Morgunblaðið - 14.01.2010, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
Vigdís Hauksdóttir, þingmaðurFramsóknarflokksins, gerir at-
hugasemd við það í aðsendri grein í
Morgunblaðinu að fjármálaráðherra
hafi ekki verið spurður út í nýleg um-
mæli Eiríks Tómassonar lagaprófess-
ors.
Eiríkur sagðifyrr í mán-
uðinum að vegna
starfa sinna fyrir
ríkisstjórnina,
sem hann væri
bundinn trúnaði
um, hefði hann
séð samninga sem
lágu Icesave-
samningnum til
grundvallar en
hefðu ekki verið gerðir opinberir.
ÁEiríki mátti skilja að þær upplýs-ingar sem hann byggi yfir gætu
skipt töluverðu máli.
Skiljanlegt er að Vigdís vilji látaræða við ráðherra og fá fram
þessar upplýsingar sem Eiríkur segir
að enn hvíli leynd yfir. Og raunin er
sú að Morgunblaðið hefur ítrekað
reynt að afla þessara upplýsinga, en
svörin sem fengist hafa frá stjórn-
völdum eru þau að enginn kannist við
gögnin eða upplýsingarnar sem Ei-
ríkur vísar til.
Þetta mál er eitt þeirra fjölmörgusem enn eru óupplýst í tengslum
við Icesave-samningana. Pukrið hef-
ur verið svo mikið að sennilega er
fólk hætt að kippa sér upp við það
þegar prófessor kemur fram og
greinir frá því að enn séu til óbirt
skjöl.
Ábending Vigdísar var þess vegnagagnleg og verður ef til vill til
þess að farið verður að leita í ráðu-
neytum að fleiri hliðarsamningum.
Hún gæti líka fylgt málinu eftir á
þingi, en full ástæða er fyrir þingið
að fara rækilega yfir upplýsingagjöf í
þessu máli og reyna að fylla í þær
eyður sem stjórnvöld hafa skilið eftir.
Vigdís
Hauksdóttir.
Enn eitt leyndarmálið
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 5 skýjað Lúxemborg 1 þoka Algarve 17 skýjað
Bolungarvík -3 heiðskírt Brussel 0 snjóél Madríd 5 skúrir
Akureyri 3 léttskýjað Dublin 4 súld Barcelona 13 léttskýjað
Egilsstaðir 6 skýjað Glasgow 2 alskýjað Mallorca 13 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 3 rigning London 0 þoka Róm 6 súld
Nuuk -7 snjókoma París 3 þoka Aþena 11 skýjað
Þórshöfn 6 alskýjað Amsterdam -2 snjókoma Winnipeg -7 skýjað
Ósló -13 snjókoma Hamborg -2 skýjað Montreal -11 snjókoma
Kaupmannahöfn 2 skýjað Berlín -2 skýjað New York -2 léttskýjað
Stokkhólmur -10 alskýjað Vín -1 alskýjað Chicago -3 heiðskírt
Helsinki -5 þoka Moskva -8 snjókoma Orlando 11 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
14. janúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2.22 0,2 8.36 4,4 14.56 0,2 21.03 3,9 10:57 16:17
ÍSAFJÖRÐUR 4.28 0,1 10.29 2,4 17.05 0,0 23.02 2,0 11:30 15:55
SIGLUFJÖRÐUR 0.58 1,2 6.40 0,1 13.04 1,3 19.22 -0,1 11:14 15:36
DJÚPIVOGUR 5.49 2,2 12.04 0,2 18.00 1,9 10:34 15:40
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á föstudag
Austanátt, 10-15 m/s um tíma
við suður- og austurströndina,
annars yfirleitt 5-10. Rigning,
einkum SA-lands og hiti 2 til 7
stig, en úrkomulítið og hiti ná-
lægt frostmarki norðantil á
landinu.
Á laugardag
Austan- og norðaustanátt með
rigningu eða slyddu, einkum
suðaustantil. Hiti 1 til 7 stig.
Á sunnudag og mánudag
Suðvestanátt og skúrir eða
slydduél, en þurrt á aust-
anverðu landinu. Hiti yfirleitt 0
til 5 stig.
Á þriðjudag
Sunnanátt og víða rigning.
Hlýnandi veður.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Suðaustan 5-13. Rigning SA-
lands og smáskúrir V-til, annars
úrkomulítið. Hiti 0 til 8 stig, en
sums staðar vægt frost fyrir
norðan.
STÓRU olíufélögin þrjú, N1, Olís
og Skeljungur, hafa í þessari viku
hækkað eldsneytisverð og kostar
lítri af bensíni nú 201,2 krónur. Það
er nokkru ódýrara ef viðskiptavinir
dæla sjálfir.
Það er athyglisvert að ekkert er
fjallað um þessar hækkanir á vef-
síðum N1 og Olís og þar kemur
raunar hvergi fram hvað bensínið
kostar með fullri þjónustu. Á vef
Skeljungs má sjá hvað bensínið
kostar, þótt ekki sé birt sérstök til-
kynning um hækkunina. Þjón-
ustuverð á díselolíu hjá Skeljungi
er 199,90 krónur.
Sérafsláttur fyrir suma
Ekki er þó nauðsynlegt að greiða
svona mikið fyrir eldsneytið. Sjálfs-
afgreiðsluverð er töluvert lægra og
yfirleitt er það lægst á sjálfs-
afgreiðslustöðvum, s.s. hjá
Orkunni, Atlantsolíu og ÓB. Þar að
auki bjóða olíufélögin félagsmönn-
um í ýmsum aksturs- og ferða-
félögum og starfsmönnum tiltek-
inna fyrirtækja mun betri
afsláttarkjör en hinum venjulega
viðskiptavini. Afslátturinn nemur
oft 6-7 krónum, skv. lauslegri könn-
un blaðamanns.
Meðal þeirra félaga sem hafa
samið um afslátt eru Sniglarnir,
Ferðaklúbburinn 4x4, Bílaklúbb-
urinn Krúser, Ferðafélag Íslands,
starfsmannafélag Landspítalans og
Félag íslenskra bifreiðaeigenda.
Starfsmenn ýmissa fyrirtækja fá
einnig sérafslátt.
„Venjulegir“ viðskiptavinir geta
fengið ódýrara bensín er þeir fá sér
dælulykla eða staðgreiðslukort sem
veita 2-3 krónu afslátt af sjálfs-
afgreiðsluverði. Í ljósi þess að lítri
af bensíni kostar víða um 195 krón-
ur í sjálfsafgreiðslu er afslátturinn
ekki ýkja mikill og á einu ári gæti
sparnaðurinn numið um 4.000-
5.000 krónum, á hvern bíl. Meira
munar um þær 10-11.000 krónur
sem má spara á sérkjörum olíu-
félaganna. runarp@mbl.is.
Tilboð Einu sinni þótti þetta mikið.
Morgunblaðið/Eggert
Bensínverð yfir 200
krónur með þjónustu
Auðvelt að komast
hjá að borga fullt
verð fyrir bensín
Tólf þúsund manns, eða 6,7% vinnuaflsins, voru að
meðaltali án vinnu og í atvinnuleit á fjórða árs-
fjórðungi 2009 að því er fram kemur í vinnumark-
aðstölum Hagstofu Íslands. Atvinnuleysi mældist
7,9% hjá körlum og 5,4% hjá konum. Sé litið til bú-
setu mældist atvinnuleysi 6,6% á höfuðborgar-
svæðinu en 7% utan þess. Þegar horft er til aldurs
var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-
24 ára eða 16,1%. Á fjórða ársfjórðungi 2009 höfðu
um 1.700 manns, eða 14% atvinnulausra, verið at-
vinnulausir í 12 mánuði eða lengur, en voru á sama
tímabili 2008 um 200 manns.
Tölur hagstofunnar byggjast á símakönnun sem
gerð var frá 28. september til 27. desember sl.
Heildarúrtakið var 3.935 manns á aldrinum 16-74
ára sem valdir voru af handahófi úr þjóðskrá.
Svarhlutfall var rúmt 81%. Samkvæmt aðferða-
fræði hagstofunnar, sem er í samræmi við vinnu-
aðferðir Eurostat, evrópsku hagstofunnar, teljast
þeir atvinnulausir sem ekki hafa atvinnu í viðmið-
unarviku könnunarinnar, eru að leita að vinnu og
geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa feng-
ið vinnu sem hefst innan þriggja mánaða. Að sama
skapi telst fólk starfandi ef það hefur unnið eina
klukkustund eða meira í viðmiðmunarvikunni.
Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2009 var
166.500 manns og fækkaði um 8.500 frá sama tíma
ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 178.500 manns
sem jafngildir 80,3% atvinnuþátttöku. Atvinnu-
þátttaka karla var 83,3% og kvenna 77,3%.
Hagstofan mælir 6,7% atvinnuleysi
Í HNOTSKURN
»Meðalfjöldi vinnustunda helduráfram að minnka milli ára.
Hann var 38,9 klst. á fjórða árs-
fjórðungi 2009, en 42,3 klst. á sama
tíma 2006.
»Á fjórða ársfjórðungi 2009 varmeðalfjöldi vinnustunda hjá
þeim sem voru í fullu starfi 44,6
klst. en 23 klst. hjá þeim sem voru í
hlutastarfi.