Morgunblaðið - 14.01.2010, Page 2

Morgunblaðið - 14.01.2010, Page 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Minna kólesteról www.ms.is Benecol er náttúrulegur mjólkurdrykkur sem lækkar kólesteról í blóði. Mikilvægt er að halda kólesterólgildum innan eðlilegra marka því of hátt kólesteról í blóði er einn helsti áhættuþáttur kransæðasjúkdóma. Ein flaska á dag dugar til að ná hámarksvirkni. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 9 – 0 0 5 1 SKIPULAGSRÁÐ Reykjavíkur hefur samþykkt að unnið verði að nýju skipulagi að Ingólfstorgi þar sem fallið verður að hluta frá áður auglýstum tillögum sem hafa mætt talsverðri andstöðu. Samkvæmt nýju tillögunum mun skemmtistaðurinn Nasa standa áfram í óbreyttri mynd, en fyrri breyt- ingatillaga gerði ráð fyrir að staðurinn yrði rifinn og endurbyggður í kjallara nýbyggingar sem átti að rísa þar sem Nasa stendur nú. Einnig hefur verið hætt við að færa húsin við Vallarstræti 4 og Austurstræti 7 framar á torgið. Verða húsin tvö áfram á sínum stað og vernduð í þeirri mynd sem þau eru. Hins vegar verður byggð fimm hæða tengibygging á milli húsanna tveggja sem hýsa mun hótel, auk þess sem byggt verður ofan á Nasa. Að sögn Júlíusar Víf- ils Ingvarssonar, formanns skipulagsráðs, verða ný- byggingarnar hannaðar í stíl við eldri byggð á svæð- inu. Hann segir að með nýrri breytingartillögu sé verið að bregðast við þeirri gagnrýni sem fram kom á fyrri skipulagstillögu. „Það er mikilvægt að vinna tillögur á viðkvæmum svæðum sem þessu í samráði við alla þá sem láta sig málið varða.“ hlynurorri@mbl.is Hætt við óvinsælar fram- kvæmdir við Ingólfstorg Morgunblaðið/Heiddi Verða á sínum stað Samkvæmt fyrri tillögu áttu þessi hús, hið gula og hið rauða, að færast framar á torgið. Rífa ekki Nasa og færa ekki gula og rauða húsið fram Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur sigrunrosa@mbl.is ÍSLENSKA alþjóðabjörgunarsveitin lenti á flugvellinum í Port-au-Prince á tíunda tímanum í gærkvöldi eftir að hafa haldið héðan um ellefu í gær- morgun á vegum utanríkisráðuneyt- isins. „Fátæka Ísland er fyrst til Haítí,“ segir á vef norska ríkis- útvarpsins, NRK, um för íslensku rústabjörgunarsveitarinnar. Að sögn Ólafar Snæhólm hjá Lands- björgu blasti mikil eyðilegging við sveitinni þegar flogið var yfir borgina. Þar var rafmagnslaust svo afferma varð vélina með handafli. Síma- samband liggur nær niðri og erfitt er að ná sambandi við sveitina. Óvíst um lendingu á tímabili Urður Gunnarsdóttir hjá utanríkis- ráðuneytinu sagði að fljúga ætti vélinni til baka á miðnætti í gær með erlenda ríkisborgara. Vegna sambandsleysis væri ekki komið á hreint hve margir færu með eða frá hvaða löndum. Átti rústabjörgunarsveitin, að sögn Ólafar, að hjálpa til við að ferma vélina á ný áð- ur en hún færi. Misvísandi upplýsingar bárust frá yfirvöldum um lendingarhæfni flug- vallarins og var því lengi vel óvíst um lendingu í Port-au-Prince. Kristinn Ólafsson í rústabjörgunarsveitinni sagði sveitina leggja mikla áherslu á að geta athafnað sig sem mest strax í björtu og því væri mikilvægt að ná lendingunni. Búið var að finna túlk og verið að athuga með flutning og stað- setningu fyrir sveitina. Vitað er að einn Íslendingur, Hall- dór Elías Guðmundsson, var á Haítí þegar jarðskjálftinn reið yfir. Hann virðist þó vera óhultur. Halldór skrif- aði á Twitter-síðu sína skömmu eftir skjálftann að hann sæti fyrir utan hót- elið sem væri rústir einar. Ekki náðist í Halldór í gær. Vonar að börnin hafi sloppið Pétur Guðjónsson þekkir vel til á Haítí eftir að hafa heimsótt eyjuna mánaðarlega í mörg ár. Húman- istahreyfingin rekur þar um 200 skóla sem um 60.000 börn sækja. Tíu þeirra eru í hæðum Port-au-Prince. Vonar hann að börnin hafi sloppið þar sem jarðskjálftinn varð utan skólatíma. Pétur telur ganga kraftaverki næst að hafa náð í tvígang sambandi við vin sinn á Haítí. Í gegnum hann fékkst svo túlkur fyrir rústabjörgunarsveitina. Pétur segir mikla mildi að vinur hans og fjölskylda skyldu sleppa lífs. Allt í kringum þau hafi hús hrunið og margir í kringum þau séu látnir. Húsin í Port- au-Prince eru að mestu hlaðin úr múr- steini og þola því illa jarðskjálfta. SOS Barnaþorpum hefur ekki tekist að afla upplýsinga um afdrif barna í þorpunum tveimur sem margir Íslend- ingar styðja. Rauði kross Íslands hefur hafið söfnun vegna jarðskjálftans á Haítí. Sími söfnunarinnar er 904 1500 . Íslenska rústabjörgunar- sveitin einna fyrst til Haítí Mjög erfiðar aðstæður til björgunarstarfa þar sem fjarskipti eru í lamasessi Gríðarlegt björgunarstarf er fyrir höndum á Haítí þar sem jarð- skjálfti upp á rúm 7 stig á Richt- ers-kvarða lagði höfuðborgina Port-au-Prince nær því í rúst og óttast er um tugi þúsunda. Víkurfréttir / Hilmar Bragi Hamfarir Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin undirbýr brottför. Á vettvangi Rústabjörgunarsveitin lenti rúmlega níu í gærkvöldi að íslenskum tíma. Lögreglan handtók í gær tvo menn grunaða um að veita manni á þrítugsaldri hnífsstungu í heimahúsi við Þórðarsveig í Grafarholti. Maðurinn var fluttur á slysa- deild eftir árásina í gær, en var þó ekki lífshættulega slasaður að sögn lögreglu. Málið er í rannsókn og getur lögreglan ekki veitt frekari upplýsingar um það að svo stöddu. Á slysadeild eftir líkamsárás SALLY Magn- usson, frétta- maður BBC í Skotlandi, var ávítuð af yfir- stjórn stofn- unarinnar fyrir ummæli sín í lesendabréfi um Icesave-deiluna. Sally gagn- rýndi bresk yfirvöld fyrir að leggja miklar klyfjar á Íslendinga með því að krefjast hárra vaxta og spurði hvort ekki væri nær að krefjast 2%–3% vaxta, í stað 5,5%. Íslendinga munaði um það en Bretar tækju varla eftir mun- inum. Ávítuð fyrir að styðja Íslendinga Sally Magnusson ÁKVEÐIÐ hefur verið að draga til baka boðaðar breytingar á systkina- og námsmannaafslætti hjá leikskólum Seltjarnarness. „Ástæðan er sú að ég átti fund með formönnum foreldrafélag- anna á mánudaginn, þar sem þeir komu með mjög málefna- legar athugasemdir og ábend- ingar varðandi þessar breyt- ingar,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri. „Okk- ur [í bæjarstjórn] fannst því eðli- legt, miðað við þær forsendur sem lagðar voru fram, að draga þetta til baka.“ Hins vegar verður staðið við 7,5% hækkun á leikskólagjöldum, og umtalsverða hækkun á verði máltíða til að standa straum af hækkandi afurðaverði. „Þessar gjaldskrár höfðu ekki hækkað frá 2002,“ segir Ásgerður. Hætta við skerðingu „Það er mjög erfitt að bíða,“ segir Elda Þórisson Faurelien sem er fædd á Haítí en fluttist hingað fyr- ir rúmum þremur árum og rekur nú Café Haítí ásamt manni sínum Methúsalem Þórissyni. Elda óttast um bróður sinn sem býr í Port-au-Prince og rekur þar vefnaðarvöruverslun, neðst í stóru húsi sem oft er lokað kl. 17 en skjálftinn varð 10 mínútum áður að staðartíma. Önnur systkini hennar og móðir búa í Bandaríkj- unum. Hún hefur einnig áhyggjur af frænda sínum sem rekur skóla og er venjulega þar á þriðju eða fjórðu hæð. Hún stofnaði og rak einnig skóla í einu fátækrahverfa Port-au- Prince, sem um fimmtíu börn sóttu, og bíður nú frétta af þeim. Vinkonur Eldu í Bandaríkjunum létu hana vita af jarðskjálftanum um kl. 1 í fyrrinótt. Hún og Methús- alem maður hennar reyndu strax að fylgjast með á erlendum frétta- stöðvum og hófu að hringja í ætt- ingja og vini til að athuga um af- drif þeirra. Tæpum klukkutíma áður en jarðskjálftinn reið yfir Haítí hafði Elda verið að tala við frænda sinn í síma. Hún hefur hvorki náð í hann né aðra ættingja, þrátt fyrir hring- ingar, sms-sendingar og tölvu- pósta. Erfitt að bíða frétta af ættingjum og vinum Morgunblaðið/Golli Ótti Elda Þórisson óttast um bróður sinn í Port-au-Prince

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.