SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Qupperneq 38
38 6. júní 2010
B
iðin, sem mér virtist óralöng,
er á enda. Loksins, loksins er
myndin Sex and the City 2
komin í kvikmyndahús lands-
ins. Hún var frumsýnd með pomp og
prakt síðastliðinn miðvikudag og hafa
vinkonurnar fræknu; Carrie, Miranda,
Samantha og Charlotte hlotið góðar
viðtökur eins og þeirra var von og vísa.
Konur landsins streyma nú í bíó í góðra
vina hópi til að upplifa enn eitt æv-
intýrið. Þær eru hver annarri glæsilegri
enda gefst sjaldan annað eins tækifæri
til að dressa sig upp fyrir bíóferð.
Engin venjuleg bíóferð
Þrátt fyrir að aðstandendur mynd-
arinnar hafi sagt hverjum sem heyra
vildi að framhaldsmyndin yrði látlaus-
ari en sú fyrri og í takt við það efna-
hagsástand sem nú ríkir í heiminum
gekk það ekki eftir. Tíska og lífsstíll
stelpnanna hefur aldrei verið með jafn
miklum glæsibrag. Eitt er víst að fram-
leiðendur myndarinnar hafa ekki lent í
klóm kreppunnar því ekkert var til
sparað og heimildir herma að hátt í 1,3
milljörðum íslenskra króna hafi verið
varið til fatakaupanna einna. Það er því
næstum ógerningur að sitja í gömlum
lörfum þegar kvartettinn birtist á stóra
skjánum í hverri glæsiflíkinni á eftir
annarri. Að öllum líkindum taka vin-
konuhópar svo frá tíma að myndinni
lokinni þar sem þær hittast, gleyma
stað og stund, dreypa á nokkrum kok-
teilum yfir góðu slúðri og missa sig í
glamúrnum.
Veisla fyrir augað
Sama hvað gagnrýnendur hafa um
myndina að segja er hún algjört
skylduáhorf fyrir aðdáendur og hvern
þann sem elskar tísku. Ef marka má
aðalleikkonu myndarinnar, Söruh Jes-
sicu Parker, verður þetta ein stærsta
tískusýning allra tíma: „Við erum með
heilt iðnaðarhús sem er þrjú til fjögur
þúsund fermetrar að stærð. Það er
bókstaflega troðið af fötum frá öllum
helstu fatahönnuðum. Þar er sér her-
bergi fyrir skó, annað fyrir skartgripi
og enn eitt fyrir töskur. Húsið er líkt
og annar heimur.“ Þetta mikla umstang
kemur ekki á óvart því eins og önnur
aðalleikkona myndarinnar, Cynthia
Nixon, komst svo vel að orði eru fötin í
raun eins og ein af aðalpersónum
myndarinnar. Og svo ég vitni í Ladda;
„boy ó boy“ er sú persóna látin njóta
sín.
Þær stórstjörnur sem birtast á stóra
skjánum eiga sinn þátt í að gefa mynd-
inni tískusjarma. Liza Minelli, Heidi
Klum, Penélope Cruz, Miley Cyrus og
Mariah Carey eru meðal þeirra fjöl-
mörgu frægu andlita sem slást í för
með vinkonunum fjórum en mjög eft-
irsóknarvert þykir að fá að leika í
myndinni. Fjölmargar þekktar leik-
konur sóttust fast eftir hlutverki en
hrepptu ekki hnossið.
Flottar á litla og stóra skjánum
Líkt og svo margir vita eru myndirnar
um þennan þekkta vinkvennahóp
byggðar á samnefndum sjónvarpsþátt-
um sem lengi voru til sýningar á rúv.
Þar veittu stelpurnar okkur aðdáendum
hvaðanæva úr heiminum tækifæri til
þess upplifa hinn ljúfa lífsstíl kvenna í
hátískuborginni New York. Framleið-
endur Sex and the City hafa frá fyrsta
þætti lagt mikið upp úr því að hafa að-
alstjörnur sínar flottar í tauinu. Fjár-
magn var þó takmarkað þegar þættirnir
hófu göngu sína og því hefur klæðn-
aður stelpnanna breyst í gegnum árin.
Að mínu mati hefur það ekki komið að
sök og í rauninni hentað söguþræð-
inum vel. Í fyrstu þáttaröðunum voru
þær að byggja upp starfsferil sinn og
höfðu ekki úr miklu að moða. Með
vaxandi vinsældum og auknu fjármagni
urðu þættirnir glæsilegri og tískumerk-
in í hávegum höfð. Þegar þáttaraðirnar
runnu sitt skeið voru þær orðnar að
framakonum með næga peninga til að
viðhalda sínum háklassa lífsstíl. Þegar
svo fyrsta mynd Sex and the City kom
út var vinkvennahópurinn orðinn óað-
finnanlegur.
Tískufyrirmyndir
Það er alveg sama hvað stelpurnar taka
sér fyrir hendur, flestallt sem þær gera,
klæðast eða bera verður að tískufyr-
irbrigði. Þær virðast hafa jafn mikil
áhrif og helstu tískumógúlar samtím-
ans … ef ekki meiri. Þeir hönnuðir sem
þær hafa komið sér á framfæri við prísa
sig sæla með að hafa fengið svo áhrifa-
Glamúr í
borginni
Konur landsins flykkjast nú í sínu fínasta
pússi í kvikmyndahús til að skyggnast
inn í heim Carrie Bradshaw og vinkvenna
hennar þar sem tískan ræður ríkjum.
Stelpurnar hafa engu gleymt, eru enn með
tískuvitin í lagi og bjóða upp á tveggja
tíma stórglæsilega tískusýningu í nýjustu
mynd sinni Sex and the City 2.
Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is
Leikin af Söruh Jessicu Parker.
Fyndna og dramatíska vinkonan Carrie er
dálkahöfundur dagblaðsins The New York Star
og var á tímabili sjálfstætt starfandi fyrir tísku-
tímaritið Vogue. Hún er sögumaður Sex and
the City sem henni fer vel úr hendi, enda ein-
staklega orðheppin og notar oftar en ekki
hnyttnar tískumyndlíkingar. Carrie elskar allt
sem viðkemur tísku og er óhrædd við að
breyta útliti sínu. Fataskápur hennar er stút-
fullur af fötum, sama hver peningastaða henn-
ar er, og hún á heilan hafsjó af skóm. Fram-
leiðendur eyða mesta púðrinu í útlit hennar
enda bíða aðdáendur spenntir eftir að sjá
hverju hún tekur upp á að klæðast. Stíll henn-
ar er tilburðamikill en á sama tíma kvenlegur.
Hún virðist hafa sagt skilið við Vintage-flíkurnar
sem einkenndu hana svo lengi og er orðin
þræll tískjumerkjanna. Carrie heldur þó áfram
að taka áhættu í klæðaburði
Setningin: „Skyndilega leið mér eins og ég
væri klædd arfa í troðfullu herbergi af fólki í
Chanel.“
Mennirnir: Mr. Big, Aidan Shaw, Jack Berger
og Aleksandr Petrovsky.
Carrie Bradshaw
Leikin af Kristin Davis.
Charlotte York er hjartahreina vin-
konan og húsmóðir með meiru sem
áður hafði unun af því að vinna í list-
galleríi. Hún er með eindæmum já-
kvæð og gerir allt fyrir ástina. Hver
man ekki eftir þættinum þegar hún
fetaði í fótspor Elizabeth Taylor og
gerðist gyðingur til þess að geta
gengið í hjónaband með Harry. Ólíkt
vinkonum sínum á hún í erfiðleikum
með að tala opinskátt um kynlíf og
fer í kleinu þegar Samantha lætur
allt flakka. Fatastíll hennar er klass-
ískur, sætur og mjög litríkur. Hún ber
ekki mikið af skartgripum nema þeir
séu látlausir en fullkomnar útlit sitt
með litlum töskum og flottum skóm.
Setningin: „Ég hef verið að fara á
stefnumót síðan ég var fimmtán ára.
Ég er dauðþreytt. Hvar í fjáranum er
hann?“
Mennirnir: Trey MacDougal, Harry
Goldenblatt
Charlotte York
Tíska