SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Síða 16
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur nú um helgina um mest allt land. Hefur
verið haldið upp á daginn frá því undir lok fjórða áratugarins og er hann nú orðinn
mikil hátíð, sérstaklega í hinum dreifðari byggðum landsins. Er hann haldinn fyrsta
sunnudag júnímánaðar ár hvert nema þegar hvítasunnudag ber upp á þann dag.
Á þessum hátíðardegi sjómanna er gjarnan keppt í öllu mögulegu, og jafnvel
ómögulegu líka, sem tengist hafinu og sjómennskunni. Reipitog, róðrarkeppni og
dorgveiði, allt er þetta eins óaðskiljanlegir fylgihlutir sjómannadags og hangikjöt með
uppstúf er jólunum. Þá er hinn víðfrægi belgjaslagur sívinsæll þar sem tveir keppendur
sitja á bómu sem gengur út af bryggjunni og etja kappi þar til annar, eða báðir, bíða
holdvotan ósigur á bólakafi í höfninni við mikla kátínu áhorfenda, og vonandi sín
sjálfra. Að keppninni lokinni fallast svo jafnvel svörnustu andstæðingar úr belgjaerjum
í faðma og kyrja gamalkunna sjómannasöngva langt fram á rauða nótt á dansiböllum
og skemmtunum.
Þess má geta að í Reykjavík hefst Hátíð hafsins á laugardag og stendur hún yfir
helgina með fjölbreyttri dagskrá í anda sjómennskunnar. Á meðal margs annars verð-
ur boðið upp á siglingu um sundin og færeyskan dans sem fær að duna á Gömlu-
dansaballi í gamla Slippfélagshúsinu við Mýrargötu. Fiskur hátíðarinnar í ár er karfi og
geta gestir gætt sér á honum og öðru lostæti víðsvegar á hafnarsvæðinu.
Ljósmyndarar Morgunblaðsins tóku þessar skemmtilegu myndir af hafnarlífi í
Reykjavík og í Hrísey.
Alvöru sjóbissness
Bak við tjöldin
Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is og Ernir Eyjólfsson ernir@mbl.is