SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Blaðsíða 53
25. júlí 2010 53
A
nne Holt, höfundur bókarinnar
Það sem mér ber, er einn vin-
sælasti krimmahöfundur sem
Noregur hefur af sér getið.
Hún nýtur gífurlegra vinsælda á
Norðurlöndunum, sem ætti ekki að
koma neinum á óvart sem hefur lesið
þessa kynngimögnuðu sögu. Hér er á
ferðinni fyrsta glæpasaga Holt í bóka-
flokknum um lög- og sálfræðinginn
Inger Johann Vik.
Ég hef ekki lesið jafn óhugnanlega og
góða sögu síðan The Lovely Bones var
gefin út árið 2002. Það er furðulegt
hvað svo hrollvekjandi saga getur haldið
lesandanum við efnið. Sjónvarps-
dagskráin var lögð til hliðar og sagan
spænd upp á mettíma.
Sá efniviður sem Holt hefur valið sér
er allt annað en léttmeti. Rannsóknar-
lögreglan í Osló stendur frammi fyrir
einum óhugnanlegasta glæp sem nokkur
getur ímyndað sér, barnaráni. Norð-
menn eru slegnir, enda óvanir glæpum
sem þessum, og því er mikil pressa á
lögregluna að leysa málið sem fyrst. Yf-
irmaður hennar reynir að fá Vik til liðs
við sig sem þykir ekki ráðlegt að blanda
sér í málið. Hún telur ekki vera mikla
hjálp í sér og þar að auki hafi hún öðr-
um hnöppum að hneppa. Eldri kona
lætur henni í té upplýsingar um mann
sem dæmdur hafði verið ranglega í lífs-
tíðarfangelsi, en var svo látinn laus öll-
um að óvörum. Þegar fleiri börn hverfa
sporlaust ákveður Vik þó að ljá lögregl-
unni hjálparhönd.
Sagan er einstaklega vel skrifuð og
það er kannski engin furða þar sem
Holt er hér á heimavelli. Hún hefur
unnið sem lögfræðingur, fréttakona og
lögreglukona og gegndi einnig stöðu
dómsmálaráðherra um skeið. Holt
byggir á sögusögn um mann sem varð
fórnarlamb réttarmorðs. Í stað þess að
rannsaka málið betur lét hún ímynd-
unaraflið leiða sig í skrifum bókarinnar
Það sem mér ber.
Sagan er á köflum hrottaleg og því
ættu viðkvæmir að hafa varann á. Sjálf
fékk ég væga martröð eftir að lestri
lauk, en hann var alveg þess virði.
Glæpsamlega óhugnanlegur krimmi
Bækur
Það sem mér ber
bbbbn
Eftir Anne Holt. Salka
2010, 383 bls.
Hugrún Halldórsdóttir
Miðborg Oslóar. Borgin er sögusvið glæpasögunnar Það sem mér ber.
5. til 18. júlí
1. Vegahandbók-
in, 2010 –
Steindór Stein-
dórsson, Útkall
2. Það sem mér
ber – Anne Holt, Salka
3. Makalaus – Þorbjörg Mar-
inósdóttir, JPV útgáfa
4. Aldrei framar frjáls – Sara
Blædel, Undirheimar
5. 25 gönguleiðir á höfuðborg-
arsvæðinu – Reynir Ingi-
bjartsson, Salka
6. Eyjafjallajökull – Ari Trausti
Guðmundsson & Ragnar Th.
Sigurðsson, Uppheimar
7. Iceland on fire – Vilhelm
Gunnarsson, Salka
8. Volcano Island – Sigurgeir
Sigurjónsson, Forlagið
9. Kortabók Íslands – Örn Sig-
urðsson, Mál og menning
10. Íslenska plöntuhandbókin –
Hörður Kristinsson, Mál og
menning
Frá áramótum
1. Rannsókn-
arskýrsla Al-
þingis –
Rannsókn-
arnefnd Al-
þingis, Al-
þingi
2. Póstkortamorðin – Liza Mark-
lund/James Patterson, JPV
útgáfa
3. Loftkastalinn sem hrundi –
Stieg Larsson, Bjartur
4. Góða nótt, yndið mitt – Do-
rothy Koomson, JPV útgáfa
5. Hafmeyjan – Camilla Läck-
berg, Uppheimar
6. Stúlkan sem lék sér að eld-
inum – Stieg Larsson, Bjartur
7. Svörtuloft – Arnaldur Indr-
iðason, Vaka-Helgafell
8. Nemesis – Jo Nesbø, Upp-
heimar
9. Horfðu á mig – Yrsa Sigurð-
ardóttir, Veröld
10. Þegar kóngur kom – Helgi
Ingólfsson, Ormstunga
Bóksölulisti Félags bókaútgefenda
Snædal og Þóru Sigurbjörnsdóttur en sú
bók segir frá, að ég held, öllum baðhæf-
um (ef svo má að orði komast) náttúru-
laugum landsins. Þær eru flestar á stöð-
um sem er mjög erfitt að finna en þannig
kemst maður í frekara í návígi við nátt-
úruöflin. Nú veit ég ekki hvort það er
markmið þeirra sem keyra um á fimm
stjörnu húsbíl en til þess fer ég út í nátt-
úruna.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Fólk að lauga sig í heita læknum í
Nauthólsvík 10. maí árið 1977.
Listinn byggist á upplýsingum frá Bókabúð Máls og menningar Laugavegi, Bókaverslun-
inni Iðu í Lækjargötu, Hagkaupum Eiðistorgi, Kringlunni, Skeifunni, Holtagörðum, Spöng-
inni, Smaáratorgi, Garðabæ, Njarðvík, Borgarnesi og Akureyri, Nettó Mjódd, Salavegi,
Grindavík, Akureyri og Höfn, Strax Hófgerði, Búarkóri, Flúðum, Akranesi og Búðardal,
Úrval Hafnarfirði, Selfossi, Njarðvík, Borgarnesi, Ísafirði, Blönduósi, Dalvík og Akureyri.
The Third Man, sjálfsævisaga
fyrrum viðskiptamálaráð-
herra Bretlands, Peters Man-
delson, selst eins og heitar
lummur á Bretlandseyjum
þrátt fyrir dræmar viðtökur
gagnrýnenda og stjórnmála-
manna. Þriðjudaginn sl. voru
birtar sölutölur fyrir vikuna
þar á undan og kom þar fram
að 14.960 eintök seldust á
þremur dögum og er slík sala
sjaldséð í Bretlandi þegar
kemur að æviminningum
stjórnmálamanna. Bókin var í
efsta sæti breska bóksölulist-
ans í flokki bóka sem ekki
teljast skáldsögur. Þá var
bókin sú mest selda á Bret-
landsvef Amazon í vikunni,
seldist í fleiri eintökum en
bækur Stiegs Larsson og
Stephenie Meyer. Mest selda
bókin í flokki æviminninga
stjórnmálamanna er Dreams
from My Father eftir Banda-
ríkjaforseta, Barack Obama,
en 700.000 eintök hafa selst
af henni á Bretlandi.
Mandelson vinsæll
Minningar Mandelsons vekja
greinilega forvitni lesenda.
Reuters