SunnudagsMogginn - 25.07.2010, Síða 42
42 25. júlí 2010
F
ram til þessa hefur nafn Toms
Cruise verið gulls ígildi í kvik-
myndaheiminum og nefnt í
sömu andrá og Leonardo Di
Caprio, Tom Hanks, Johnny Depp, Brad
Pitt og önnur slík stórtromp. Skyndilega
er komin upp ný og óvænt staða og glæsi-
legur ferill farinn að hiksta.
Enginn efast um persónutöfra Cruise
og ótvíræða hæfileika, sem hann hefur
gnótt af þegar á þarf að halda. Nægir að
nefna Color of Money, Magnolia, Mino-
rity Report, The Last Samurai, Rain Man,
ef menn velkjast í vafa um hæfileika
einnar skærustu stjörnu samtímans.
Cruise er vissulega kominn af tánings-
árunum, orðinn 48 ára, en slíkur árafjöldi
skaðar engan í Hollywood, þ.e.a.s. ef þú
ert karlpeningur og ert forsjáll í hlut-
verkavali. Cruise hefur verið vandfýsinn,
heppinn og eftirsóttur og tengist mörg-
um vinsælustu myndum síðustu áratuga.
Eða allt frá því hann hitti í mark í Risky
Business, árið 1983, sem var aðeins fjórða
myndin hans og ferillinn einungis tveggja
ára.
Veðrabreytingar eru snöggar á stjörnu-
himninum. Á meðal mest sóttu mynda
Cruise eru þrjár spennumyndir, kenndar
við Mission : Impossible, og nú er Para-
mount að undirbúa þá fjórðu í þessum
vinsæla bálki. Til skamms tíma kom ekk-
ert annað til greina en að Cruise héldi að-
alhlutverki spæjarans Ethans Hunt og
Paramount-kvikmyndaverið hefur fullan
hug á að svo verði áfram. En – þá kom
harla óvænt babb í bátinn. Paramount
fylgist þessa dagana grannt með gengi
Knight and Day á heimsvísu, en þessi
nýjasta mynd stjörnunnar kom illilega á
óvart og brást í Vesturheimi, þar sem að-
sóknin var langt undir væntingum.
Heimsdreifingu var hins vegar frestað um
nokkrar vikur sakir Heimsmeistara-
keppninnar í fótbolta. Nú er henni ný-
lokið (ef það hefur farið framhjá ein-
hverjum) og þá er að sjá hvernig myndin
spjarar sig á markaðnum utan Bandaríkj-
anna. Paramount telur að þar verði hún
að bæta um 200 milljónum dala í sarpinn
til að Cruise missi ekki af gullnámunni.
Þeir hjá Fox, sem framleiðir Knight and
Day, eru fullir bjartsýni að hún geri gott
betur utan landsteinanna því hún hefur
flest það til að bera að verða ein af topp-
myndum sumarsins; Spennandi, róm-
antísk, fyndin og bæði vel gerð og leikin.
Undarlegt hátterni
Í millitíðinni leitar Cruise að nýjum hlut-
verkum og bendir flest til þess að hann
fari með aðalhlutverk í Paper Wings, sem
er framleidd af Will Smith. Þá mun hann
leika á næsta ári í kvikmyndagerð The
Hardy Men, ásamt Ben Stiller, undir
stjórn smellasmiðsins Shawns Levy.
Eins og er bendir flest til að Cruise end-
urtaki hlutverk sitt í M:I. IV., áður en
hann fer á mála hjá Smith, en getuleysi
Knight and Day á heimavelli hefur orðið
til þess að Hollywood veltir nú vöngum
yfir ástæðunni, sem vonlegt er. Hefur
Cruise með undarlegu hátterni misst
traust og langvarandi samband sitt við
ameríska bíógesti? Þá hafa sumir skellt
skuldinni að hluta til á mótleikara Cruise,
leikkonuna Cameron Diaz, hún ekki talin
nógu „heit“ lengur. Er tímasetning
myndarinnar röng? Er markaðssetning-
unni um að kenna að aðsóknartölurnar
eru jafn slakar og raun ber vitni? Þegar
þessar línur eru skrifaðar, hefur Knight
and Day tekið inn litlar 67 milljónir dala
vestan hafs á 24 dögum, til samanburðar
hefur smellurinn The Twilight Saga: Ec-
lipse, halað inn 255 milljónir á síðustu 17
dögum, svipaðar tölur hefðu talist ásætt-
anlegar fyrir myndina hans Cruise.
Fyrrum stjórnarmaður hjá Paramount
bendir á að M:I-4 þurfi ekki að skaðast þó
skipt verði um aðalleikara, a.m.k. heima
fyrir. „Mission : Impossible er vöru-
merki“, segir hann, „sem hafði ekkert af
Tom Cruise að segja í upphafi.“
Það hefur verið bent á James Bond-
bálkinn sem dæmi um að leikaraskipti í
aðalhlutverkum þurfi engu að breyta að-
sóknarlega og sömu sögu er að segja um
hlutverk Jacks Ryan í kvikmyndagerðum
bóka Toms Clancy. Þá má geta þess að
Sony var hvergi bangið þegar þegar það
lét Tobey Maguire róa fyrir lítt þekktan
leikara fyrir skömmu, og Leðurblöku-
maðurinn hefur gengið leikara á milli.
Treysta á þátttöku Cruise
Paramount vonar að handrit M:I-4 verði
tilbúið næstu daga svo framleiðslan geti
farið í gang fyrir árslok og myndin verði
jólamynd fyrirtækisins að ári. Það hyggst
komast af með mun lægri kostnað en fór í
fyrri myndirnar, er að tala um litlar 140
milljónir dala (í stað 200+). Það bendir til
þess að kvikmyndaverið treysti fyllilega á
þátttöku Cruise – og að hann verði sann-
gjarn þegar kemur að launamálum, alla
vega þarf hann ekki að láta sig dreyma
um 20 milljón dali í launaumslaginu, líkt
og hann fékk fyrir M:I-3. Báðir aðilar vita
sem er að myndin er honum mjög mikil-
væg eftir dræmt en viðunandi gengi
Valkyrie og núna síðast hrakfarir Knight
and Day.
„Allir munu leggjast á eitt til að hlut-
irnir gangi“, lét einn af stjórnendum
framleiðslufyrirtækis Cruise, „Cruise/
Wagner Production“, hafa eftir sér.
Minnugur sprengingarinnar þegar Sum-
mer Redstone, fyrrum eigandi Viacom,
sem á m.a. Paramount Pictures, rak
Cruise eftir M:I-3. „Við viljum forðast
síðustu uppákomu.“
Kynningarfulltrúar Cruise vinna nú að
því hörðum höndum að vernda orðstír
skjólstæðings síns. Sambandið hefur ver-
ið stirt á milli þeirra og Fox, sem skellti
skuldinni á Tony Sela, markaðsstjóra
kvikmyndaversins. Það dugði ekki til að
lægja öldurnar Cruise-megin, þar sem
aðstoðarstjórnarformanni Fox er kennt
um ófarirnar á innanlandsmarkaðnum.
Teymi Cruise bendir á að Valkyrie hafi
gengið betur, erfið sölumynd í sam-
anburð við kók og popp-myndina Knight
and Day. Markaðsrannsóknir og -setning
hafi verið hroðvirknisleg, m.a. sú
ákvörðun að breyta ekki auglýsinga-
plakatinu sem sýndi ekki andlit stjarn-
anna, Cruise og Diaz. Þá gagnrýnir
Cruise-teymið frumsýningardaginn, það
telur sig fullvisst um að rétti tíminn hafi
verið lok júlí, þegar farið var að snjóa yfir
ungstjörnurnar, varúlfana og vampír-
urnar í Eclipse-framhaldsmyndinni í The
Twilight Saga-röðinni. Opnað var á
Knight and Day í byrjun júlí og varð
myndin að láta sér nægja þriðja sætið, á
eftir Toy Story 3., og Grown Up.
Stjórnendur Fox láta sér hvergi bregða,
viðurkenna að vísu að ýmislegt hefði
mátt betur fara í markaðssetningunni,
annarri gagnrýni vísa þeir til föðurhús-
anna.
Cruise í essinu sínu í Mission Impossible.
Reuters
Er Tom Cruise að
hrapa af toppnum?
Slakt gengi nýjustu myndar stórstjörnunnar Toms Cruise
setur langan og farsælan feril í uppnám.
Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is
Tom Cruise ásamt meðleikkonu sinni í Knight & Day, Cameron Diaz.
Reuters
Leikstjóri Oliver Stone. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Willem Dafoe, Tom Berenger. 144 mín.
Bandaríkin 1989.
Stórkostleg, áhrifamikil og vel leikin mynd um ævi Rons Kovic sem fór fullur föð-
urlandsástar og hetjudýrkunar í Víetnamstríðið en kom þaðan bundinn við hjólastól. Brátt
tóku hugmyndir hans um tilgang hernaðarins að breytast, honum fannst hann hafa verið
blekktur til þess að styðja rangan málstað og fór að berjast með mótmælendum stríðsrekst-
ursins en í bakgrunni eru þjóðfélagsbreytingar hippatímans. Eftirminnileg og kraftmikil
ádeila og uppgjör við Víetnamtímabilið og kannski ekki síst virðingarvottur við þá sem
sneru til baka. Stone er miskunnarlaus og óvæginn sem fyrr og Cruise hafði ekki leikið bet-
ur í nokkurri mynd þegar hér var komið sögu. Sannar sig sem stórleikari með dýpt og
innsæi.
saebjorn@heimsnet.is
Kvikmyndaklassík – Born on the Fourth of July *****
Til hamingju með daginn
Tom Cruise í hlutverki Rons Kovic.
Kvikmyndir