SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Blaðsíða 37
25. júlí 2010 37
Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is
Þ
ær eru ófáar konurnar í Hollywood sem hafa gengist undir hnífinn til þess eins
að viðhalda unglegu útliti sínu. Það þykir nefnilega ekki smart að vera með
broshrukkur eða annað sem sýnir að maður hefur lifað lífinu.
Lengi vel var ég fórnarlamb þessarar hugsunar. Ég var staðráðin í að bjóða
hrukkur aldrei velkomnar og fannst ekkert athugavert við að láta þær hverfa með einum eða öðrum
hætti.
Á síðustu árum hefur mér þótt eilítið hrukkótt húð, þó ekki illa farin eftir ljósabekki eða reykingar,
ótrúlega töff. Það heillar mig í dag meira að eldast á eðlilegan hátt en að gangast undir ótal lýtaað-
gerðir. Í rauninni hlakka ég til að takast á við þau mismunandi aldurstímabil sem vonandi bíða mín.
Það verður gaman að breyta mörgu sem tengist útlitin í takt við breyttan aldur, s.s. fatastílnum,
andlitsförðuninni, hárgreiðslunni og svo mætti lengi telja.
Í Hollywood má finna einstaka hræður sem þora að sýna sitt rétta andlit og ég hreinlega dáist að
þeim fyrir að láta ekki undan þrýstingi.
Í fljótu bragði detta mér í hug leikkonurnar Julianne Moore, Cate Blanchett, Kate Winslet og Judi
Dench. Sú sem mér þykir þó skara fram úr á þessu sviði er konan á bak við hina geysivinsælu
Hermes Birkin-tösku, Jane Birkin. Þessi 63 ára söng- og leikkona er eflaust besta dæmið um
konu sem skartar hrukkum sínum stolt. Það sem einkennir útlit Birkins er þessi ungi andi sem
skín af henni. Hún er síbrosandi og lætur broshrukkumyndun sem vind um eyrun þjóta. Bros
hennar er ávallt jafn einlægt og unglegt. Hún er mín fyrirmynd.
Konurnar í Hollywood sem skarta sínu „eigin“ andliti eru oftast þær sem eru með mestu útgeisl-
unina, enda með sjálfstraustið í lagi. Það er nefnilega mikilvægara fyrir útlitið en marga grunar.
Þær leikkonur sem gangast reglulega undir hnífinn virðast frekar óöruggari með útlit sitt. Ætli
þær séu ekki flestar grátandi innra með sér á rauða dreglinum yfir nýjustu hrukkunni sem kom
svo skjótt að enginn tími gafst til að láta lækni galdra hana í burtu. Það sést bara ekki því andlits-
vöðvarnir hafa verið lamaðir með Botoxi.
Julianne Moore
Cate Blanchett Kate Winslet
Jane Birkin
Judi
Dench
Að eldast með reisn
Tíska