SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Qupperneq 32
32 6. júní 2010
L
jóst er að olíulekinn í
Mexíkóflóa er eitt al-
varlegasta olíuslys sem
átt hefur sér stað í
heiminum og það versta sem
komið hefur upp í bandarískri
lögsögu. Leita þarf aftur til árs-
ins 1991 til þess að finna alvar-
legri olíuslys á heimsvísu. Enn
er þó alls óljóst hversu alvarlegt
slysið kann að verða þegar upp
verður staðið, einkum þar sem
enn hefur ekki tekist að koma
alfarið í veg fyrir að olía berist
úr borholunni sem hún lekur
úr.
Talið er að milljónir lítra af
olíu hafi lekið úr holunni á degi
hverjum síðan 20. apríl sl. þeg-
ar sprenging og eldsvoði í kjöl-
far hennar olli því að borpall-
urinn sem dældi olíu upp úr
henni sökk í hafið. Ekki er enn
ljóst hvað nákvæmlega olli
sprengingunni sem varð 11
manns að bana, en ekki hefur
enn gefist svigrúm til þess að
rannsaka það til hlítar.
Bandarísk yfirvöld hafa frá
upphafi komið beint að aðgerð-
um á vettvangi olíuslyssins og
þá einkum í gegnum banda-
rísku strandgæsluna sem
stjórnað hefur aðgerðum á
staðnum í samstarfi við hags-
munaaðila.
Umhverfi og efnahagur í hættu
Öll áhersla hefur verið lögð á að
koma böndum á olíulekann og
hindra eins og kostur er frekari
útbreiðslu olíunnar. Óhag-
stæðar vindáttir að undanförnu
hafa leitt til þess að olían hefur
borist að ströndum Bandaríkj-
anna og er hún þegar farin að
valda alvarlegri mengun. Sam-
tals hefur vel yfir 200 kílómetra
strandlengja orðið fyrir meng-
un af völdum olíunnar og ógnar
hún viðkvæmu dýralífi og efna-
hagslífi á svæðinu, þ.m.t. ein-
um af auðugustu fiskimiðum
Bandaríkjanna. Fyrir vikið hef-
ur verið gripið til þeirrar ör-
yggisráðstöfunar að loka rúm-
lega þriðjungi af fiskimiðum á
svæðinu fyrir veiðum. Þá setur
mengunin stórt strik í reikn-
inginn fyrir ferðaþjónustu á
svæðinu sem skiptir miklu máli
fyrir efnahag þess.
Bandarísk stjórnvöld hafa
lýst því yfir að allt verði gert til
þess að koma böndum á olíu-
lekann og verja umhverfið fyrir
mengun af völdum hans og
hefur m.a. bandaríski herinn
verið virkjaður í því skyni. Yf-
irvöld í Louisiana-ríki hafa lýst
yfir neyðarástandi vegna áhrifa
mengunarinnar á strandlengju
ríkisins. Olíumengun hefur
einnig náð ströndum Flórída,
Alabama og eyja undan strönd
Missisippi. Þá fylgjast yfirvöld í
Mexíkó náið með þróun mála,
en enn sem komið er hefur ol-
ían ekki borist að ströndum
landsins. Það kann þó að breyt-
ast. Einnig er talið mögulegt að
áhrifa af olíulekanum kunni að
gæta upp eftir austurströnd
Bandaríkjanna og jafnvel langt
út á Atlantshaf, ekki síst með
hjálp Golfstraumsins sem liggur
frá Mexíkóflóa og norðureftir.
Miklar áhyggjur eru einnig af
því hvaða áhrif fellibyljir kunna
að hafa á útbreiðslu olíunnar en
fellibyljatímabilið er að hefjast
um þessar mundir á svæðinu.
Reynt að stöðva lekann
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til
þess að koma í veg fyrir frekari
leka úr borholunni hafa þær til
þessa annaðhvort runnið alger-
lega út í sandinn eða ekki skilað
nægjanlegum árangri. Meðal
þess sem reynt hefur verið var
að koma sérstökum hjálmi fyrir
á hafsbotninum yfir borholuna
til þess að hindra útbreiðslu ol-
íunnar. Sú tilraun mistókst hins
vegar og sömu sögu er t.a.m. að
segja um tilraun til þess að
moka jarðvegi yfir holuna og
loka henni síðan með stein-
steypu. Þá komu fram hug-
myndir fyrir helgi um að nota
sprengiefni til þess að loka bor-
holunni, jafnvel kjarnorku-
sprengju, en bandarísk stjórn-
völd hafa hins vegar lýst því
yfir að ekkert slíkt standi til.
Nú síðast var reynt fyrir helgi
að saga olíuleiðsluna sem lek-
inn er úr í sundur með aðstoð
dvergkafbáts sem búinn var
sérútbúinni sög. Ætlunin var í
framhaldi af því að koma sér-
stökum tappa í leiðsluna og
loka henni. Nokkur árangur
náðist við að saga leiðsluna þar
til sögin festist og gekk erf-
iðlega að losa hana. Það hafðist
þó að lokum og tókst að koma
tappa í leiðsluna aðfararnótt
föstudags. Vonast er til þess að
í framhaldinu verði hægt að
veita mestu af olíunni upp í
tankskip, jafnvel að allt að
90%. Myndir sýna þó að enn
streymir olía og gas úr borhol-
unni af miklum krafti. Ástæðan
Atburðarás
20. apríl
Sprenging og eldsvoði verður í
olíuborpalli áMexíkóflóa sem
verður 11 manns að bana.
22. apríl
Borpallurinn sekkur í hafið.
25. apríl
Fyrstu tilraunir til þess að
stöðva olíuleka úr borpallinum
með aðstoð dvergkafbáta
mistakast.
29. apríl
Barack Obama, Bandaríkja-
forseti, lýsir því yfir að ekkert
verði til sparað til þess að
stöðva olíulekann og að BP
beri ábyrgð á hreinsun
olíunnar.
30. apríl
Bandarísk stjórnvöld tilkynna
að ekki verði heimilt að bora
eftir olíu á nýjum stöðum fyrr
en ljóst er hvað olli spreng-
ingunni. Forstjóri BP lýsir yfir
fullri ábyrgð á olíuslysinu og
afleiðingum þess.
2. maí
Bandarísk stjórnvöld hefjast
handa við að loka fiskimiðum
sem ógnað er af olíulekanum.
7. maí
Tilraunir til þess að koma
sérstökum hjálmi yfir borhol-
una til þess að hindra frekari
olíuleka renna út í sandinn.
11.-12. maí
Forstjórar BP og rekstraraðila
borholunnar eru kallaðir fyrir
bandaríska þingnefnd og
sakaðir um vanrækslu og brot
gegn öryggisreglum.
16. maí
Bandarísk stjórnvöld grípa til
víðtækari ráðstafana til þess
að loka fiskimiðum á svæðinu.
19. maí
Tilraunir til þess að stífla
borholuna hefjast.
28. maí
Forstjóri BP tilkynnir að
olíuslysið hafi kostað fyrirtækið
nær einum milljarði banda-
ríkjadala.
29. maí
Tilraunir til þess að stífla
borholuna renna út í sandinn.
1. júní
Hlutabréf BP falla um 17% í
bresku kauphöllinni (34% frá
20. apríl). Bandarísk stjórnvöld
tilkynna að höfðað verði
dómsmál vegna olíuslyssins.
2. júní
Tilraunir hefjast til þess að
saga í sundur olíuleiðsluna og
koma tappa í hana. Erfiðlega
gengur að saga leiðsluna.
Fleiri fiskimiðum lokað.
4. júní
Hlutbréf BP hækka um 4,6%
eftir að fréttir berast af því að
tekist hafi að koma tappa í
olíuleiðsluna. Enn er þó gríðar-
legur olíuleki úr leiðslunni.
Versta olíuslys í
sögu Bandaríkjanna
Erfiðlega hefur gengið að stöðva olíu-
lekann í Mexíkóflóa. Olían hefur borist
að suðurströnd Bandaríkjanna og
ógnar umhverfi og efnahagslífi svæð-
isins. Mengun vegna olíunnar gæti
borist austur fyrir Bandaríkin og út á
Atlantshafið.
Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is
Heimild: Bandaríska strandgæslan, BP, NOAA
(National Oceanic and Atmospheric Administration)
* Fram að 3. júní
Olíulekinn við strendur Bandaríkjanna
Óvissa
Olíuleki kl. 17:00 sunnudaginn 6. júní skv. spám
MiðlungsLítil Olía við strendurMikil
FLORIDA
Deepwater Horizon
Sprenging í olíuborpalli
og eldsvoði 20. apríl,
sekkur 22. apríl.
Mexíkóf ló i
LOUISIANA
ALABAMA
BANDARÍKIN
GEORGIAMISSISSIPPI
New Orleans
MobileGulfport
100 km
Svæði sem lokað hefur
verið fyrir fiskveiðum
Hugsanleg útbreiðsla olíu
KANADA
DREIFING OLÍU
MEXÍKÓ
KÚBA
JAMAÍKA PÚERTÓ RÍKÓ
BANDARÍKIN
FLÓRÍDA
Nýfundnaland
Nova Scotia
Myndin sýnir hversu mikið
magn af heildarolíunni
sem lekið hefur úr
borholunni gert er ráð
fyrir að geti dreifst með
hafstraumum.
Enn streymir mikil olía úr borholunni.
Reuters