Morgunblaðið - 14.01.2010, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 4. J A N Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
10. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
MARGFALDAÐ
BÚSVÆÐI Í SELÁ
«AFHÖNNUN
Hönnunarstuldur
í heimahúsum
6
Útilokað er talið að bankinn gangi að til-
boði þeirra feðga óbreyttu, þar sem margt
mun þykja óljóst um það hvernig þátttaka
erlendra fjárfesta í kaupunum á í raun að
verða og í hve miklum mæli. Sömu heimildir
herma að bankinn telji tilboðið ekki slæmt,
en það þurfi einfaldlega margt að skýra og
setja ákveðnar tryggingar fyrir greiðslugetu.
Óbærileg skuldastaða
Skuldir 1998 ehf. í dag eru a.m.k. 50 millj-
arðar króna, að því gefnu að engar skuldir
félagsins hafi verið afskrifaðar í gamla Kaup-
þingi, og skuldir Haga, samkvæmt nýjustu
upplýsingum sem fyrir liggja, en þær eru úr
árshlutareikningi félagsins frá því 31. ágúst
2008, eru um 22 milljarðar króna. Samtals
eru því skuldir félaganna yfir 70 milljarðar
króna og hefur þá ekkert tillit verið tekið til
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
LJÓST er að tugi milljarða króna þarf til í
nýju fjármagni inn í 1998 ehf., eignarhalds-
félagið sem á Haga, til þess að rekstur Haga
standi undir sér, þar sem rekstur Haga þarf
einnig að standa undir lánum sem hvíla á
1998 ehf., félaginu sem á Haga, sem eru nú
nánast að fullu í eigu Arion banka.
Það er nú á borði Arion banka að ákveða
hvernig framtíðareignarhaldi á 1998 ehf. og
Högum verður háttað, en samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins verður fjallað um til-
boð þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
Jóhannesar Jónssonar á fundi í Arion banka
næsta mánudag. Samkvæmt sömu heimildum
munu þeir Jón Ásgeir og Finnur Árnason
mæta á þann fund.
þess, hversu mikið skuldir Haga hafa
hækkað á undanförnu einu og hálfu ári, en
ljóst er að þær hafa hækkað umtalsvert,
rétt eins og skuldir annarra fyrirtækja í
landinu.
Öll lán hækkuðu við gengisfall
Við gengisfall krónunnar í október 2008
varð mikil hækkun allra áhvílandi lána í at-
vinnurekstri og þar eru 1998 og Hagar að
sjálfsögðu ekki undanskilin.
Á sama tíma rýrnuðu flestar eignir mjög
í verði, bæði fasteignir og aðrar eignir, og
líklega rýrnuðu óefnislegar eignir (við-
skiptavild) hvað mest, en samkvæmt árs-
reikningum Haga hafa óefnislegar eignir
jafnan verið stór hluti af eignum félagsins.
Arion banki segir líklega nei
Bónus-feðgar þurfa að fá tugmilljarða í nýju hlutafé til þess að Hagar standi undir skuldunum
Enn ekki verið ákveðið hvort eða hversu mikið Arion banki hyggst afskrifa af skuldum félaganna
Hverjir munu eignast Haga? | Viðskipti
Nokkur fjöldi stórra kröfuhafa Kaupþings
er sagður vilja fresta sölunni á Högum
og jafnvel setja fyrirtækið í opið sölu-
ferli, enda um að ræða stærstu eign
bankans. Einhverjir kröfuhafa hafa komið
að máli við Brynjar Níelsson, lögmann
Þjóðarhags, sem lýst hefur yfir áhuga á
að kaupa Haga. Kröfuhafarnir sem um
ræðir telja það geta veikt stöðu bankans
ef Hagar yrðu seldir fyrri eigendum. Þeir
telja að óánægja gæti orðið meðal við-
skiptavina Arion ef eignir yrðu seldar að-
ilum sem áður höfðu misst þær út úr
höndunum.
Vilja fresta sölu Haga
Eftir Boga Þór Arason
og Sigrúnu Rósu Björnsdóttur
ÓTTAST er að tugir þúsunda hafi
látist í gríðaröflugum jarðskjálfta
sem reið yfir Haítí í fyrrakvöld, að
sögn Renés Prevals, forseta lands-
ins. Tölur um mannfall eru mjög á
reiki, en AFP-fréttastofan hefur
eftir þarlendum þingmanni að hann
óttist að fjöldi látinna kunni að ná
hálfri milljón. Höfuðborgin Port-au-
Prince varð mjög illa úti og er nær
rústir einar. Um fjórar milljónir
manna búa í borginni og úthverfum
hennar. Eignatjón er talið hlaupa á
hundruðum milljarða króna.
Um 40 manna hópur íslensku al-
þjóðabjörgunarsveitarinnar fór á
vegum utanríkisráðuneytisins til
Haítí í gær og var lentur klukkan
rúmlega níu í gærkvöldi eða um
klukkan 16 að staðartíma, einna
fyrstur erlendra hjálparsveita.
Flugvélin átti síðan að fljúga til
baka með erlenda ríkisborgara um
miðnætti að íslenskum tíma. Rústa-
björgunarsveitinni var vel fagnað
en aðstæður til björgunar eru gríð-
arlega erfiðar.
Vitað er að einn Íslendingur,
Halldór Elías Guðmundsson, var í
höfuðborginni þegar skjálftinn reið
yfir, en hann er óhultur.
Reuters
Lífgjöf Slasað barn fær læknisaðstoð eftir jarðskjálftann á Haítí, sem óttast er að hafi kostað fjölda manns lífið.
Harmleikur á Haítí
Óttast er um afdrif hundraða þúsunda á Haítí eftir öflugan
jarðskjálfta Íslensk björgunarsveit komin á vettvang Í HNOTSKURN»Jarðskjálftinn mældist 7stig á Richters-kvarða.
»Höfuðstöðvar Sameinuðuþjóðanna í Port-au-Prince
voru meðal þeirra bygginga
sem eyðilögðust og er ekki vit-
að um afdrif 150 starfsmanna
SÞ.
»Um 238.000 manns búa ásvæðinu þar sem áhrifa
skjálftans gætti mest.
Íslenska | 2, 18-19, 22
„ÞAÐ verða margir búnir með
kvótann í byrjun mars og ég er
smeykur um að þá komi högg og
það dragi úr atvinnu í kringum
fiskinn,“ segir Páll Ingólfsson,
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðar
Íslands. Hann á þá einkum við út-
gerðir á Snæfellsnesi, en vel hefur
aflast á línu frá því í haust. Frið-
þjófur Sævarsson, skipstjóri á Sax-
hamri SH, segist reikna með að bát-
urinn verði bundinn í allt að 20
vikur í ár. »8
Langt komnir með kvótann
ÍSLENSK
stjórnvöld þurfa
að átta sig betur
á breskum
stjórnvöldum og
fjölmiðlum, segir
Kevin Doran,
stjórnandi hjá
breska almanna-
tengslafyrirtæk-
inu Bell Pott-
inger Public Affairs. Hann hvetur
íslenska ráðamenn til að eiga í
meiri óformlegum samskiptum við
bresk stjórnvöld og telur mikilvægt
að bæði íslensk stjórnvöld og al-
menningur veiti breskum fjöl-
miðlum viðtöl.
David Prosser, blaðamaður á In-
dependent, segir hörkuna í mál-
flutningi bankamálaráðherra Breta
í garð Íslendinga minna á fram-
komu gagnvart ríkjum sem eru upp
á kant við alþjóðasamfélagið. Hann
segist meta stöðuna svo að stjórn
Gordons Browns sé reiðubúin til að
endurskoða Icesave-samningana,
enda vilji hún forðast að draga mál-
ið fram yfir þjóðaratkvæðagreiðsl-
una á Íslandi og þar með fram yfir
kosningabaráttuna í Bretlandi. »14
Íslendingar átti
sig betur á Bretum
Kevin Doran