SunnudagsMogginn - 06.06.2010, Blaðsíða 53
6. júní 2010 53
Þ
að skiptir kannski
ekki svo miklu máli
hvað við köllum hlut-
ina. Góð list er góð
óháð því hvaða merkimiði er
settur á hana og sama gildir
um bókmenntirnar. Dýrin í
Saigon nefnist bók með þessa
eiginleika eftir Sigurð Guð-
mundsson sem er eiginlega allt
eins hugmyndaverk og skáld-
saga og jafnvel eitthvað allt
annað. Þetta er í senn skáld-
skapur og heimspekileg tilraun
um manninn. Tilraunaverk-
stæðið er Saigon. Og viðfangs-
efnin nokkrar konur sem allt
eins gætu verið hugarfóstur.
Því að verkefni Sigurðar snýst
um samband sögumanns og
veruleikans.
Sagan gerist á þremur svið-
um. Í huga höfundar þar sem
fimmfalt (alter) ego hans,
hestur sem er skáld, samkyn-
hneigður svanur, máfur sem
tjáir sig eingöngu á ensku og
fjórtán ára stelpa sem er
heimspekingur auk mannsins
sjálfs yrkja og gleypa í sig lífið
og skapa úr því hugmynda-
verk. Annað sviðið er bréf sem
sögumaður sendir móður sinni
og svo er það borgarveruleik-
inn í Saigon, huglæg upplifun
höfundar af nokkrum víet-
nömskum konum þar í borg.
Sögumaðurinn er í meira og
minna orðlausu sambandi við
konurnar því að hann talar
ekki mál þeirra. Þótt sumar
þeirra tali hrafl í ensku er
tjáningarmátinn huglægur og
meira og minna innlifun lista-
mannsins sjálfs þegar hann fer
inn í persónur sínar, mótar
þær að sínum hugmyndaheimi
svo að þær verða að öðrum –
óháð því hversu veru-
leikatengdar þær eru – að
sköpun hans sjálfs. Túlka
mætti þessa nálgun listaverks
sem einhvers konar hlutgerv-
ingu en mér er nær að halda
að hún sé tilraun til andófs
slíkrar hlutgervingar. Um
ræstingastúlkuna Thuy kemst
sögumaður svo að orði: „Thuy
er listaverk sem ekki er hægt
að upplifa nema elska það –
aðeins gegnum ást er hún til
sem veröld. Án milligöngu
ástarinnar er ekkert að sjá
nema ræstingarstúlkuna Thuy;
skurnina.“
Í raun og veru er hægt að
útskýra verkefni og viðfangs-
efni Sigurðar út frá tveimur
verkum hans. Fyrir nokkrum
árum kom ég á sýningu og
svokallaðan event ef ég man
rétt vestur á Ísafirði þar sem
miðja verksins var trjádrumb-
ur sem hafði verið tálgaður og
tilhöggvinn eftir forskrift og
unninn í samvinnu Sigurðar
og þýsks listamanns með hug-
skeytaformi. Sigurður var
staddur í Kína en Þjóðverjinn
að mig minnir í Þýskalandi og
þeir höfðu samband með hug-
skeytum í mótun verksins.
Hér var orðlaus tjáning ein-
hvers. En í bókinni er hin orð-
lausa tjáning tjáð með orðum.
Hitt listaverkið er fáðir steinar
við Sæbrautina. En þeir eru
teknir af staðnum sem hvert
annað uppfyllingargrjót, slíp-
aðir til hálfs í Kína og settir
aftur á sinn stað. Hafa þá
breyst í marglita steina. Svip-
aða meðferð finnst mér per-
sónur Sigurðar fá í bókinni.
Hann færir þær úr venju-
bundnu umhverfi þeirra og
upphefur þær í eigin hugar-
heimi og kannski líka í veru-
leikanum en skilur þær svo
eftir og yfirgefur sviðið. Í stað
dauðra steina er efni hans lif-
andi fólk. Með því leggur hann
áherslu á hið óvenjulega og
fagra í hinu hversdagslega og
venjulega.
Bókin virkar því á mig sem
ljóðrænt hugmyndaverk fullt
með erótík þótt sú erótík verði
aldrei beinlínis holdleg. Það
merkilega við þetta flókna
hugmyndaverk er hversu læsi-
leg bókin er og aðgengileg
þrátt fyrir allar hugmynda-
flækjurnar.
Konur og steinar
Bækur
Dýrin í Saigon
bbbbn
Eftir Sigurð Guðmundsson. Mál og
menning 2010, 228 bls.
Listamaðurinn og rithöfundurinn Sigurður Guðmundsson.
Skafti Þ. Halldórsson
Eymundsson
1. 501 Must-Visit Cities - Bounty Bo-
ojks
2. The Monster in the Box - Ruth
Rendell
3. The Doomsday Key - James Roll-
ins
4. The Collaborator - Gerald Seymour
5. 206 Bones - Kathy Reichs
6. Pirate Latitudes - Michael Crich-
ton
7. Nine Dragons - Michael Connelly
8. Ford County - John Grisham
9. Hard Girls - Martina Cole
10. Insight Deluxe World Travel Atlas -
Geocenter
New York Times
1. 61 Hours - Lee Child
2. Storm Prey - John Sandford
3. Dead in the Family - Charlaine
Harris
4. The Help - Kathryn Stockett
5. Innocent - Scott Turow
6. Heart of the Matter - Emily Giffin
7. The 9th Judgment - James Patter-
son og Maxine Paetro
8. Fever Dream - Douglas Preston og
Lincoln Child
9. Deliver Us From Evil - David Bal-
dacci
10. A Secret Affair - Mary Balogh
Waterstone’s
1. The Short Second Life of Bree
Tanner - Stephenie Meyer
2. Kiss of Death - Rachel Caine
3. Dead in the Family - Charlaine
Harris
4. The Lost Symbol - Dan Brown
5. The Return: Midnight - L.J. Smith
6. The Girl Who Kicked the Hornets’
Nest - Stieg Larsson
7. Dead and Gone - Charlaine Harris
8. Breaking Dawn - Stephenie Meyer
9. The Passage - Justin Cronin
10. The Immortals: Shadowland - Aly-
son Noel
Bóksölulisti
Í mínum huga er lestur jafn
sjálfsagður og svefn. Að lesa
bók eða tímarit er fastur liður
í mínum undirbúningi fyrir
hvíld næturinnar. Það skal þó
viðurkennt að lesefnið er alls
ekki alltaf hátt skrifað menn-
ingarefni. Það fer allt eftir
dagsforminu og jafnvel árs-
tíðum hvaða efni verður fyrir
valinu. Á vorin og sumrin er
oftast tími léttmetisins, tíma-
ritanna og gleðibókanna, sem
ég kalla Rauðu ástarsögurnar
og þær hetjusögur allar.
Haustið og veturinn er aftur á
móti gósentíð fyrir alla
áhugasama lesara. Höfundar,
innlendir og erlendir, keppast
þá við að koma afkvæmum
sínum á markað, allir vilja
komast í hið eftirsótta jóla-
bókaflóð. Þá tryllast allir
lestrarhestar og ritdómarar
og ýmist mæra eða lasta
hverja flóðbylgju bóka sem
æðir í boðaföllum í verslanir
og markaði. Mikil stemning
myndast um lestur á þessum
tíma og mér sem starfsmanni
á plani, það er að segja á
bókasafni, finnst þessi tími
mjög skemmtilegur. Mestur
áhugi er á spennusögum og
glæpasögum og fólk bíður í
röðum eftir að festa hönd á
þeim sem mesta og besta um-
fjöllunina fá. Framan af voru
þetta ekki þær bókmenntir
sem ég sótti hvað mest í að
lesa, en ég er áhrifagjörn og
hef smitast af þessari stemn-
ingu þótt alltaf slæðist með
ein og ein antispenna. Ég las
um daginn bókina Heim-
koman eftir Björn Þorláks-
son. Þessi bók kom mér um
margt á óvart. Fyrir fram
fannst mér það gæti ekki ver-
ið skemmtilegt að lesa um
það hvernig karlmaður sem
fékk uppsögn úr vinnunni
sinni tæklaði þann ískalda
raunveruleika að vera „bara
heima“. En bókin kom
skemmtilega á óvart, textinn
lipur og myndrænn, og alveg
finnst mér aðdáunarvert
hvernig þessi karlmaður tók
á málunum. Góð bók sem
óhætt er að mæla með, bæði
fyrir karla og konur. Um
svipað leyti var á náttborðinu
mínu bókin Hlustarinn eftir
Ingibjörgu Hjartardóttur.
Þessi bók fallar um þýsku
konurnar sem komu til Ís-
lands eftir stríð og settust
margar að hér. Allt frá því ég
var barn vissi ég af nokkrum
konum, þýskum, sem búsett-
ar voru í Norður-Þingeyj-
arsýslu. Þangað höfðu þær
komið til að vinna á bæj-
unum, höfðu svo kynnst ást-
inni þarna í strjálbýlinu og
stofnað fjölskyldur. Nú hefur
sem sagt verið skrifuð bók
sem byggir á þessum stað-
reyndum, þrátt fyrir að vera
skáldsaga að stórum hluta.
Þetta var mjög ánægjulegur
lestur um afkomu og sérstaka
hagi þessa fólks sem byggði
strjálbýlan part af okkar
ágæta landi. Höfundur hefur
kynnt sér vel aðstæður þess-
ara kvenna sem örlögin léku
þannig, að þær neyddust til
að yfirgefa heimaland sitt og
leita á vit hins ókunna og
óræða.
En þá er það spennan. Ein
af þeim sem rataði á nátt-
borðið mitt nýlega er;
„Fimmta barnið“ eftir Ey-
rúnu Ýr Tryggvadóttur, unga
húsvíska konu sem gert hefur
tilkall til stöðu meðal ís-
lenskra spennusagnahöfunda.
Þetta er hennar þriðja bók,
önnur bókin á tveimur árum.
Gaman verður að fylgjast
með henni áfram. Þá hefur
mér nýlega verið bent á Ca-
millu Lackberg, sænskan
spennusagnahöfund. Þar verð
ég að viðurkenna að vera að-
eins á eftir, eins og það er
orðað, því ég hef enn sem
komið er ekki lesið nema
fystu bókina sem þýdd hefur
verið á íslensku, þ.e. Ísprin-
sessuna. En ég á víst margt
gott í vændum við lestur allra
hinna bókanna hennar Ca-
millu sem nú þegar eru til á
íslensku.
Alltaf gott að hlakka til
einhvers. Ég nefndi tímarit í
upphafi. Ég á það nefnilega til
að taka með mér blað eða
tímarit í rúmið, þegar ég veit
að ég kem ekki til með að lesa
lengi. Oftar en ekki þá lenda
þessi blöð undir sænginni
minni og það má því segja að
stundum sofi ég hjá blöðum.
Hvort það er endilega þægi-
legt læt ég liggja á milli hluta
en eitt er víst að gott er að
hafa tvíbreitt rúm þegar
tímaritin og blöðin eru komin
með í holuna.
Lesarinn Guðrún Kristín Jóhannsdóttir
forstöðumaður Bókasafnsins á Húsavík
Að sofa hjá tímaritum
Í Heimkomunni segir Björn Þorláksson frá því er honum var sagt upp
og hvernig hann tókst á við þann veruleika að vera „bara heima“.