Morgunblaðið - 14.01.2010, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
Eldgos
ekki talið
yfirvofandi
Jarðhræringar
djúpt undir
Eyjafjallajökli í
fyrradag gefa
ekki ástæðu til að
ætla að yfirvof-
andi hætta sé á
eldgosi, að mati
Matthews J. Ro-
berts, sérfræð-
ings á Veðurstofu
Íslands. Þær beri
einungis vott um kvikuhreyfingar
sem valdi litlum jarðskjálftum djúpt
í jörðu undir jöklinum.
Auk jarðskjálftamælinga er fylgst
með yfirborðsbreytingum í nágrenni
jökulsins. Á Þorvaldseyri er rekin
GPS-mælistöð í þeim tilgangi. Hún
færðist um einn sentimetra til suð-
urs á liðnu sumri samfara skjálfta-
virkni þá. Stöðin hefur færst örfáa
millimetra í þessum mánuði og ber
það vott um kvikuinnskotið undir
jöklinum. Náið er fylgst með þessum
yfirborðsbreytingum. Roberts sagði
engin merki um breytingar undir
Mýrdalsjökli en eldstöðvarnar Katla
og Eyjafjallajökull virðast tengdar.
Skjálftavirkni undir Eyjafjalla-
jökli virðist hafa færst í aukana und-
anfarnar tvær vikur miðað við fjóra
mánuði þar á undan.
gudni@mbl.is
Virkni Kvika undir
Eyjafjallajökli.
Kvikuinnskot er
undir Eyjafjallajökli
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
TEKJUR Keflavíkurflugvallar ohf. drógust
saman um rúmlega 5% milli áranna 2008 og
2009. Samdrátturinn nam um 300 milljónum í
krónum talið. Friðþór Eydal, varnarmála- og
upplýsingafulltrúi Keflavíkurflugvallar ohf., seg-
ir þetta hafa haft veruleg áhrif á rekstur félags-
ins.
Ráðist var í umfangsmikla hagræðingu í upp-
hafi árs 2009 og var gætt aðhalds í rekstri fé-
lagsins allt síðasta ár. Nokkrir starfsmenn fóru í
50% störf fram að sumarönnum og sumarafleys-
ingar voru hafðar í lágmarki. Einnig var reynt
að halda yfirvinnu í lágmarki. Hertar kröfur í
flugvernd leiddu til þess að fjölga þurfti örygg-
isvörðum í flugstöðinni síðari hluta ársins. End-
ursamið var við alla birgja, öllum fjárfestingum
og meiriháttar viðhaldi frestað og endursamið
var við kröfuhafa félagsins.
Að sögn Friðþórs fækkaði stöðugildum um 25
frá stofnun félagsins í ársbyrjun 2009 og voru
þau 272 í lok ársins. Nokkrar uppsagnir starfs-
fólks urðu á árinu en áhersla var lögð á að ná
niður launakostnaði með hagræðingu og sam-
nýtingu starfa ásamt minni yfirvinnu. Þá var
endurráðið í fáar stöður sem losnuðu.
Minni samdráttur varð í verslun í
flugstöðinni en varð í farþegafjölda
Velta verslana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
dróst nokkuð saman á árinu 2009. Samdráttur í
verslun varð þó ekki í beinu hlutfalli við sam-
drátt í farþegafjölda. Friðþór segir að á því séu
skýringar eins og t.d. verðhækkanir. Veik staða
krónunnar hafi einnig leitt til söluaukningar í
flugstöðinni eins og innanlands.
Keflavíkurflugvöllur ohf. hefur nú starfað í
rétt rúmlega eitt ár. Innan skamms mun félagið
renna inn í nýtt félag ásamt Flugstoðum ohf.
Keflavíkurflugvöllur ohf. varð til við samruna
Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar, Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar og öryggisvarðadeild-
ar sýslumannsembættisins á Suðurnesjum.
Unnið er að gerð nýrrar gjaldskrár fyrir þjón-
ustu félagsins eins og gert er ráð fyrir í lögum.
Við gerð gjaldskrárinnar er viðhaft samráð sem
veitir notendum þjónustunnar ákveðna aðkomu
að gjaldskrárgerðinni, samkvæmt upplýsingum
frá Keflavíkurflugvelli ohf.
300 milljónum minni tekjur
Keflavíkurflugvöllur ohf. greip til umfangsmikillar hagræðingar og sparnaðar
í fyrra til að mæta minnkandi tekjum, en þær minnkuðu um rúm 5% milli ára
Morgunblaðið/ÞÖK
Keflavíkurflugvöllur Farþegum
hefur fækkað og tekjur minnkað.
GYLFI Magn-
ússon, við-
skiptaráðherra,
segir að tafir á
Icesave-málinu
gætu leitt til þess
að önnur endur-
skoðun á áætlun
Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins fyrir
Ísland tefðist. Í
viðtali við Reuters í gær sagði hann
að ríkissstjórnin væri „mjög langt“
frá því að ná nýjum samningi um
Icesave.
AGS hefur lýst því yfir að lausn
Icesave-deilunnar væri ekki skil-
yrði fyrir áætlun sjóðsins fyrir Ís-
land, svo lengi sem áætlunin væri
fjármögnuð að fullu. Gylfi sagði að
ef endurskoðunin myndi frestast
myndi hún stranda á lánum frá hin-
um Norðurlöndunum, nákvæmlega
eins og hefði gerst í fyrra. Hann
benti á að afgreiðsla á lánum frá
sjóðnum hefði tafist í um átta mán-
uði í fyrra, meðan beðið var eftir
lausn á deilunni. „Það væri skelfi-
leg tilhugsun ef það endurtekur
sig,“ sagði hann. „Það er ekki útséð
að þetta gangi ekki núna en mér
sýnist að róðurinn verði ansi þung-
ur.“
Gylfi sagði ekki úrslitaatriði þótt
endurskoðunin drægist um nokkr-
ar vikur en ef hún drægist fram eft-
ir árinu myndi slíkt kollvarpa þjóð-
hagsáætlun og ýmiskonar
fjárfestingum sem ætlunin væri að
leggja í. runarp@mbl.is
Icesave
gæti tafið
áætlun
Gylfi Magnússon
OFT hvílir sérstök ró yfir Reykjavíkurtjörn og næsta
nágrenni. Hamingja ríkir gjarnan í Hljómskálagarð-
inum, listin blómstrar í Listasafni Íslands, andinn svíf-
ur yfir vötnum í Fríkirkjunni og Kvennaskólinn, Mið-
bæjarskólinn og Menntaskólinn í Reykjavík standa
vörð um menntunina á meðan fólkið fer sína leið.
Morgunblaðið/Kristinn
HAMINGJA Í HLJÓMSKÁLAGARÐINUM
25-60%
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
10
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is
NALÚT AS
ER Í FULLUM GANGI
AF VÖLDUM VÖRUM
YFIR 1500 VÖRUNÚMER Á LÆKKUÐU VERÐI
GUNNLAUGUR
Finnsson, bóndi á
Hvilft í Önundarfirði
og fyrrverandi alþing-
ismaður, lést í gær-
morgun 81 árs að
aldri.
Gunnlaugur fæddist
á Hvilft 11. maí 1928.
Hann stundaði nám
við Menntaskólann á
Akureyri og útskrif-
aðist þaðan með stúd-
entspróf árið 1949.
Hann var bóndi á
Hvilft frá árinu 1950 og allt fram til
ársins 2007. Veturinn 1953 til 1954
kenndi hann við Héraðsskólann á
Núpi, og síðar við barna- og ungl-
ingaskóla á Flateyri árin 1959 til
1974. Þá var hann kaupfélagsstjóri á
Flateyri frá árinu 1980 til ársins
1988.
Á árunum 1974 til 1978 sat Gunn-
laugur á Alþingi fyrir Framsókn-
arflokkinn, auk þess sem hann var
varaþingmaður fyrir
flokkinn í byrjun árs
1979.
Gunnlaugur sat í
hreppsnefnd Flateyrar-
hrepps árin 1954 til
1958 og 1962 til 1968, og
var oddviti 1966 til 1970
og 1974 til 1978. Þá var
hann formaður Fjórð-
ungssambands Vest-
fjarða árin 1970 til
1974, og gegndi trún-
aðarstörfum fyrir
kirkjuráð þjóðkirkj-
unnar og Hjálparstofnun kirkj-
unnar.
Gunnlaugur kvæntist Sigríði Jó-
hönnu Bjarnadóttur og eignuðust
þau sjö börn, en þau eru: Sigurlaug,
Halldóra Valgerður, María, Finnur
Magnús, Bergljót, Birna og Einar
Þór.
Hin síðari ár dvaldist Gunnlaugur
á hjúkrunarheimilinu Sólborg á
Flateyri.
Andlát
Gunnlaugur Finnsson
Skrifstofustjóri
sveitarstjórn-
armála í sam-
göngu- og
sveitar-
stjórnarráðu-
neyti hefur ritað
bréf til forsvars-
manna þeirra
sveitarfélaga
sem enn hafa ekki skilað afriti af
fjárhagsáætlun 2010 til ráðuneyt-
isins þar sem þeim er veittur
tveggja vikna frestur til að skila
umbeðnum gögnum.
Hafi sveitarfélög ekki skilað af-
ritum, bæði í prentuðu og rafrænu
formi, að þeim tíma liðnum þá
áskilur ráðuneytið sér rétt til þess
að fresta greiðslum til þeirra úr
jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Sam-
kvæmt sveitarstjórnarlögum bar
sveitarfélögum að skila afriti af
fjárhagsáætlun 2010 fyrir áramót.
Fá tveggja
vikna frest
til að skila