SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Qupperneq 18
18 6. júní 2010
Þ
orvaldur Halldórsson er úti á
palli við heimili sitt á Selfossi
að hreinsa ösku þegar mig ber
að garði í glampandi sólskini.
Sunnlendingar eru greinilega ekki búnir
að bíta úr nálinni með eldgosið. Söngv-
aranum þykir það þó vægt gjald að
gjalda fyrir að búa í Paradís á jörð. „Hér
er yndislegt að vera, mikil kyrrð og lífið
á allan hátt einfalt. Það er líka stutt í alla
þjónustu,“ segir hann þegar við höfum
komið okkur makindalega fyrir á pall-
inum. „Við hjónin bjuggum áður í
blokkaríbúð í Breiðholtinu og vorum að
svipast um eftir sumarbústað þegar við
duttum niður á þetta hús fyrir sex árum.
Hér get ég vel hugsað mér að vera þang-
að til ég dey.“
Tilefni heimsóknarinnar er endur-
útgáfa plötunnar Þorvaldur Halldórsson
syngur sjómannalög sem upprunalega
kom út árið 1966. „Tildrög plötunnar
voru þau að ári áður hafði ég sungið inn
á tvær fjögurra laga plötur ásamt Hljóm-
sveit Ingimars Eydals, meðal annars lag-
ið Á sjó sem sló rækilega í gegn,“ rifjar
Þorvaldur upp. „Eftir það hafði Svavar
Gests samband við mig og spurði hvort
ég væri ekki til í að gera heila sjó-
mannaplötu. Mér var það ljúft og skylt
enda kominn af sjómönnum á Siglu-
firði.“
Öll þjóðin þekkir Þorvald
Á upprunalega plötuumslaginu gerir
Svavar Gests eftirfarandi grein fyrir
plötunni: „Þorvaldur Halldórsson var
óþekktur söngvari fyrir einu ári. En þá
söng hann lagið Á sjó inn á hljómplötu
og síðan hefur þetta lag heyrzt í óska-
lagaþáttum útvarpsins oftar en nokkurt
annað lag, enda hljómplatan selzt í
helmingi stærra upplagi heldur en nokk-
ur önnur íslenzk hljómplata. Nú þekkir
öll þjóðin Þorvald. [...]
Slíkar eru vinsældir Þorvaldar að ekk-
ert þótti eðlilegra en að fá hann til að
syngja inn á tólf laga plötu eins fljótt og
því varð við komið. Og fyrir valinu urðu
að sjálfsögðu lög í sama anda og Á sjó;
sjómannalög. Sjómannalög hafa löngum
fallið í góðan jarðveg hjá Íslendingum og
leikur varla vafi á að þessi ágæta plata
Þorvaldar Halldórssonar á eftir að hljóta
varanlegar vinsældir.“
Þess má geta að hið rómaða lag Á sjó
er aukalag á nýju útgáfunni.
Platan mæltist vel fyrir á sínum tíma
og var mikið spilað af henni í óskalaga-
þáttum í útvarpi, einkum Óskalögum
sjómanna, af skiljanlegum ástæðum. Má
þar nefna lög eins og Ég er sjóari, Nú
hugsa ég heim, Sjómannavalsinn og Sjó-
mannakveðju. Undirleik annaðist
Hljómsveit Ingimars Eydals. „Stjórnand-
inn var búinn að spila þessi lög svo oft að
hann var farinn að segja: Hér kemur
hann Valdi okkar!“ segir Þorvaldur og
hlær.
Ætlaði ekki að verða frægur
Vinsældirnar komu Þorvaldi í opna
skjöldu. „Ég stefndi aldrei að því að
verða frægur. Ég var að syngja með
Hljómsveit Ingimars Eydals í Sjallanum á
Akureyri á þessum tíma og leit bara á
þetta sem skemmtilega og skapandi
vinnu með góðu fólki. Það var heldur
ekki eins og þetta væri vel borgað, ég
hafði ekki einu sinni efni á því að kaupa
mér bíl á þessum tíma,“ segir hann og
brosir í kampinn.
Eðli málsins samkvæmt var Þorvaldur
í miklu uppáhaldi hjá sjómönnum og
fjölskyldum þeirra og er enn. „Ég finn
það vel þegar ég fer út á land á vegum
kirkjunnar til að spila og syngja. Það er
útilokað að byrja á öðru lagi en Á sjó.“
Raunar er leitun að þekktara dæg-
urlagi á Íslandi, allir þekkja Á sjó, líka
yngsta kynslóðin. „Fyrir nokkrum árum
var ég að koma út úr búð í Breiðholtinu
og labbaði framhjá hópi þrettán ára
drengja,“ segir Þorvaldur. „Þá heyrist
skyndilega sagt djúpri röddu innan úr
hópnum: „Á sjó.“ Ég varð steinhissa en
ákaflega glaður.“
Lagið hefur fylgt Þorvaldi alla tíð og er
í hugum margra órjúfanlegur hluti af
honum. „Ég fékk nóg af laginu á tímabili
Sjómennska
upp í harða
landi
Flestir kannast við Þorvald Halldórsson. Allir við
Þorvald á sjó. Fáir Íslendingar eru tengdir hafinu
eins sterkum böndum og þessi djúpraddaði
söngvari en á morgun, mánudag, verður einmitt
endurútgefin plata frá árinu 1966, þar sem hann
syngur sjómannalög. En skyldi Þorvaldur ein-
hvern tíma hafa verið á sjó?
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Þorvaldur Halldórsson við
hljómborðið í litlu stúdíói sem
hann hefur komið sér upp á
heimili sínu á Selfossi.
Endurútgáfa plötunnar Þorvaldur Hall-
dórsson syngur sjómannalög leggst
ágætlega í söngvarann. Hann viðurkennir
þó að hann beri blendnar tilfinningar í
brjósti.
„Þegar þeir hringdu frá Senu og spurðu
hvort þetta væri ekki í lagi mín vegna
svaraði ég játandi. Ég hef hins vegar lítið
hlustað á og flutt þessi lög í seinni tíð og
dró gömlu plötuna því fram,“ segir hann
og fitjar upp á nefið.
„Þetta er að mörgu leyti vel gert hjá
okkur en það leynir sér ekki að platan er
barn síns tíma. Ég fór hins vegar að æfa
sum lögin upp til að hafa á takteinum og
hef aðeins verið að syngja þau fyrir eldri
borgara. Fólk hefur verið mjög þakklátt
enda eru miklar minningar tengdar þess-
um gömlu lögum. Sumir segjast yngjast
upp og aðrir segja þetta gefa sér gríð-
arlega mikið. Ég hef mikið verið spurður
hvort ekki sé til diskur með þessum
gömlu sjómannalögum og núna get ég
loksins svarað því játandi. Það er
ánægjulegt.“
Tímarnir breytast og mennirnir með og
Þorvaldur segir suma textana á plötunni
sér alls ekki að skapi í dag. „Sumir þeirra
eru of dapurlegir fyrir minn smekk, eins
og Nú hugsa ég heim og Á leið frá þér.
Þetta eru blúsaðir, angurværir textar sem
ég vil síður syngja í dag. Ég vil hafa meiri
gleði í þessu.“
Barn síns tíma