búinn að vera í Hollywood. Hathaway sagði
að Hopper hefði verið hrokafullur ungur leikari
sem hefði haldið að hann vissi allt.
Hopper fór til New York en útlegðin varði aðeins
í fimm ár. Eftir 1961 fór hann að fá lítil hlutverk á
ný. Kvikmyndin Easy Rider skipti sköpum. Peter
Fonda leikstýrði og skrifaði handritið ásamt Hop-
per og Terry Southern. Efniviðurinn hefði alveg
eins getað verið í kúrekamynd, en myndin fjallaði
um menn á ferðalagi á mótorhjólum. Easy Rider
fékk verðlaun sem besta myndin í Cannes 1969.
Myndin var tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir besta
handritið, en Jack Nicholson var tilnefndur til
óskarsverðlauna fyrir leik í aukahlutverki.
Easy Rider gekk þvert á hefðir í kvikmyndagerð
og var afsprengi þess uppreisnaranda, sem ríkti á
þessum tíma. Hopper á fullri ferð á mótorhjóli
undir laginu Born to be Wild varð ein af tákn-
myndum þessara tíma. Og aðstandendum mynd-
arinnar opnuðust ýmsar dyr.
Hann fékk tæpa milljón dollara hjá kvikmynda-
verinu Universal til að gera mynd. Hann mátti
gera það sem honum sýndist og fór ásamt hópi
hippa til Perú og gerði þar myndina The Last Mo-
vie, sem kolféll þrátt fyrir að vera valin besta
myndin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum.
Hopper hafði verið veikur fyrir víni fyrir, en nú
fór neysla hans á áfengi og vímuefnum á fullt og
hann fékk orð á sig fyrir að vera gjörsamlega
stjórnlaus. Hjónaböndin komu og fóru og urðu alls
fimm. Eitt þeirra stóð í átta daga.
Um miðjan níunda áratug tuttugustu aldarinnar
fór Hopper í afvötnun. Þá var hann farinn að neyta
þriggja gramma af kókaíni á dag, drekka 30 bjóra
auk þess að reykja marijúana og kneyfa Cuba
Libre. „Ég var hræðilega barnalegur á þessum
tíma,“ sagði hann í viðtali við The New York Tim-
es fyrir nokkrum árum. „Ég hélt að eftir því sem
ég hegðaði mér með geggjaðri hætti, þeim mun
meiri listamaður yrði ég.“
Árið 1986 lék hann eftirminnilegt hlutverk
ískyggilegs glæpamanns í Blue Velvet. Hann hefur
sagt að eftir að hann varð edrú hafi hann aldrei
hafnað hlutverki.
Á skjön við
Hollywood
Dennis Hopper var uppreisnar-
maður í draumaverksmiðjunni
Dennis Hopper var í mars heiðraður með stjörnu í gangstétt fræaga fólks-
ins í Hollywood og fagnaði með vinum þrátt fyrir veikindi sín.
Reuters
Peter Fonda og Dennis Hopper í myndinni Easy Rider.
Reuters
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
„Það er erfitt að vera goðsögn
ef þú deyrð ekki ungur. En-
fants terrible á að kæfa í fæð-
ingu. Ef ég lifi mikið lengur
mun fólk þurfa að segja mér
um hvað allt tilstandið snerist
því að það er fjandans víst að
ég man ekki mikið af því.“
Dennis Hopper eftir komuna
úr afvötnun á níunda áratugn-
um.
Erfitt að
vera goðsögn
Dennis Hopper var ýmislegt til
lista lagt auk þess að leika og
leikstýra fjölda mynda. Hann
skrifaði ljóð og málaði snemma
á ferlinum. Einnig stundaði
hann ljósmyndun og voru
myndir hans gefnar út á bók.
Hopper var einn af fáum re-
públikönum í Hollywood, en
hann greiddi þó Barack Obama
atkvæði sitt. Hann var fyrst
greindur með krabbamein fyrir
áratug og meinið tók sig aftur
upp í fyrrahaust.
Jack Nicholson fagnaði með Dennis Hopper þegar sá síðarnefndi var
heiðraður í Hollywood í mars. Þeir léku saman í myndinni Easy Rider.
Ýmislegt til lista lagt
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn 7. júní,
kl. 18.15 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
Erró
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Verkin verða sýnd:
laugardag 11–17, sunnudag 12–17 og mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is