Morgunblaðið - 14.01.2010, Síða 18
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
ÓTTAST er að þúsundir manna hafi
farist í öflugum jarðskjálfta sem reið
yfir Haítí í fyrrakvöld, að sögn for-
seta landsins, Renés Prevals, sem
gaf út beiðni um alþjóðlega aðstoð
vegna hamfaranna.
„Þinghúsið hrundi. Skattstofan,
skólar og sjúkrahús hrundu,“ sagði
forsetinn í viðtali við bandaríska dag-
blaðið Miami Herald eftir jarð-
skjálfta sem mældist 7 stig á Richt-
ers-kvarða og reið yfir Haítí laust
fyrir klukkan tíu í fyrrakvöld að ís-
lenskum tíma, klukkan 16.53 að stað-
artíma. „Í mörgum skólum eru fjöl-
mörg lík,“ sagði Preval og bætti við
að á meðal þeirra sem hefðu grafist
undir rústum þinghússins væri for-
seti öldungadeildar þingsins, Kely
Bastien.
Forsætisráðherra Haítí, Jean-
Max Bellerive, taldi jafnvel hugsan-
legt að yfir 100.000 manns hefðu far-
ist. „Ég vona að þetta sé ekki rétt,
vegna þess að ég vona að fólk hafi
haft tíma til að forða sér,“ sagði for-
sætisráðherrann í viðtali við CNN-
sjónvarpið.
Mörg lík á götunum
Björgunarmenn grófu með hönd-
unum í húsarústum í örvæntingar-
fullri leit að fólki sem hrópaði á hjálp.
Eiginkona forsetans, Elisabeth Pre-
val, kvaðst hafa séð mörg lík á götum
höfuðborgarinnar, Port-au-Prince,
og heyrt hróp fólks sem kæmist ekki
úr rústum þinghússins. „Ég þurfti að
stíga yfir lík. Margir grófust undir
byggingum sem hrundu. Aðalsjúkra-
húsið er í rúst. Við þurfum stuðning
og hjálp.“
Sendiherra Haítí hjá Samtökum
Ameríkuríkja, Duly Brutus, sagði að
tugir þúsunda hefðu farist eða slas-
ast í náttúruhamförunum.
„Ljóst er að jarðskjálftinn hefur
haft skelfilegar afleiðingar í höfuð-
borginni, Port-au-Prince,“ sagði Ban
Ki-moon, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna. „Við vitum ekki enn
tölu látinna eða slasaðra, en við telj-
um að hundruð manna hafi farist.“
Margra starfsmanna SÞ saknað
Höfuðstöðvar Sameinuðu þjóð-
anna í Port-au-Prince voru á meðal
bygginganna sem eyðilögðust í
skjálftanum. Talsmaður samtakanna
sagði í gærkvöldi að fimmtán starfs-
menn SÞ hefðu fundist látnir, 56 slas-
aðir og að ekki væri vitað um afdrif
allt að 150 starfsmanna til viðbótar
sem voru í byggingunni er hamfar-
irnar urðu. Þeirra á meðal var yfir-
maður þeirra, Túnisinn Hedi Annabi,
sem var að ræða við kínverska sendi-
nefnd þegar jarðskjálftinn reið yfir.
Hermt er að margir hermenn í
friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna
hafi látið lífið, þeirra á meðal minnst
ellefu Brasilíumenn, þrír Jórdanar,
og Argentínumaður. Að minnsta
kosti átta kínverskir hermenn gróf-
ust undir húsarústum. Sjö brasil-
ískra hermanna til viðbótar og frið-
argæsluliða frá Argentínu var
saknað.
Í friðargæsluliðinu eru alls um
7.000 hermenn og 2.000 lögreglu-
menn og það starfar undir stjórn
Brasilíumanna.
Gríðarlegt eignatjón
Á meðal þeirra sem var saknað í
höfuðborginni voru um 200 útlend-
ingar í Montana-hótelinu sem
hrundi, að sögn franska ráðherrans
Alains Joyandets. „Við vitum að 300
manns voru í hótelinu þegar það
hrundi og aðeins um 100 komust út,“
sagði ráðherrann. Á meðal Haíta,
sem vitað er að fórust, er erkibiskup
kaþólsku kirkjunnar, Joseph Serge
Miot, sem fannst látinn á skrifstofu
sinni.
Rauði krossinn sagði að allt að
þrjár milljónir manna hefðu orðið
fyrir tjóni vegna hamfaranna. Sendi-
herra Haítís í Bandaríkjunum sagði
ljóst að eignatjónið væri gríðarlegt,
eða sem svarar hundruðum milljarða
króna.
Tafarlausri aðstoð lofað
Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin
var á meðal björgunarsveita sem
sendar voru til Haítí í gær. Stjórn-
völd í Bandaríkjunum, Frakklandi,
Bretlandi, Kanada og Danmörku lof-
uðu tafarlausri aðstoð við björgunar-
starfið.
„Þessar hörmulegu hamfarir eru
skelfilegar og óskiljanlegar,“ sagði
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, sem hét tafarlausri og um-
fangsmikilli aðstoð við að bjarga
mannslífum á Haítí. Benedikt XVI
páfi hvatti þjóðir heims til að koma
íbúum landsins til hjálpar með rausn-
arlegum hætti.
Kanadísk yfirvöld sendu strax
flugvél með hjálpargögn og 200
manna lið hermanna, verkfræðinga
og lækna sem eiga að kanna ástandið
og meta þörfina á aðstoð. Banda-
ríkjaher sendi flugvélar og skip til
Haítí og gert er ráð fyrir að banda-
rískt flugvélamóðurskip komi að
strönd landsins í dag.
Grófu í niðamyrkri
Mikill skortur var á tækjum til
björgunarstarfa í landinu og björg-
unarmenn grófu í rústunum með ber-
um höndum. Rafmagnslaust varð í
hamförunum og niðamyrkur var því í
borginni eftir skjálftann. „Þúsundir
manna sátu á götunum eftir að hafa
misst heimili sitt,“ sagði Rachmani
Domersant, framkvæmdastjóri góð-
gerðarstofnunar sem sér fátækum
íbúum Haítí fyrir matvælum. „Sumir
voru með vasaljós og reyndu að grafa
fólk úr rústunum. Það væri mikið
vanmat að tala um að hundruð
manna hefðu farist.“
Óttast að þúsundir manna
hafi farist í hamförunum
Reuters
Björgunarstarf Íbúar Port-au-Prince, höfuðborgar Haítí, leita að fólki í rústum byggingar sem hrundi í jarðskjálftanum sem reið yfir landið í fyrrakvöld.
1
5
9
3
2
1 km
Dómhús
hæstaréttar
eyðilagðist
DÓMINÍSKA LÝÐVELDIÐ
HAÍTÍ
Santo
Domingo
Norður-Ameríkuflekinn
Karíbaflekinn
Port-au-Prince
H i s p a n í ó l a
Púertó
Ríkó-
trog
Hispaníóla-trog
Sniðgengi
Niðurstreymis-
belti
Kl. 21.53 að ísl. tíma
7,0 stig á Richter
Port-au-
Prince
Carrefour
Petit
Goave
Leogane
Canal de la Gonave
Eftirskjálftar mældust yfir 4 stig á Richter
50 km
25 km
Jarðskjálftinn varð á misgengi á mótum
Karíbaflekans og Norður-Ameríkuflekans
Skjálftamiðjan var aðeins um 16 km
frá Port-au-Prince, sem er með um
það bil milljón íbúa
Mikið manntjón varð þegar öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí í fyrrakvöld og
margar byggingar í höfuðborginni, Port-au-Prince, lögðust í rúst.
Er þetta öflugasti landskjálfti á Haítí í um það bil tvær aldir.
JARÐSKJÁLFTINN Á HAÍTÍ
Heimildir: USGS, fréttir fjölmiðla
EYÐILEGGING Í HÖFUÐBORGINNI
Petionville
Sjúkrahús í rúst og
miklar skemmdir á
Montana-hótelinu
Þinghúsið
eyðilagðist
Bygging iðskiptaráðu-
neytisins skemmdist
Höfuðstöðvar
starfsliðs SÞ
skemmdust
Dómkirkjan
í borginni
eyðilagðist
Forseta-
höllin
eyðilagðist Alþjóða-
flugvöllurinn
skemmdistPORT-AU-PRINCE
Forsætisráðherra Haítí telur hugsanlegt að yfir 100.000 manns hafi látið lífið í jarðskjálftanum
Alþjóðlegar björgunarsveitir sendar á staðinn til að leita að fólki sem grófst undir húsarústunum
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
JARÐSKJÁLFTINN á Haítí varð
á misgengi á mótum Norður-
Ameríkuflekans og Karíbaflekans.
Upptök hans voru um það bil 16
kílómetra frá höfuðborginni, Port-
au-Prince.
Sigþrúður Ármannsdóttir, land-
fræðingur hjá Veðurstofu Íslands,
sagði að skjálftinn hefði orðið á
sniðgengisbelti á flekaskilum
sunnarlega á eyjunni. Skjálftinn
hefði verið grunnur, upptökin
hefðu verið nálægt yfirborðinu,
hugsanlega á um það bil 10 kíló-
metra dýpi.
Að sögn Sigþrúðar varð skjálft-
inn á þekktum flekaskilum. „Það
er langt síðan svo stór skjálfti
hefur orðið á þessum slóðum,
hugsanlega á nítjándu öldinni
seinast.“
Jarðskjálftinn kom greinilega
fram á jarðskjálftamælum hér-
lendis, samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofunni. Af 55 mælum á
landinu sendu 47 þeirra rafræn
skilaboð um skjálftann inn á eft-
irlitsvakt Veðurstofunnar, en það
gerist nokkuð oft að skjálftar í
fjarlægum löndum komi fram á
mælum hér á landi.
32 eftirskjálftar
Jarðskjálftamiðstöð Bandaríkj-
anna (USGS) sagði að 32 snarpir
eftirskjálftar hefðu orðið á Haítí
eftir stóra skjálftann í fyrrakvöld
og þeir öflugustu hefðu mælst 5,9
og 5,5 stig á Richters-kvarða. Sus-
an Potter, jarðfræðingur stofnun-
arinnar, sagði að svo öflugur
skjálfti hefði ekki orðið á Haítí frá
árinu 1897 eða jafnvel frá 1770.
Upptökin
voru ná-
lægt yfir-
borðinu
Jarðskjálfti á Haítí