SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Síða 24
24 25. júlí 2010
U
mferðarmengun hefur fyrst og
fremst áhrif á öndunarfæri og
lungu en einnig á líkamann í
heild,“ segir Sigurður Þór Sig-
urðarson lungnalæknir sem hefur skoðað
heilsufarsleg áhrif mengunarinnar á fólk.
„Þegar svifryksmengun er mikil þá
finna þeir sem eru með astma, lungna-
teppu eða öndunarfærasjúkdóma greini-
lega fyrir versnun á sínum einkennum,“
segir hann. „Það kemur yfirleitt fram sem
mæði og hósti og getur í mörgum tilvikum
orðið mjög þungbært. Rannsóknir sem
hafa verið gerðar á þessu á Íslandi sýna
einnig að þegar svifryksmengunin er mikil
eykst notkun á öndunarfæralyfjum sem
bendir til þess að fólk finni virkilega mikið
fyrir þessum einkennum og leiti til læknis
í auknum mæli.“
Þá gefa erlendar rannsóknir til kynna að
innlagnatíðni á sjúkrahús hækki þegar
svifryksmyndun er mikil. „Það eru líka
tengsl á milli svifryksmengunar og auk-
innar tíðni dauðsfalla án þess að þar séu
stórar tölur á ferð. Það eru því áhrif sem
eru vart mælanleg í litlu samfélagi eins og
á Íslandi.“
En hvað með áhrif á heilsu þeirra sem
ekki eru veikir fyrir?
„Það eru til góðar bandarískar rann-
sóknir sem sýna fram á verri lungna-
þroska barna sem alast upp í svif-
ryksmengun,“ segir Sigurður. „Í nýlegri
rannsókn var t.d. sýnt fram á að eftir því
sem börn bjuggu nær hraðbrautum þar
sem var mikil svifryksmengun seinkaði
lungnaþroska þeirra og eftir því sem þau
bjuggu fjær hraðbrautum þeim mun betri
voru þau. Þannig að tengslin voru greini-
leg. Það er síðan ekki alveg vitað hvað
gerist ef börnin eru færð úr menguninni
og í hreint loft – hvort þetta gangi til baka
eða hvort skaðinn sé varanlegur. Áhrifin
eru hins vegar til staðar og því má ætla að
þegar börn alast upp í svifryksmengun frá
unga aldri verði lungnavirkni eða önd-
unargeta eitthvað skert til frambúðar.“
100% fyrirbyggjanlegt
Mengunin er ekki heldur holl fyrir full-
orðna. „Ef einstaklingur sem hefur engan
astma eða aðra undirliggjandi sjúkdóma
verður fyrir mikilli svifryksmengun, finn-
ur hann út af fyrir sig ekki neitt í bráð,“
segir Sigurður. „Til lengri tíma litið má
hins vegar leiða líkur að því að mengunin
geti valdið heilsufarsvandamálum. Mörg
þeirra efnasambanda sem finnast í svifryki
geta borist djúpt í lungun og valdið þar
verulegum usla. Þetta er að vissu leyti
sambærilegt við reykingar þótt þær séu
margfalt verri.“
Hann segir niturdíoxíðmengun lykt-
arlausa og lítt sjáanlega, a.m.k. í návígi.
„Það er engin leið fyrir fólk að vara sig á
þessu. Eina leiðin til að draga úr skaðleg-
um áhrifum er því að minnka svif-
ryksmengunina. Þótt sum mengunarefn-
anna, s.s. niturdíoxíðefnin og
brennisteinsefni, séu lofttegundir eru þau
líka áföst svifryksögnunum og berast
þannig niður í lungun.“ Annar skaðvaldur
í svifryksmenguninni er óson en sýnt hef-
ur verið fram á tengsl þess við versnun á
hjarta- og æðasjúkdómum. „Hugsanlega
eru einnig einhver tengsl við krabbamein
þótt þau séu ekki mjög sterk. Þetta er eitt-
hvað sem menn halda áfram að rannsaka
og á eftir að koma betur í ljós á komandi
árum.“
Sigurður segir þó mikilvægt að fólk átti
sig á samhengi hlutanna, þegar kemur að
svifryksmengun. „Það er til dæmis marg-
falt verra að reykja en að verða fyrir svif-
ryksmengun. Þetta er hins vegar áhyggju-
efni sem er mikilvægt að stemma stigu
við, ekki síst þar sem þetta er 100% fyr-
irbyggjanlegt – ef það væri engin bílaum-
ferð væri engin umferðarmengun. Auð-
vitað er það ekki raunhæft en þó er
ýmislegt hægt að gera. T.d. er hægt að
banna nagladekk í Reykjavík enda engin
ástæða til að hafa þau á höfuðborgarsvæð-
inu. Sömuleiðis ætti að reyna að draga úr
bílaumferð. Það er óskiljanlegt að það
skuli ekki hafa verið gert og að almenn-
ingssamgöngur séu ekki betri. Ef hægt er
að draga úr umferðinni minnkar meng-
unin samstundis.“
Aðspurður segist Sigurður ekki í vafa
um að kostnaður samfélagsins af þeim
lyfjum sem notuð eru vegna mengunar-
innar sé mun meiri en kostar að grípa til
ráðstafana til að draga úr menguninni.
„En það þyrfti heilsuhagfræðing til að fara
ofan í saumana á því.“
Ástandið klárlega heilsuspillandi
Astma- og ofnæmissjúklingar grípa þó til
fleiri úrræða en lyfja til að þrauka af í
menguninni. „Ég hef ráðlagt fólki að flytja
annað þótt ég geri mér grein fyrir að það
er ekki alltaf hlaupið að því. Eins er
astma– og lungnasjúklingum ráðlagt að
halda sig innandyra á þeim dögum sem
svifryksmengun er mjög mikil. Og ég
myndi ekki ráðleggja neinum að fara
hlaupatúr meðfram Miklubrautinni eða
Kringlumýrarbrautinni, burtséð frá því
hvort það er erfiður dagur eða hvort við-
komandi sé frískur. Ástandið þar er klár-
lega heilsuspillandi.“
Hann segir erfitt að segja til um hversu
margir þjáist af þeim sjúkdómum sem
umferðarmengun hefur mest áhrif á.
„Lungnateppa er ein af fimm algengustu
dánarorsökum í heiminum og fer vaxandi
auk þess sem hún er mjög vangreind.
Aukningin stafar fyrst og fremst af reyk-
ingum en þessi sjúkdómur kemur ekki
fram fyrr en eftir mörg ár. Núna erum við
að horfa á afleiðingar reykinga frá 1970 til
1980 hvað varðar lungnateppu og lungna-
krabbamein, en svifrykið hefur örugglega
einhver áhrif líka.“
Þá glíma 5-10% fólks við astma að hans
sögn. „Þeir verða margir fyrir áhrifum af
slæmum loftgæðum. Þau geta líka haft
áhrif á hjartasjúklinga svo gera má ráð
fyrir að talsverður fjöldi fólks hafi einhver
óþægindi af þessu. Auðvitað fer það eftir
hvað fólk er slæmt hversu mikil áhrifin
eru. Þeir sem eru með vægan astma eða
væga lungnateppu geta hugsanlega verið
úti þegar loftgæði eru slæm án þess að
finna mjög mikið fyrir því. En þeim sem
eru með svæsinn sjúkdóm líður örugglega
mjög illa sömu daga.“
Talsverður fjöldi með óþægindi
Sigurður Þór segir lungnaþroska barna sem alast upp við mengun verri en hjá öðrum.
Morgunblaðið/Jakob
L
ög heimila ekki að heilbrigðisyfirvöld í borginni
grípi til margra þeirra aðgerða, sem listaðar eru
í viðbragðsáætlun heilbrigðisnefndar Reykja-
víkur um loftgæði. Nýtt frumvarp til umferð-
arlaga sem liggur fyrir Alþingi gæti þó breytt þeirri
stöðu.
Í áætluninni er listi yfir „mögulegar skamm-
tímaaðgerðir til að bæta inni- og útiloft“. Þrátt fyrir að
loftgæði í borginni hafi í ár mælst undir heilsuverndar-
mörkum mun oftar en heimilt er hafa mörg þessara úr-
ræða aldrei verið reynd. Má þar nefna að loka götum og
minnka hámarkshraða tímabundið og fleiri aðgerðir.
Að sögn Ellýjar Katrínar Guðmundsdóttur, sviðsstjóra
Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur, er við-
bragðsáætlunin sú fyrsta sinnar tegundar á landinu. „Í
raun er um að ræða ákveðið frumkvöðlastarf hjá Reykja-
víkurborg. Okkar ákvörðun var að lista upp hvað hægt
var að gera, bæði til að halda umræðunni vakandi og til
að setja þrýsting á okkur sjálf. Margar þessara aðgerða
eru hins vegar háðar breytingum á lögum – það skortir
sumsé lagaheimild til að beita þeim en við höfum verið
að vinna að því að fá slíkar heimildir í lög.“
Aðrar aðgerðir krefjast ekki lagabreytinga en eru þó
háðar fleiru en einhliða ákvörðun borgarinnar, s.s. að
gefa frítt í strætó þegar loftgæði eru lítil. „Þegar ég bjó úti
í Washington var stundum svokallaður „Red Dot Day“
en þá var einfaldlega rauð húfa yfir gjaldbauknum í
strætó þá daga sem loftgæði voru lítil. Þetta er ein af
þeim aðgerðum sem hægt væri að grípa til en hún er
kostnaðarsöm og þarf því að skoðast vandlega með
Strætó. Hugsanlega mætti prófa aðgerð sem þessa tíma-
bundið og sjá hvaða árangri hún skilar.“
Hún segir þó ýmislegt hafa verið gert. „Við höfum
t.a.m. markvisst lækkað leyfilegan umferðarhraða í
borginni og þá sérstaklega í íbúðahverfum þótt við vild-
um vissulega hafa heimild til að geta lækkað umferð-
arhraða tímabundið þegar þörf er á þungum umferð-
argötum. Aðrar aðgerðir eins og götuþvottur hafa skilað
góðum árangri. Við höfum gert þær kröfur til verktaka
að þvo dekk vinnutækja þegar þau fara út af fram-
kvæmdasvæðum og þegar verið er að rífa niður bygg-
ingar eru gerðar kröfur um rykbindingu. Þar fyrir utan
vörum við alltaf við því ef von er á miklu svifryki og biðj-
um þá fólk um að skilja bílinn eftir heima, taka frekar
strætó eða labba eða hjóla. Við höfum ekki önnur úrræði
til að stöðva eða draga úr umferð vegna loftgæða. Þetta er
viðvarandi verkefni hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Ef mengun stefnir umfram heilsuverndarmörk er þriggja
manna viðbragðsteymi kallað saman sem ákveður til
hvaða aðgerða skuli grípa.“
Ellý segist binda vonir við nýtt frumvarp til umferðar-
laga sem liggur fyrir Alþingi. „Við höfum skilað inn
þremur umsögnum um þetta frumvarp þar sem við höf-
um lagt áherslu á að koma inn skýrum ákvæðum sem
styðja við vistvæna samgöngumáta og möguleika á að-
gerðum. Okkur finnst hafa verið komið töluvert til móts
við okkar athugasemdir í frumvarpinu og þannig er í því
gefin heimild til gjaldskyldu vegna nagladekkja. Það
skiptir miklu máli varðandi svifrykið. Sömuleiðis er
komin inn heimild til að grípa til ákveðinna aðgerða ef
loftgæði stefna að því að vera undir heilsuverndar-
mörkum, þ.e. heimild til að takmarka hámarkshraða og
takmarka umferð. Ég held að það sé aukinn skilningur á
þessu enda hefur þetta verið mikið í umræðunni.“
Reglugerðin í endurskoðun
Á meðan þær breytingar hafa ekki gengið í gegn segir
Ellý hendur heilbrigðisyfirvalda borgarinnar bundnar að
miklu leyti þegar kemur að því að tryggja að mengun fari
ekki oftar yfir heilsuverndarmörk en reglugerð heimilar,
sem er sjö sinnum á ári. „Þessi reglugerð er í deiglunni
því sveitarfélög í Evrópu hafa kvartað mikið undan þess-
um skilyrðum og telja þau ekki raunhæf. Í evrópskum
borgum eins og í Reykjavík berst utanaðkomandi svif-
ryksmengun til borganna sem þær geta ekki haft áhrif á.
Við þekkjum hér í Reykjavík að mengun getur m.a. bor-
ist hingað frá meginlandi Evrópu og svo auðvitað sandur
og undanfarið einnig aska frá hálendinu. Okkar loftgæði
eru mjög mikil borið saman við flestar evrópskar borgir,
sem geta almennt ekki haldið í við þessa reglugerð. Ég
veit að hún hefur því verið til endurskoðunar.“
Ellý bætir því við að Reykjavíkurborg hafi vaktað loft-
gæði í borginni í tæpan áratug. „Við höfum lagt okkur
fram um að upplýsa og fræða og ég tel að þessi vinna hafi
skilað sér í aukinni þekkingu og meðvitund borgarbúa
um loftgæði og áhrif þeirra á heilsu og mannlíf í borginni.
Það er mjög mikilvægur áfangi því þrátt fyrir að borgin
geti gripið til ákveðinna aðgerða til þess að draga úr
mengun þá eru það fyrst og fremst íbúarnir sem hafa
málið í hendi sér. Þeir ákveða hvaða ferðamáta þeir velja
í borginni og ef þeir velja bílinn skiptir máli hvernig bíl
þeir velja og hvernig þeir keyra. Það er mjög jákvætt að
íbúasamtök eru farin að setja þessi mál á oddinn og við
treystum á samstarf við þau í baráttunni við svifryk.“
Breytingar í
farvatninu
Ellý Katrín segir loftgæði fyrst og fremst í höndum íbúa.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti