SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Side 50

SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Side 50
50 6. júní 2010 E f áhugamenn um framúrskarandi ljósmyndun hafa einhverntímann átt erindi til New York borgar, þá er það líklega núna þessa dagana. Út júnímánuð stendur nefnilega yfir í Museum of Modern Art, MoMA, sýningin Henri Cartier-Bresson – The Modern Century. Þetta er afar yfirgripsmikil sýning þar sem er farið yfir ólíka þætti í ferli franska ljósmynd- arans sem auðnaðist að bylta miðlinum á óviðjafn- anlegan hátt og notaði ljósmyndina til að sýna heiminn eins og enginn annar hefur gert. Þessa sýningu má eng- inn unnandi merkrar ljósmyndalistar, sem hefur tæki- færi til að sækja borgina heim, láta framhjá sér fara. Súrrealistinn og frásagnarljósmyndarinn Þegar Henri Cartier-Bresson lést árið 2004, á 96. ald- urári, var hann hylltur sem risi í heimi ljósmyndunar, einn áhrifamesti ljósmyndari sögunnar, og jafnframt einn mesti listamaður 20. aldar. Eins og felst í titli þess- arar stóru yfirlitssýningar í MoMA, fyrstu stóru og fræðilega saman settu sýningunni sem fer upp með verkum ljósmyndarans eftir andlát hans, þá var hann sannkallaður skrásetjari 20. aldarinnar; hinnar módern- ísku aldar. Myndarleg bók kom út samhliða sýningunni. Fyrir framan sýningarsalina hefur verið komið fyrir flennistóru heimskorti, þar sem ferðalög Cartier- Bressons eru dregin upp, svo minnir helst á lýsingar af flakki ævintýramanna á borð við Indiana Jones. Sú sam- líking er heldur ekki fjarri lagi, enda var nær allur heim- urinn undir í þá fjóra áratugi sem Cartier-Bresson var sérstaklega virkur sem ljósmyndari, 1931 til 1973 (þá sneri hann sér að æskuástinni, teikningunni!) Ferlinum má skipta í tvennt. Annarsvegar er tími hins súrrealíska götuljósmyndara, sem hafði aðeins áhuga á að fanga mannlífið sem hann upplifði, í sögulausum en formhreinum myndum. Á nokkrum árum umbylti hann þá því fagi sem kallað hefur verið götuljósmyndun. Eftir heimsstyrjöldina síðari varaði Robert Capa vinur hans, hinn kunni stríðsljósmyndari, Cartier-Bresson hins- vegar við því að láta ekki stimpil „litla súrrealistans“ festast við sig. Eftir að hafa verið stríðsfangi nasista og upplifað hörmungar styrjaldarinnar var engin hætta á því; þeir Capa og nokkrir félagar til stofnuðu Magnum, hinn kunna ljósmyndarahóp, og við tók tímabil þar sem Cartier-Bresson var leiðandi í hópi fótó-journalista. Hann skráði þá í frásagnarlegum og iðulega félagslega meðvituðum ljósmyndum samfélagslegar hræringar, án þess þó að fórna nokkru sinni formrænum kröfum eða glata áhuganum á áhugaverðu umhverfi og skapandi fólki. Þriðja sviðið sem ég tel Cartier-Bresson nefnilega hafa umbylt, auk götu- og fréttaljósmyndunar, er um- hverfisportrettið, myndir af misfrægu fólki í sínu per- sónulega umhverfi. Frumprent og frumbirtingar Á sýningunni eru um 300 ljósmyndir. Um 200 koma frá Cartier-Bresson stofnuninni í París en talsverður fjöldi er í eigu MoMA. Forvitnilegt er að sjá mörg frumprent þarna og bera þau saman við seinni tíma prent, sem eru iðulega stærri og vandaðri tæknilega séð. Ljósmynd- arinn hafði lítinn áhuga á myrkraherbergisvinnu, eins og sjá má, og fól sérfræðingum fljótlega að sjá um prent- un myndanna. Frumprent eru þær myndir kallaðar sem eru gerðar eftir filmunum innan fimm ára frá þær eru teknar og þótt þau séu lakari að gæðum, þá eru frum- prentin ætíð verðmætari á markaðinum. Þá er einnig af- ar forvitnilegt að skoða í gömlum dagblöðum og tíma- ritum í sýningarkössum hvernig stakar myndir og myndafrásagnir voru upphaflega birtar; iðulega hefur ljósmyndarinn valið aðra ramma til að birta í bókum sínum en ritstjórar blaðanna kusu. Þá er ekki síður for- vitnilegt að sjá hvernig blöð á vesturlöndum birtu ein- stakar myndaraðir Cartier-Bressons frá Sovétríkjunum og Kína, meðan það voru enn nær lokaðir heimar. Sýningunni er annars skipt í 13 hluta. Í fyrsta hlut- anum eru kunn verk frá fyrsta skeiðinu, súrrealíska götuljósmyndaranum, og í öðrum eru lykilverk frá skeiði frásagnarljósmyndarans eins og myndin hér til hægri, af fólki sem treðst í röð fyrir utan banka í Shanghai, í von um að ná einhverju af gulli sínu þegar kommúnistar eru í þá mund að ráðast inn í borgina. Hinum köflunum er skipt upp í þemu á nokkuð óvæntan en athyglisverðan hátt. Í nokkrum birtist skrá- setning Cartier-Bressons á daglegu lífi, í heimalandinu, annarsstaðar í Evrópu, Bandaríkjunum og í Asíu. Þá er horft á breytingar, meðal annars í félagslegu samhengi, eins og í Sovétríkjunum, og á framleiðsluháttum. Kaflar eru helgaðir stórum ljósmyndafrásögnum, eins og skráningu á „stóra stökkinu“ í Kína árið 1958, og önnur, sem er nær óþekkt, sýnir lífið innan bandarískra banka- stofnana. Þá eru hlutar sýningarinnar helgaðir portertt- um og túlkun ljósmyndarans á fegurð heimsins. Hugsunin og augað skipta öllu máli Við að fara gegnum einstakan myndheim Cartier- Bressons í MoMA gat ég ekki annað en hugleitt hvað við- fangsefni sýningarinnar var í raun fjarri því sem hæst ber í umræðu um ljósmyndun um þessar stundir. Bless- unarlega koma megapixlar, súmm og myndavélaheiti þessum heimi á sýningunni ekkert við, enda viðfangs- efnið það sem í raun skiptir máli þegar fólk beitir þess- um skráningarkassa sem myndavélin er: umheimurinn og fólkið sem hann byggir. Þeir sem hafa áhuga á að taka myndir og skoða mikilvæga ljósmyndun þurfa að gera sér grein fyrir því að gæði mynda fara ekki eftir því hvort tækið sem beitt er kostar milljón krónur eða tutt- ugu þúsund; það er hægt að taka góða ljósmynd á hvaða myndavél sem er. Cartier-Bresson notaði samskonar vél alla tíð, Leica með 35mm filmu, nær alltaf með 50mm linsu, og notaði hvorki flass né ljósmæli. Það er hugs- unin að baki, og þjálfun augans, sem skiptir máli. Car- tier-Bresson auðnaðist að skapa fleiri meistaraverk en nokkur annar ljósmyndari á tuttugustu öld; þar sem hann, í eigin orðum, nam á sekúndubroti „tilfinning- arnar í myndefninu og fegurð formsins.“ Ljósmyndun Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Afgerandi augnablik Þessa mánuðina býður MoMA, Samtímalistasafnið í New York, upp á veislu fyrir áhugafólk um ljósmyndun þar sem sýnt er hvernig miðillinn var mótaður og notaður um leið til að skrá hræringar tuttugustu aldar. Veisluföngin eru öll frá Henri Cartier-Bresson, mesta ljósmyndara aldarinnar. ’ Blessunarlega koma megapixl- ar, súmm og myndavélaheiti þessum heimi á sýningunni ekkert við, enda viðfangsefnið það sem í raun skiptir máli þegar fólk beitir þessum skráningarkassa sem myndavélin er: umheimurinn og fólk- ið sem hann byggir. Lesbók

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.