SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Page 27
25. júlí 2010 27
Þ
að er eiginlega til að æra óstöðugan að
ætla að finna örfáar myndir frá ferli og
lífi Ómars Ragnarssonar, sem leyfir les-
endum SunnudagsMoggans að gægjast í
myndaalbúmið sitt þessa helgina.
Ómar er löngu þjóðkunnur fyrir fjölmörg hlut-
verk sín, sem skemmtikraftur, fréttamaður,
ökuþór, flugmaður, texta- og lagahöfundur,
náttúruverndarsinni, dagskrárgerðarmaður og
kvikmyndagerðamaður og eru þá ótalin hlutverk
hans sem eiginmaður, faðir, sonur, bróðir og afi.
Ómar Þorfinnur er fæddur 16. september árið
1940 í Reykjavík, sonur hjónanna Jónínu Rann-
veigar Þorfinnsdóttur kennara og Ragnars Eð-
varðssonar bakara en Ómar er elstur sex systk-
ina.
Kona Ómars til tæprar hálfrar aldar er Helga
Jóhannsdóttir og eiga þau sjö börn. Barnabörnin
eru 21 talsins.
Ásamt foreldrunum Ragnari og Jónínu, bræðrunum Eðvarð og Jóni Rúnari
og elstu systurinni Ólöfu. Síðar komu systurnar Guðlaug og Sigurlaug.
Pínulítill með hermannahúfu, lík-
ast til við stríðslok árið 1944. Sennilega jólin 1972. Sex af sjö börnum komin til sögunnar.
Sextugsafmælið á Broadway: fremst f.v. eru Ómar, Örn, Þorfinnur og
Ragnar. Fyrir aftan f.v. Iðunn, Alma, Lára og Jónína og öftust er Helga.
Við undirbúning kosningavöku sjónvarpsins árið 1982.
Fréttamaður á vettvangi við réttarhöldin vegna Geirfinnsmálsins.
Með Þórhalli Sigurðssyni á Hótel Sögu í skemmtidagskrá
sem kallaðist „Ómladdi, ómladda“ árið 1990.
Í „skugganum“ af Frúnni í öskufalli á túni við Hvolsvöll í vor eftir að hafa fært flugvélina um set.
Morgunblaðið/RAX
Með Helgu í Grímsvötnum að taka heimildarmynd um svæð-
ið en kvikmyndagerðin hefur verið í forgangi undanfarin ár.
Ótal andlit Ómars
Myndaalbúmið
Ómar Ragnarsson hefur brugðið sér í hin ólíkustu hlutverk
í gegnum tíðina og er hvergi af baki dottinn.
Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ben@mbl.is
Ómar hefur gert garðinn frægan sem uppi-
standari og farið í fjölmargar skemmtiferðir um
allt land, bæði með einum undirleikara og í
stærri hópi, s.s. með Sumargleðinni á níunda
áratugnum. Hann skapaði ímynd íslensku jóla-
sveinanna hjá heilli kynslóð barna og tróð oft
upp í gervi einhvers þeirra bræðra auk þess að
syngja inn á hljómplötur í þeirra nafni.
Hann gerði sjónvarpsþættina Stiklur þar sem
hann kynnti bæði sérstakt fólk og náttúru fyrir
landanum. Þá hefur hann verið iðinn við að ná
lifandi myndum af eldgosum og öðrum náttúru-
hamförum í gegn um áranna rás og var daglegur
gestur á skjám landsmanna sem fréttamaður og
íþróttafréttamaður um árabil.
Undanfarin ár hefur hann verið hvað þekkt-
astur fyrir baráttu sína fyrir náttúru Íslands og
verið öflugur í heimildamyndagerð tengdri virkj-
anaáformum og hálendi Íslands.
„Ég lánaði Spaugstofumönnum litla menntaskólabílinn
minn þegar þeir voru að gera grín að forsetabílnum.“
Í pabbahlutverkinu með Ölmu litlu
í ferð um landið á Frúnni.
Nýstúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík vorið 1960.