SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Side 10

SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Side 10
10 25. júlí 2010 06:20 Vekjaraklukkan í formi GSM-síma hringir, kom- inn tími til að vakna. Held upp í eldhús og geri mig kláran í að elda hafragraut að hætti húss- ins. Læðist um húsið og passa mig á því að vekja engan á leið- inni út. 07:00 Mættur til vinnu á slökkvistöðinni í Hafnarfirði, skelli mér í sturtu og svo í fram- haldi af því í vinnufötin sem eru helst til of heit í svona veðri eins og er úti. 07:20 Formleg vaktaskipti fara fram í bílasal. Þar hittast dagvaktin og næturvaktin og fara yfir útköll næturinnar sem og annað sem gæti skipt máli á stöðinni. Símar og talstöðvar ganga á milli manna og hver og einn fær hlutverk fyrir daginn. Í dag er ég stjórnandi reyk- kafara á dælubíl, annar af tveimur í áhöfn á sjúkrabíl, ökumaður á körfubíl og gáma- bíl. Fer og athuga með tækin og búnaðinn og kanna hvort allt sé eins og það á að vera. 08:15 Fundur yfir kaffibolla og farið yfir fréttir líðandi stundar, æfingar og verkefni dagsins eru einnig rædd. Fjöl- breytileiki og óvissa starfsins býður hins vegar upp á það að þú veist ekki hvernig dagurinn kemur til með að þróast þó svo að búið sé að ákveða eitthvað fyrirfram. 08:30 Létt morgunæfing þar sem vaktin fer yfir öndunar- búnað úr sjúkrabílnum, fiktum og prófum tækin, oftar en ekki fylgja með reynslusögur um notkun búnaðarins. 09:00 Fyrsta útkall dagsins er á sjúkrabílinn, en stór partur af okkar vinnudegi fer fram um borð í honum. Heyri í talstöð- inni að dælubíllinn er á leið í út- kall á sama tíma og við erum með sjúkling í sjúkrabílnum. 12.00 Eftir nokkra sjúkra- flutninga í röð fáum við mat- arhlé og það á réttum tíma sem er ágætis tilbreyting. Matseðill dagsins hljóðar upp á fisk og kartöflur, skolað niður með ís- köldu vatni. 13.30 Vinnudagurinn hálfn- aður og þar sem við komumst ekki í líkamsræktina í morgun vegna anna ætlum við að reyna að fara núna. Sólin skín glatt og hitinn um 18 gráður svo við ákveðum að æfa úti að þessu sinni og ætlum í kjölfarið að taka dæluæfingu á slökkvibíln- um. Fékk símtal frá konunni um stöðu mála heima þar sem allir á heimilinu eru í sumarfríi. 14:15 Útkall á sjúkrabílinn, förum sveittir í sjúkrabíla- samfestinginn eftir stutta æf- ingu; hefði alveg þegið að fara í sturtu fyrir þetta útkall en það er ekki í boði nú frekar en áður. Sjúklingurinn hefur forgang. 17:00 Komum aftur á slökkvistöð eftir nokkra sjúkra- flutninga, sturtan farin að kalla á mig en ákveð að taka nokkrar æfingar í viðbót því ég náði ekki að klára áðan. Dæluæfingin verður hins vegar að bíða betri tíma. 18:00 Sturta og tiltekt eftir daginn, göngum frá og reynum að skila bílunum í góðu standi fyrir næturvaktina. Setjum í vél, förum út með ruslið og hellum upp á kaffi. 19:20 Formleg vaktaskipti í bílasal þar sem næturvaktin tekur við, förum yfir útköll dagsins og afhendum síma og talstöðvar. 20:00 Keyri í hlað heima eft- ir 12 tíma vinnudag, allir heima búnir að borða svo ég klára rest- ina af matnum á meðan ég ræði við konuna og börnin um þeirra dag. 21:00 Ég og konan hjálp- umst að við að koma liðinu í sturtu og svo í náttföt og upp í rúm. Þetta gengur yfirleitt eins og í sögu enda samvinna lyk- ilatriðið. 22:45 Leggst upp í sófa og kveiki á tölvunni, skoða tölvu- pósta og kíki á íþróttasíðuna. Fylgist með 22:00 fréttum á RÚV+ og að þeim loknum er það rúmið sem kallar. Ekki seinna vænna því það er önnur vakt á morgun og vissara að vera vel hvíldur fyrir þau átök sem bíða mín þar, hver svo sem þau verða. kjartan@mbl.is Eldheitur vinnudagur Dagur í lífi Harðar Halldórssonar slökkviliðsmanns Búrmamaðurinn U Thant, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kom hingað til lands í opinbera heimsókn í byrjun júlí 1966, fyrstur manna sem gegnt höfðu því embætti. Synd væri að segja að Thant hafi verið heppinn með veður meðan á dvöl hans stóð. Hann lenti „berhöfðaður og yfir- hafnarlaus“, eins og Morg- unblaðið greindi frá, í slag- veðursrigningu og roki á Keflavíkurflugvelli. Eftir það var regnhlífin hans dyggasti förunautur. Lítið lagðist því fyrir spá Gunnars Thorodd- sen, sendiherra í Danmörku, þaðan sem Thant kom, en hann gerði ráð fyrir sólskini á Íslandi meðan framkvæmda- stjórinn yrði þar fyrir þær sakir að rigning var í Kaup- mannahöfn. Svo sem lög gera ráð fyrir hitti Thant helstu ráðamenn þjóðarinnar að máli, Emil Jónsson utanríkisráðherra tók á móti honum á flugvellinum og fylgdi honum svo að segja hvert fótmál, Bjarni Bene- diktsson forsætisráðherra sat með honum fund og forseti Ís- lands, Ásgeir Ásgeirsson, bauð til veislu á Bessastöðum, ell- egar veizlu, eins og það hét á þeirri tíð. Á borðum voru nýr lax og rjúpur. Vitaskuld var brunað með Thant á Þingvelli. Nokkur rigning var og þungskýjað þegar þangað var komið, „heldur dapurlegt um að lit- ast“, eins og blaðamaður Morgunblaðsins komst að orði. Eigi að síður lá vel á Thant sem fræddist um sögu staðarins hjá Þórði Einarssyni, fulltrúa í menntamálaráðu- neytinu. Vegna kulda lauk Þórður máli sínu í bíl niðri við Valhöll. Á bakaleiðinni var komið við í Eden í Hveragerði, Thant skoðaði blóm og plöntur af áhuga og fékk að bragða á ís- lenskum banana hjá Óttari Hróðbjartssyni, starfsmanni gróðurhússins. Gaf fram- kvæmdastjórinn banananum góða einkunn. U Thant var framkvæmda- stjóri SÞ frá 1961-71. Hann lést 1974, 65 ára að aldri. orri@mbl.is U Thant ásamt fríðu föruneyti á Þingvöllum. Regnhlífin fékk litla hvíld meðan á dvöl framkvæmdastjórans á landinu stóð. Morgunblaðið/Ólafur K Magnússon U Thant og Emil Jónsson utanríkisráðherra gæða sér á banana. Morgunblaðið/Ólafur K Magnússon U Thant gæddi sér á banana í Hveragerði Úr myndasafninu

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.